Fréttablaðið - 01.07.2017, Side 14
Helgin
Laugardagur:
17.00 Quicken Loans Golfstöðin
19.00 PGA meist. kvenna Golfst.
Sunnudagur:
15.00 Breiðablik - Þór/KA Sport
17.00 Quicken Loans Golfstöðin
19.00 PGA meist. kvenna Golfst.
19.00 Stjarnan - KR Sport
conor vill til rússlands
Írski Íslandsvinurinn og MMa-
ofurstjarnan conor McGregor
mætir Floyd Mayweather í
hnefaleikahringnum 26. ágúst í
las vegas eins og allir vita en nú
er ljóst hvað conor vill gera eftir
ofurbardagann við Mayweather.
dana White, forseti UFc, segir
frá því í viðtali við MMa Junkie
að conor vill næst mæta Khabib
nurmagomedov í bardaga um létt-
vigtarbeltið í UFc og hann vill að
bardaginn fari fram á heimavelli
rússans.
Khabib nurmagomedov og
tony Ferguson hafa átt að mætast
þrisvar sinnum á síðustu mán-
uðum. Það að tony Ferguson hafi
þurft að fara á sjúkrahús fyrir
síðasta bardaga hentar UFc bara
ágætlega núna því þeir gætu barist
um bráðabirgðabeltið á svipuðum
tíma og conor mætir Floyd. Þá er
bara eftir að setja upp bardaga um
heimsmeistaratitilinn í léttvigt.
„Khabib og tony verða að berjast.
Þetta gæti allt smollið frábærlega
saman. Þú veist hvað conor sagði
við mig? Hann sagðist vilja mæta
Khabib í rússlandi. Er hann æðis-
legur eða hvað? conor McGregor
er algjör helvítis einhyrningur og er
æðislegur. Hann er að fara að keppa
við Floyd Mayweather í hnefa-
leikum og á eftir því vill hann mæta
Khabib í
rússlandi,“
segir dana.
„Þetta er það
sem gerir
drenginn að
ofurstjörnu.
Á meðan
hinir og
þessir eru
grenjandi í
mér um að
þeir vilji ekki
gera hitt og
þetta þá vill
conor boxa
við Floyd og
berjast svo
við Khabib
í rússlandi.
zidanE sEldi soninn
Enzo zidane, sonur zinedine
zidane, knattspyrnustjóra real
Madrid, hefur verið seldur til
alavés. Hann skrifaði undir þriggja
ára samning við félagið.
Enzo, sem er elsti sonur zidanes,
er uppalinn hjá real Madrid.
Hann lék alls 78 leiki fyrir castilla,
varalið real Madrid, og skoraði sjö
mörk og gaf 15 stoðsendingar.
Enzo, sem er 22 ára, lék einn leik
fyrir aðallið real Madrid og skor-
aði í honum; 6-1 sigri á c-deildar-
liði cultural leonesa í spænska
konungsbikarnum.
alavés átti flott tímabil í vetur.
liðið lenti í 9. sæti spænsku úrvals-
deildarinnar og komst í úrslit
spænska konungsbikarsins.
Fótbolti sverrir ingi ingason staldr-
aði stutt við á spáni en hann gekk
í gær í raðir rússneska félagsins
rostov sem leikur í efstu deild þar
í landi. sverrir ingi spilaði síðari
hluta nýliðins tímabils með Gra-
nada sem féll úr spænsku úrvals-
deildinni.
„Ég vissi að staðan hjá Granada
var erfið þegar ég kom og var með
klásúlu í mínum samningi sem ég
gat nýtt mér til að semja við nýtt
lið,“ sagði sverrir ingi í samtali við
Fréttablaðið í gær en hann var þá
staddur í austurríki þar sem rostov
er nú í æfingaferð.
„rostov og Granada unnu vel
saman og komust að sanngjarnri
niðurstöðu. Þetta tók ekki langan
tíma en ég heyrði fyrst af áhuga
rostov fyrir tveimur vikum. Eftir
það byrjaði boltinn að rúlla fljótt,“
segir hann enn fremur.
Vilja aftur í Evrópukeppni
rostov hafnaði í sjötta sæti rúss-
nesku deildarinnar í vor en spilaði
í Meistaradeild Evrópu fyrir ára-
mót og Evrópudeild UEFa eftir
áramót, þar sem liðið féll úr leik
eftir tap fyrir Manchester United í
16 liða úrslitum.
„Þeir lögðu allt í sölurnar í Evr-
ópukeppninni og það bitnaði á
genginu í deildinni, þar sem rostov
endaði í sjötta sæti. liðið var bara
einu stigi frá því að komast aftur í
Evrópudeildina en markmiðið er
að komast aftur þangað inn eftir
að hafa fengið smjörþefinn af því,“
segir hann.
sverrir ingi vildi komast í sterkari
deild en B-deildina á spáni og ákvað
að stökkva á tilboðið þegar það
kom frá rússlandi. Fleiri lið höfðu
áhuga en rostov sýndi mestan
áhuga.
„Það skipti mig miklu máli hvað
klúbburinn sótti þetta hart og
það er litið á mig sem lykilmann
í liðinu. Það er mikilvægt að fara
til félags þar sem mér er ætlað
stórt hlutverk og þeir virðast bera
mikið traust til mín.“
Fá nýjan leikvang
sverrir ingi var í fríi á
Ítalíu með fjölskyldu
sinni en brá sér yfir
til austurríkis til
að ganga frá samn-
ingum. Hann eyðir
helginni með fjöl-
skyldunni en fer
svo aftur til móts
við liðið og hefur
æfingar með því.
d e i l d a r -
keppnin í rúss-
landi byrjar svo
í júlí, tveimur
vikum fyrr en
vanalega, þar sem
heimsmeistara-
keppnin fer fram
þar í landi næsta
sumar. sverrir
ingi telur að þetta
sé góður tímapunkt-
ur til að fara til rússlands og var
ekki smeykur við að taka það skref.
„Mér líst vel á allt það sem félag-
ið hafði fram að færa. Það er með
góða sýn á framtíðina og verður
spennandi að taka þátt í því.“
rostov-on-don verður ein af HM-
borgum rússlands og fær félagið
nýjan leikvang sem verður vígður í
desember. „Þetta er góður tími til að
koma til rússlands enda er verið að
leggja mikið til knattspyrnunnar út
af HM. Félagið sjálft hefur líka verið
mjög vaxandi síðustu ár og hefur
klúbburinn allt til alls.“
Meðmæli frá Ragnari
ragnar sigurðsson og sölvi Geir
ottesen léku báðir í rússlandi á
sínum tíma – ragnar með Kras-
nodar sem er aðeins 200 km frá
rostov-on-dan.
„Ég talaði lengi við ragga og hann
fór yfir þetta allt saman með mér.
Hann bar sjálfur góða sögu af dvöl
sinni í rússlandi og sagði að hann
hefði ekki viljað sleppa þessari
reynslu. Hann hjálpaði mér mikið
í að taka þessa ákvörðun.“
samningur sverris gildir til næstu
þriggja ára með möguleika á eins árs
framlengingu. Þetta verður hans
fjórða félag í jafn mörgum löndum
en hann hefur spilað með viking í
noregi og lokeren í Belgíu auk Gra-
nada.
„Ég hef stundum stoppað stutt við
og stundum lengur. Maður verður
bara að taka eitt ár í einu í fótbolt-
anum en ég er opinn fyrir því að
vera í rússlandi í einhvern tíma,
styrkja minn feril og taka svo næsta
skref eftir það.“
eirikur@frettabladid.is
Gott að fara til Rússlands núna
Sverrir Ingi Ingason verður þriðji íslenski leikmaðurinn sem spilar í rússnesku úrvalsdeildinni en hann
skrifaði í gær undir þriggja ára samning við Rostov. Blikinn fyrrverandi vildi komast í sterkari deild.
Sverrir Ingi í leik
með Granada.
FRéttABLAðIð/GEtty
Þýskaland Evrópumeistari hjá U21 árs liðum eftir sigur á Spáni
Framtíðin er björt Þýskaland vann 1-0 sigur á Spáni í úrslitaleik EM U21 árs liða sem fram fór í Póllandi í gærkvöld. Það var Mitchell Weiser, leik-
maður Herthu frá Berlín, sem skoraði eina mark leiksins með skalla þegar fimm mínútur voru til leikhlés. Þjóðverjar fögnuðu vel. FRéttABLAðIð/AFP
Þór - HK 3-0
1-0 Aron Lárusson (37.), 2-0 Loftur Eiríksson
(73.), 3-0 Jóhann Hannesson (77.).
Selfoss - Fram 1-1
1-0 Alfi Lacalle (12.), 1-1 Orri Gunnarsson
(58.).
Inkasso-deildin
Nýjast
Það skipti mig
miklu málu hvað
klúbburinn sótti þetta hart
og það er litið á mig
sem lykilmann í
liðinu.
Sverrir Ingi Ingason
1 . j ú l í 2 0 1 7 l A U G A R D A G U R14 S p o R t ∙ F R É t t A b l A ð i ð
sport
0
1
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
3
C
-3
0
7
0
1
D
3
C
-2
F
3
4
1
D
3
C
-2
D
F
8
1
D
3
C
-2
C
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
8
0
s
_
3
0
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K