Fréttablaðið - 01.07.2017, Blaðsíða 10
Lýðræðislegi sambands-flokkurinn (DUP) á Norð-ur-Írlandi samþykkti í vikunni að styðja minni-hlutastjórn Íhaldsflokks-ins á Bretlandi undir for-
sæti Theresu May. Flokkurinn á tíu
þingsæti og er fimmti fjölmennasti
þingflokkur Bretlands. Þurfti May að
leita til hans eftir að Íhaldsflokkur-
inn tapaði meirihluta sínum í þing-
kosningum nýverið.
Eftir kosningar tóku við nokkurra
vikna samningaviðræður og varð
niðurstaðan að mynda ekki sam-
steypustjórn. Þess í stað var ákveðið
að verja milljarði punda í uppbygg-
ingu á Norður-Írlandi gegn því að
DUP styddi ríkisstjórnina í mikil-
vægum atkvæðagreiðslum.
Í samningnum segir að DUP styðji
ríkisstjórnina þegar atkvæði eru
greidd meðal annars um vantraust,
fjárlög og útgöngu Bretlands úr Evr-
ópusambandinu. Þá kveður samn-
ingurinn á um að Íhaldsflokkurinn
hætti við áform sín um að draga úr
afslætti eldri borgara af húshitun svo
fátt eitt sé nefnt.
Samstarf stærsta flokks Bretlands
við stærsta flokk Norður-Írlands
hefur hins vegar vakið mikla reiði
stjórnarandstæðinga. Er vísað til þess
að afstaða flokksins í hinum ýmsu
málum sé afar íhaldssöm og íhalds-
samari en Bretar séu vanir.
Vildu bjarga Ulster frá
samkynhneigð
Árið 1977 lagði flokkurinn af stað í
herferð undir forystu formannsins
þáverandi, Ians Paisley. Nefndist her-
ferðin „Save Ulster from Sodomy“,
sem myndi ef til vill útleggjast sem
„Björgum Ulster frá kynvillu“ á góðri
íslensku. Meginmarkmið herferðar-
innar var að koma í veg fyrir að sam-
kynhneigð yrði gerð lögleg.
Árin á undan hafði sú þróun orðið
á Bretlandi að heimila samkyn-
hneigð. Til að mynda var slíkt gert á
Englandi og í Wales árið 1967.
Herferðin grundvallaðist á þeirri
trú Paisleys að í Biblíunni stæði að
samkynhneigð væri synd. Slíkt ætti
ekki að leyfa í ríki er byggði lög sín
á kristnum gildum. Eitt slagorð her-
ferðarinnar var til að mynda „Breyt-
ingar á þessum lögum munu kalla
bölvun Guðs yfir Norður-Íra“.
Flokkurinn náði hins vegar ekki að
koma í veg fyrir afglæpavæðinguna
en Mannréttindadómstóll Evrópu
úrskurðaði árið 1981 að Bretar brytu
mannréttindalög með því að neita
að afglæpavæða samkynhneigð.
Varð samkynhneigð því lögleg á
Norður-Írlandi árið 1982.
DUP er þó enn andvígur sam-
kynhneigð. Ian Paisley yngri hefur
kallað samkynhneigð „ósiðlega, mis-
bjóðandi og ógeðslega“. Þá hefur Jim
Wells, sem var heilbrigðisráðherra
flokksins árið 2015, sagt að áróður
samkynhneigðra sé linnulaus og
aldrei verði hægt að gera þeim til
geðs. Wells hefur jafnframt sagt að
börn samkynja foreldra séu líklegri
til að vera beitt ofbeldi.
Andvíg samkynja hjónaböndum
Flokkurinn hefur alla tíð lagst gegn
samkynja hjónaböndum. Árið 2004
lagðist flokkurinn til að mynda
harkalega gegn frumvarpi um stað-
festa sambúð. Þegar það frumvarp
var samþykkt kom hins vegar ekki
til greina að samþykkja samkynja
hjónabönd og hefur flokkurinn bar-
ist gegn þeim af festu.
„Þeir hafa engin áhrif á mig með
því að hóta mér. Þeir herða mig bara
í afstöðu minni. Mér er alveg sama
um hvað fólk gerir en það skiptir
mig máli þegar fólk reynir að endur-
skilgreina hjónabandið,“ sagði for-
maðurinn Arlene Foster í viðtali árið
2016.
Samkynja hjónabönd eru ekki
lögleg á Norður-Írlandi og má rekja
ástæðuna fyrir því til afstöðu DUP
og kjósenda flokksins en samkynja
hjónabönd eru lögleg alls staðar
annars staðar á Bretlandi.
Könnun Ipsos Mori frá því 2015
sýndi fram á 68 prósenta stuðning
við samkynja hjónabönd og hefur
þingið margsinnis reynt að lögleiða
þau en DUP alltaf staðið í vegi fyrir
því.
Ekkert meðgöngurof á
Norður-Írlandi
Arlene Foster hét því í fyrra að bresk
lög um meðgöngurof frá árinu 1967
yrðu aldrei innleidd á Norður-
Írlandi. „Ég myndi ekki vilja að með-
göngurof yrði jafnaðgengilegt hér og
á Englandi,“ sagði Foster. Hún sagði
þá að hún þyrfti þó að íhuga vand-
lega hvort meðgöngurof væri leyfi-
legt eftir nauðgun.
The Guardian greindi frá því í fyrra
að vegna laga um meðgöngu rof á
Norður-Írlandi óttuðust heilbrigðis-
starfsmenn að vera fangelsaðir fyrir
að gefa sjúklingum ráðleggingar er
vörðuðu meðgöngurof. „Það er mik-
ill ótti í okkar röðum. Fólk er hrætt
um að eitthvert okkar verði dæmt
til fangelsisvistar,“ sagði Carolyn
Bailie, formaður félags kvensjúk-
dómalækna á Norður-Írlandi, við
The Guardian.
Samkvæmt gildandi lögum á
Norður-Írlandi er meðgöngurof
einungis leyfilegt ef það þykir nauð-
synlegt vegna heilsu konunnar.
Efast um loftslagsbreytingar
Við lestur á kosningastefnuskrá
DUP frá því í sumar fann Frétta-
blaðið ekkert um stefnu flokksins í
loftslagsmálum. Sé hins vegar litið
til nýlegrar sögu flokksins má sjá að
miklar efasemdaraddir heyrast úr
flokknum um hvort loftslagsbreyt-
ingar af mannavöldum séu raunveru-
legt vandamál.
Sammy Wilson er þingmaður
flokksins og var umhverfisráðherra
Norður-Írlands frá 2008 til 2009.
Wilson hefur haldið því fram að
hugmyndin um loftslagsbreytingar
af mannavöldum sé „mýta sem bygg-
ist á lélegum rannsóknum“ og „hys-
terísk gervitrú“.
Í ráðherratíð sinni sagði Wilson að
hann myndi ekki trúa því í blindni
að nauðsynlegt væri að gjörbreyta
hagkerfi Norður-Írlands til að reyna
að stöðva loftslagsbreytingar. „Verja
ætti fjármunum í að laga okkur að
loftslagsbreytingum,“ sagði ráð-
herrann og hélt því fram að loftslags-
breytingar væru náttúrulegar, ekki af
mannavöldum.
Þeir einu sem vildu Brexit
DUP var eini flokkurinn á norður-
írska þinginu sem studdi útgöngu
Bretlands úr Evrópusambandinu. Því
er vel við hæfi að flokkurinn styðji
ríkisstjórn May í því markmiði.
Þó vill flokkurinn ekki svokallað
„hart Brexit“ enda vill hann forðast
stranga landamæragæslu á landa-
mærunum við Írland. „Enginn vill
hart Brexit, það sem við viljum er
raunhæf áætlun til að ganga út úr
Evrópusambandinu. Um það sner-
ist atkvæðagreiðslan,“ sagði Arlene
Foster nýverið.
Sköpunarkenningin vinsæl
Líkindi skoðana flokksmanna DUP
við stjórnmálaskoðanir bandaríska
biblíubeltisins einskorðast ekki við
skoðanir á samkynhneigð og lofts-
lagsbreytingum.
Thomas Buchanan, þingmaður
flokksins, lýsti til að mynda stuðn-
ingi sínum í fyrra við herferð sem
miðaði að því að sköpunarkenn-
ingin yrði kennd í skólum til þess að
stemma stigu við framgangi þróun-
arkenningarinnar.
Þá hefur annar þingmaður, Edwin
Poots, lýst þeirri skoðun sinni að
jörðin hafi verið sköpuð fyrir 4.000
árum en ekki þeim 4.543 milljörðum
ára sem vísindamenn telja allflestir
að sé raunin. „Ertu að segja mér að
kúlur af geimryki hafi safnast saman
og sprungið? Það hefur margt
sprungið á Norður-Írlandi og ekkert
gott kom út úr því svo ég viti,“ sagði
Poots við Radio Times.
Skrautleg fortíð og
umdeild stefna DUP
Lýðræðislegi sambandsflokkurinn styður minnihlutastjórn Íhaldsflokksins á
Bretlandi. Flokkurinn á tíu þingsæti. Norður-Írar fá milljarð punda fyrir stuðn-
inginn. Saga flokksins og stefna er skrautleg og auðkennist af mikilli íhaldssemi.
Arlene Foster og Theresa May standa andspænis hvor annarri við undirritun samkomulagsins. NordicphoToS/AFp
Þórgnýr Einar
Albertsson
thorgnyr@frettabladid.is
Ég myndi ekki vilja
að meðgöngurof
yrði jafnaðgengilegt hér og á
Englandi.
Arlene Foster,
formaður DUP
Kynntu þér málið á 365.is
Glæsilegasta tískutímarit landsins
GLAMOUR
fylgir með
Stóra- og
Risapakkanum
Íslenska
1 . j ú l í 2 0 1 7 l A U G A R D A G U R10 f R é t t i R ∙ f R é t t A B l A ð i ð
0
1
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
3
C
-4
9
2
0
1
D
3
C
-4
7
E
4
1
D
3
C
-4
6
A
8
1
D
3
C
-4
5
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
0
8
0
s
_
3
0
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K