Fréttablaðið - 01.07.2017, Side 2
Með allt á hreinu
Aðstandendur sérstakrar sing-along sýningar á Með allt á hreinu hittust í Bíói Paradís við Hverfisgötu í gær. Þeir Ágúst Guðmundsson, leikstjóri
myndarinnar, og Stuðmaðurinn Jakob Frímann Magnússon skoðuðu þá sýningarfilmu kvikmyndarinnar sem fagnar nú 35 ára afmæli. Myndin
verður einungis sýnd einu sinni eða í kvöld og ætla valdir meðlimir Stuðmanna þá að taka lagið með áhorfendum. Fréttablaðið/Ernir
Veður
Breytileg átt 3-8 m/s. Skýjað að
mestu og víða skúrir, einkum síð-
degis. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast inn til
landsins. sjá síðu 36
samfélag „Fólk hringir og vill fara
og vill helst bara fara strax eftir
hádegi. Það er sáralítið eftir af sólar-
landaferðum í júlímánuði.“ Þetta
segir Guðrún Sigurgeirsdóttir, fram-
leiðslustjóri hjá ferðaskrifstofunni
VITA.
Svalt hefur verið í veðri víða um
landið og skúrir. Ekki er útlit fyrir
batnandi veður á næstunni sam-
kvæmt upplýsingum frá Veðurstofu
Íslands og virðast Íslendingar því í
auknum mæli vera að hoppa út í sól.
„Það er í sjálfu sér ekki skrítið.
Fjölskyldan er komin í fríið, þau
langar í sólina. Fólk vill leyfa börn-
unum sínum að labba um án þess
að þau séu í pollagöllum,“ segir
Guðrún.
Hún segir meiri ásókn í sólina nú
en í fyrra. Helsta ástæðan fyrir auk-
inni eftirspurn núna, sé miðað við
sama tíma í fyrra sé EM í fótbolta
sem dró marga til Frakklands til að
fylgjast með ævintýrum íslenska
landsliðsins.
Krít, Tenerife og aðrir áfangastaðir
á Spáni eru vinsælir hjá VITA.
Tómas J. Gestsson, framkvæmda-
stjóri Heimsferða, finnur einnig fyrir
meiri eftirspurn. „Það er svolítið sér-
stakt að það þarf stundum nokkra
daga í einu af slæmu veðri. Kannski
heldur fólk að veðrið breytist eftir
nokkra daga. En þegar fólk er búið
að vera í rigningartíð í þrjá fjóra
daga og spáin ekki góð þá kemur
holskeflan. Við höfum fundið fyrir
því síðustu daga. Ég held að veðr-
áttan spili dálítið mikið inn núna.“
Aukningin sé mikil í sumar en enn
meiri áhugi sé fyrir ferðum í haust.
Þórunn Reynisdóttir, fram-
kvæmdastjóri hjá Úrval Útsýn,
segir fólk vera að stökkva í sólina.
„Kanarí er mjög vinsælt, Almería er
líka mjög vinsælt sem og Alicante og
Tenerife. Það er töluverður munur
milli ára – aukning.“
Svo er almennt meiri ferðagleði
hjá Íslendingum að mati Þórunnar.
„Það er mikilvægt að Íslendingar
létti á þjóðvegi 1 og fari í sólina á
meðan útlendingarnir eru hérna,“
segir hún kímin.
Forsvarsmenn leitarvélarinnar
Dohop segjast ekki taka eftir því
að fólk sé að bóka í flýti í sólina hjá
þeim. „Við höfum fundið fyrir mik-
illi aukningu í ferðalögum almennt,
allt að 50%, en ekki sérstaklega núna
með skömmum fyrirvara,“ segir
Davíð Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Dohop. saeunn@frettabladid.is
Íslendingar flýja regnið
Forsvarsmenn ferðaskrifstofa segjast finna fyrir mikilli ásókn í sólarlandaferðir
þegar rignir marga daga í röð. Margir vilji bóka með stuttum fyrirvara. Dohop
kannast ekki við skyndihopp en segja aukningu í ferðalögum frekar almenna.
Íslendingar fara helst til tenerife þegar skúrir eru hér á landi. Fréttablaðið/EPa
Þegar fólk er búið
að vera í rigningar-
tíð í þrjá fjóra daga og spáin
ekki góð þá kemur hol-
skeflan. Við höfum fundið
fyrir því síðustu daga.
Tómas J. Gestsson,
framkvæmdastjóri Heimsferða
Volvo Penta á Íslandi | Brimborg • Bíldshöfða 6 • Sími 515 7070 • volvopenta.is
ÞÚ ERT Í ÖRUGGUM HÖNDUM
hjá volvo penta á íslandi
Öflug Volvo Penta þjónusta
Hjá Volvo Penta á Íslandi | Brimborg starfar framúrskarandi
teymi sem samanstendur af öflugum fagmönnum
Brimborgar og samstarfsaðilum um land allt.
Komdu í dag og ræddu við ráðgjafa.
HAFÐU SAMBAND Í DAG
• Sími: 515 7067 | 869 7537 Guðmundur Gísli
• Netfang: volvopenta@brimborg.is
• Heimasíða: volvopenta.is
Kauptu bestu varahlutina
Volvo Penta á Íslandi | Brimborg er með gott úrval varahluta
á lager og á mjög hagstæðu verði. Varahlutasérfræðingar
okkar veita þér fyrirtaksþjónustu og ráðgjöf við kaup.
Volvo Penta Kubbur_10x10_20170615_Draft1.indd 1 20.6.2017 13:47:16
DÓmsmál Spænskur karlmaður var
í Héraðsdómi Reykjavíkur í fyrradag
dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir
tvær nauðganir og kynferðislega
áreitni. Brotin áttu sér stað á árshátíð
á Hótel Selfossi í febrúar síðastliðnum.
Hinn sakfelldi bar fyrir sig að um
misskilning hefði verið að ræða. Sagði
hann að hann hefði hætt þegar hann
uppgötvaði að konurnar þrjár, sem
hann braut gegn, hafi ekki viljað að
hann héldi áfram. Þá hafi hann í einu
tilfelli verið að leita að tóbaki í rúmi
konunnar og óvart snert hana.
Það stangaðist á við framburð
kvennanna en þær höfðu allar verið
sofandi á hótelherbergjum sínum
þegar manninn bar að garði. Dómur-
inn taldi brotavilja hans einbeittan og
hann hafi ekki hætt iðju sinni fyrr en
fólk kom að honum.
Auk fangelsisdómsins var maður-
inn dæmdur til að greiða konunum
sem hann nauðgaði 1,5 milljón
hvorri og þriðju konunni 800 þúsund
krónur. Auk þess falla laun verjanda
hans, 1,5 milljón, og þóknun réttar-
gæslumanns kvennanna, 1,2 milljón,
á hinn sakfellda. – jóe
Fjögurra ára
fangelsi fyrir
kynferðisbrot
TRYggINgaR Kona, sem lærbrotnaði
á leið inn á veitingastað á Akureyri, á
ekki rétt á bótum úr ábyrgðartryggingu
veitingahússins. Þetta er niðurstaða
úrskurðarnefndar vátryggingamála.
Konan var á leið inn á veitingastað-
inn í strekkingsvindi. Hún hafði hald-
ið við hurð við inngang staðarins fyrir
dóttur sína og síðan ætlað sjálf inn. Á
þeim tímapunkti kom sterk vindhviða
sem feykti hurðinni upp og konunni
um koll. Lærbrotnaði hún við fallið
og hlaut áverka á höfði. Á hurðinni
var pumpa en hún var ótengd.
Nefndin taldi að umræddri pumpu
hefði verið komið fyrir til að dyrnar
myndu lokast á eftir þeim sem fór
í gegnum þær. Ekkert kvæði á um
það að slíkar pumpur þyrftu að vera
á hurðum eða hvernig gengið skyldi
frá þeim. Aðbúnaður húseignarinnar
þótti í lagi og því ekki ástæða til að láta
tryggingafélag veitingastaðarins bera
ábyrgð á tjóni konunnar. – jóe
Lærbrotnaði á
veitingastað
VIðsKIPTI Hagnaður sænsku fataversl-
anakeðjunnar Hennes & Mauritz var
um tíu prósentum hærri en greinendur
bjuggust við á fyrsta ársfjórðungi. Sölu-
tölur keðjunnar ollu hins vegar von-
brigðum. H&M hefur átt erfitt upp-
dráttar undanfarið.
Hlutabréf keðjunnar hafa verið á
niðurleið frá árinu 2015 og hafa fallið
um átján prósent það sem af er árinu.
Verslunum keðjunnar hefur fjölgað
um tíu prósent á undanförnu ári, en
eins og kunnugt er hyggst keðjan opna
tvær verslanir hér á landi á árinu. – kij
Hagnaður
H&M hærri en
reiknað var með
1 . j ú l í 2 0 1 7 l a u g a R D a g u R2 f R é T T I R ∙ f R é T T a B l a ð I ð
0
1
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
3
B
-F
A
2
0
1
D
3
B
-F
8
E
4
1
D
3
B
-F
7
A
8
1
D
3
B
-F
6
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
8
0
s
_
3
0
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K