Fréttablaðið - 27.06.2017, Blaðsíða 30
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Nokkrir ísleNskir veitiNgastaðir í útrás
Pizza 67
Pizza 67 var eitt fyrsta útrásar-
fyrirtæki þjóðarinnar og var með
starfsemi í sjö löndum þegar
mest var, á Íslandi og Spáni, í
Tékklandi, Færeyjum, Noregi,
Danmörku og Kína. Kínverjar vildu
fleiri staði en eigendur Pizza 67
höfðu ekki áhuga – raunar misstu
þeir fljótlega eftir það áhuga á
rekstrinum og komu sér út. Fyrir
ekki svo margt löngu var opnaður
aftur Pizza 67 staður í Reykjavík,
en það er bara best að tala ekkert
meira um það ævintýri.
The Laundromat Café
The Laundromat Café er staður
sem má kannski segja að hafi
farið í öfuga útrás en hann var
upphaflega stofnaður í Kaup-
mannahöfn og síðar var útibú
opnað á Íslandi. Fyrsti Laundro-
mat staðurinn var á Nørrebro
árið 2004 en sá í Reykjavík var
opnaður sex árum síðar. Nú eru
starfræktir fjórir Laundromat
staðir – allir nema einn í Dan-
mörku.
Hamborgabúllan
Búlluna er að finna í London,
Kaupmannahöfn og Berlín. Í
Berlín eru tveir staðir, fjórir í
Kaupmannahöfn og þrír í Lond-
on. Búllan er tiltölulega vinsæll
staður ytra – til að mynda eru
hamborgararnir á Búllunni í miklu
uppáhaldi hjá David nokkrum
Beckham. Búllan hefur náð að
halda vinsældum sínum töluvert
lengi núna enda vinnur hún með
klassískan hamborgara þar sem
ekkert er verið að flækja málið.
V ið erum sem sagt að fara að opna Gló núna 29. júní í Dan-mörku. Við erum búin að hafa eina for-opnun fyrir dönsku
pressuna þar sem við buðum dönsk-
um bloggurum og blaðamönnum.
Og vá,“ segir Sólveig Eiríksdóttir,
einn eigenda Gló, en hún er himin-
lifandi með Danmerkurævintýrið
sem Gló er að fara í.
„Okkur var tekið svo vel og
það eru allir svo ótrúlega hrifnir.
Staðurinn er náttúrulega guðdóm-
lega fallegur, þetta er langfallegasti
Gló-staðurinn hingað til,“ segir Solla
um staðinn sem verður opnaður í
kjallaranum á Magasine du Nord í
Kaupmannahöfn.
„Við buðum svona 25 manns á
þessa foropnun en það mættu 50.
Konurnar sem sáu um viðburðinn
fyrir okkur trúðu ekki sínum eigin
augum. Við vorum að gera ráð fyrir
svona tuttugu prósent afföllum,
en nei, það fór sko ekki svo. Og við
buðum upp á svona smakkseðil
og það eru allir orðnir rosalega
spenntir.“
Gló er greinilega að falla vel í
kramið hjá Dönum. „Við vorum
beðin um að koma með Gló til Dan-
merkur fyrir svona tveimur árum
og við erum búin að vera að hugsa
þetta síðan. Það þurfti að hafa svo-
lítið fyrir því að fá okkur yfir,“ segir
Solla og hlær.
Solla og Gló-teymið sér ekki
eftir að hafa tekið ákvörðun um að
fara út. „Ég er rosalega sátt. En við
þurftum þennan meðgöngutíma. Ég
er þeirrar skoðunar að maður á ekki
að ana út í neitt. Ég er náttúrulega
orðin gömul og komin með reynslu
og að mínu mati þarftu að finna það
í öllum frumunum að þetta sé rétt
ákvörðun.“
Þetta er í fyrsta sinn sem Gló-stað-
langfallegasti
gló-staðurinn er í
Danmörku
sólveig eiríksdóttir, betur þekkt sem Solla á Gló, er komin í útrás
og opnar Gló-stað í Magasin du Nord í Kaupmannahöfn á fimmtu-
daginn. Solla segir Dani taka virkilega vel í Gló-konseptið.
Solla hélt foropnun fyrir dönsku pressuna á dögunum og þá myndaðist mikil spenna.
ur er opnaður á erlendri grundu.
Spurð út í hvort þessu nýja ævin-
týri fylgi eitthvert stress segir Solla:
„Nei, nei, ekkert þannig séð. Þetta
hefur gengið svo vel. En ég segi samt
eins og Mick Jagger:
„Daginn sem ég fæ
ekki niðurgang
áður en ég fer
á svið, þá ætla
ég að hætta.“
Við segjum
þetta líka, því
daginn sem
okkur fer að
finnast ekkert mál að gera svona
hluti, það er dagurinn sem við ættum
að fara að snúa okkur að einhverju
öðru. Það er þessi spenna sem er svo
góð og þessi mikla orka sem fylgir
magakitlinu.“
Þess má geta að Solla bjó í Dan-
mörku frá árinu 1978 til ársins 1984.
„Já, og það sem er líka svo fallegt er
að maðurinn minn hefur líka búið í
Danmörku og svo búa meðeigendur
okkar, Eygló og Biggi, í Danmörku.
Þannig að við erum öll hérna núna
að snakke dansk og sykkel,“ segir
Solla og skellir upp úr.
Aðspurð hvort hún sjálf sé
á leiðinni að flytja út segir
Solla: „Nei, en ég verð
örugglega 50/50 á milli
Íslands og Danmörku, að
sinna Gló á báðum stöð-
um.“ gudnyhronn@365.is
Solla Eiríksdóttir
GÓÐGÆTI FRÁ GÓU
Nýtt Hraun með 56% dökku súkkulaði.
Þú verður að prófa!
NÝTT
HRAUN
Lodge járnpanna, 26 cm
Verð 8.900 kr.
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Nýjar vörur frá
Útsöluaðilar:
Útilíf – Kringlunni – Smáralind • Sportver Akureyri • Toppmenn & Sport Akureyri
K Sport Keflavík • Nína Akranesi • Sportbær Selfossi • Axel Ó Vestmannaeyjum
Dreifingaraðili: DanSport ehf. Hægt að sjá vörur á dansport.is
Útsölustaðir:
Hörpu / Laugavegi
R e y k j av i k R a i n c o at s - H V e r f i s g ö t u 8 2
w w w. r e y k j av i k r a i n c o at s . c o m - s í m i : 5 7 1 1 1 7 7
2 7 . j ú n í 2 0 1 7 Þ R I Ð j U D A G U R22 l í f I Ð ∙ f R É T T A B l A Ð I Ð
2
7
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
6
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
3
0
-E
3
1
0
1
D
3
0
-E
1
D
4
1
D
3
0
-E
0
9
8
1
D
3
0
-D
F
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
3
2
s
_
2
6
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K