Fréttablaðið - 01.07.2017, Side 4
Guðrún Jónsdóttir
talskona Stígamóta
stígur til hliðar á
meðan athugun
á starfsum-
hverfi Stíga-
móta fer fram.
Athugunin
kemur í kjölfar
yfirlýsingar níu fyrr-
verandi starfskvenna Stígamóta
vegna pistils Helgu Baldvins-
dóttur Bjargardóttur en þar
kvaðst Helga hafa upplifað einelti
og ofbeldi á vinnustaðnum. Í
yfirlýsingu kvennanna segjast
þær trúa Helgu enda hafi þær
allar sambærilega reynslu af því
að starfa á vettvangi Stígamóta.
Þær skoruðu á framkvæmdahóp
samtakanna að taka á málinu af
ábyrgð og fagmennsku.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
kylfingur
tekur þátt í
keppni á stór-
móti í golfi, fyrst
Íslendinga. Hún
keppir á PGA-
meistaramóti
kvenna sem hófst
á Olympia Fields í
útjaðri Chicago-borgar í Banda-
ríkjunum. Ólafía vann sér sjálf
inn þátttökurétt á mótinu með
stöðu sinni á stigalista LPGA-
mótaraðarinnar.
Anna Berg Samúelsdóttir
umhverfisstjóri Fjarðabyggðar
sagði lúpínu ekki
eiga heima í
okkar vistkerfi. Í
Fjarðabyggð er
óskað eftir þátt-
töku almennra
borgara í átaki
gegn lúpínu sem
farið verður í annað
sumarið í röð. Anna sagði kenn-
inguna um að lúpínan hopaði
eftir að hafa grætt upp næringar-
snauð svæði misskilning.
Þrjár í fréttum
Stígamót,
stórmót og
lúpína
Tölur vikunnar 25.06.2017 – 01.07.2017
570
milljónir króna greiddi skatta-
kóngur ársins, Gísli J. Frið-
jónsson, í opinber gjöld í fyrra.
Gjöldin má rekja til sölu á Hóp-
bílum og Hagvögnum.
100 börn slasast árlega
á Íslandi við fall úr innkaupakerrum.
2,3 milljarða
króna hagnaði, fyrir fjármagnsliði,
afskriftir og skatta, gerir Arnarlax
ráð fyrir á þessu ári.
30.275 voru er-
lendir ríkisborgarar á Íslandi
hinn 1. janúar 2017.
439
sóttu um íslenskunám fyrir út-
lendinga í Háskóla Íslands fyrir
næsta haust. Það eru rúmlega 40
prósent af öllum þeim umsóknum
sem bárust Hugvísindasviði.
6 milljarðar
eða þar um bil er kaupverðið á
Keahótelum sem reka átta hótel
víðs vegar á landinu.
sTjórnsýsla „Fyrir flugrekandann
er þessi lokaskýrsla um slysið mikill
hvítþvottur,“ segir Mikael Tryggva-
son, bróðir sjúkraflutningamanns
sem lést er sjúkraflugvél Mýflugs
fórst á Akureyri 5. ágúst 2013.
Mýflugsvélin brotlenti á akst-
ursbraut Bílaklúbbs Akureyrar er
flugstjórinn hugðist taka dýfu yfir
brautina þar sem fram fór spyrnu-
keppni. Nú í júní skilaði rann-
sóknarnefnd flugslysa lokaskýrslu
um málið, tæpum fjórum árum eftir
slysið sem kostaði Pétur Tryggvason
sjúkraflutningamann, bróður Mika-
els, lífið. Flugstjórinn lést einnig en
aðstoðarflugmaður lifði af.
„Það er alveg af og frá og ég er
langt frá því að vera sáttur,“ segir
Mikael um það hvort skýrslan um
Mýflugsslysið varpi nægilega skýru
ljósi á aðdraganda og orsakir slyss-
ins.
Í apríl í vor kom út skýrsla banda-
rísku flugslysanefndarinnar, NTSB,
um flugvél í útsýnisflugi sem fórst
með níu manns fyrir tveimur árum.
Mikael segir muninn á bandarísku
skýrslunni og þeirri íslensku vera
sláandi.
Bandaríska skýrslan sem Mikael
vitnar til fjallar ítarlega um þá
starfshætti sem tíðkuðust hjá flug-
félaginu sem rak vélina sem fórst.
Áhættusækni innan fyrirtækisins
var sögð hafa verið orsök þess
hvernig fór. Haft er eftir settum for-
manni bandarísku flugslysanefndar-
innar, Robert Sumwalt, í fjölmiðl-
inum Alaska Dispatch News að
menn geri ekki mistök í tómarúmi,
oft sé um að ræða atriði sem tengist
skipulaginu.
„Þeir eru hluti af kerfi – og það
er of auðvelt að segja bara að flug-
maðurinn hafi klúðrað hlutunum,“
segir Robert Sumwalt.
„Ef maður skoðar þessa banda-
rísku skýrslu til samanburðar og
hefur í huga þá vitneskju sem til er
um hvernig sumir hjá Mýflugi virðast
hafa hagað sér á þessari sjúkraflugvél
og þær aðfinnslur sem gerðar voru,
meðal annars af lækninum sem
þjónaði sjúkrafluginu, þá er afar ein-
kennilegt að ekkert sé um slík atriði
fjallað í skýrslunni,“ segir Mikael.
Mikael segir að í íslensku skýrsl-
unni sé ekkert tekið á þeim fyrirtæk-
iskúltur sem verið hafi hjá Mýflugi og
falið í sér að menn komust upp með
ýmiss konar glæfraflug. Þar er sagt að
einstaka flugmenn hafi talið frávik
frá vinnureglum í lagi en að stjórn-
endur fyrirtækisins hafi ekki liðið
slíkt. Það segir Mikael ekki rétt.
Þá hafi Mýflug komið fram breyt-
ingum á drögum skýrslunnar þann-
ig að í lokaútgáfunni sé fullyrt að
þremur mánuðum fyrir slysið hafi
á námskeiði hjá fyrirtækinu verið
undirstrikað að frávik frá starfs-
reglum væru ekki ásættanleg.
„Ég vil taka fram að innan Mýflugs
eru gríðarlega góðir og færir einstakl-
ingar,“ segir Mikael sem af skýrslunni
segir helst mega ráða að lágflugið yfir
akstursbrautinni þann dag sem slysið
varð hafi verið einstakt tilvik þótt
mörg dæmi um annað liggi fyrir.
„Flugmenn sem ég talaði við löngu
fyrir þetta slys áttu þann draum að
komast til Mýflugs af því að það
var svo mikið frjálsræði þar,“ segir
Mikael. „Miðað við þessa banda-
rísku skýrslu spyr maður sig hvort
rannsóknarnefndin hér hafi getu og
þekkingu til að taka á svona málum.
Okkur kemur við hvað varð til þess að
þetta óhapp varð, til þess að hægt sé
að koma í veg fyrir að slíkir atburðir
gerist aftur.“ gar@frettabladid.is
Telur rannsókn flugslyssins
mikinn hvítþvott á Mýflugi
Bróðir sjúkraflutningamanns sem lést í flugslysi við Akureyri sumarið 2013 dregur í efa getu rannsóknar-
nefndar flugslysa til að skila fullnægjandi niðurstöðum í slíkum málum. Algerlega vanti að varpa ljósi á
starfsumgjörð flugrekandans. Hann segir menn hafa komist upp með ýmiss konar glæfraflug hjá Mýflugi.
Mikael Tryggvason er bróðir Péturs Tryggvasonar sem fórst er hann var á heimleið með sjúkraflugvélinni TF-MYX.
Það er of auðvelt að
segja bara að
flugmaðurinn hafi klúðrað
hlutunum.
Robert Sumwalt, formaður Banda-
rísku flugslysanefndarinnar NTSB
Okkur kemur við
hvað varð til þess að
þetta óhapp varð til þess að
hægt sé að koma í veg fyrir
að slíkir atburðir gerist aftur.
Mikael Tryggvason
TENERIFE
Stökktu til
Netverð á mann m.v. 2 fullorðna í gistingu.Stökktu
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir á
sk
ilja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra.
Frá kr.
89.995
m/allt innifalið
12. júlí í 7 nætur
Frá kr.
99.995
m/allt innifalið
13. júlí í 11 nætur
saMkEPPni Fyrirhugaðri niður-
fellingu viðbótarafsláttar Íslands-
pósts til söfnunaraðila hefur verið
frestað. Þetta var gert með bráða-
birgðaákvörðun Póst- og fjarskipta-
stofnunar (PFS). Framkvæmdastjóri
Félags atvinnurekanda (FA) fagnar
ákvörðuninni.
Söfnunaraðilar eru fyrirtæki á borð
við Burðargjöld og Póstmarkaðinn
en þau sjá um að safna pósti frá stór-
notendum, sortera hann og miðla
áfram til Íslandspósts. Síðastnefnda
fyrirtækið hefur einkarétt á dreifingu
bréfa undir 50 grömmum.
Íslandspóstur tilkynnti aðilum
ákvörðun sína 7. apríl síðastliðinn
og átti afslátturinn að falla niður frá
og með 1. september. Niðurstaða
PFS er í samræmi við fyrri ákvarðanir
stofnunarinnar um að söfnunaraðilar
ættu að njóta viðbótarafsláttar frá
gjaldskrá Íslandspósts.
„Við fögnum ákvörðuninni en
þetta er eiginlega yfirgengileg ósvífni
af hálfu Póstsins. Blekið var varla
þurrt á sátt Íslandspósts við Sam-
keppniseftirlitið, sem átti að stuðla
að skárri samkeppnisháttum fyrir-
tækisins, þegar það ákvað að afnema
viðbótarafsláttinn,“ segir Ólafur
Stephensen, framkvæmdastjóri FA.
„Það hlýtur að vera hlutverk stjórn-
ar Íslandspósts, sem fjármálaráðherra
skipar, og eftir atvikum þeirrar eftir-
litsnefndar sem Samkeppniseftirlitið
hefur sett til að hafa eftirlit með því að
sáttin sé haldin, að tryggja að stjórn-
endur fyrirtækisins haldi sig innan
ramma laga og reglna og starfi í sátt
við umhverfi sitt. Þetta mál sýnir að
sáttin virðist litlu hafa breytt um
framgöngu þeirra gagnvart keppi-
nautum.“ – jóe
Pósturinn fær ekki að fella niður afslátt
Íslandspóstur hefur einkarétt á að bera út bréf undir 50 g. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
1 . j ú l í 2 0 1 7 l a u G a r D a G u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a B l a ð i ð
0
1
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
3
C
-0
D
E
0
1
D
3
C
-0
C
A
4
1
D
3
C
-0
B
6
8
1
D
3
C
-0
A
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
8
0
s
_
3
0
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K