Fréttablaðið - 01.07.2017, Page 16
sem keppa til dæmis í axarkasti,
afkvistun trjábola og sporaklifri.
Það er nánast eins og að fylgjast með
sirkuslistum og ótrúlega skemmti-
legt, nokkuð sem fáir hafa í raun
upplifað,“ segir Guðfinna frá.
„Við bjóðum upp á ýmislegt
fleira í ár. Krakkar geta lært að
tálga úr við úr skóginum og læra
að beita hnífnum rétt. Við grillum
yfir opnum varðeldi, snúrubrauð,
pylsur og fleira. Þá er boðið upp á
upplifunargöngu og fólki sagt frá
skóginum. Það kynnist skóginum
á annan hátt,“ segir Guðfinna sem
segir æ fleiri sækjast eftir þeim heil-
næmu og slakandi áhrifum sem það
hefur að njóta útivistar í skógi.
Í Japan fer fólk í skógarbað að
læknisráði. Það gengur einfald-
lega um í skóginum og tekur inn
þessi heilnæmu áhrif,“ segir Guð-
finna. „Skógurinn er magnaður. Við
reisum líka Teepeetjald eins og gert
var í fyrra. Í því verður seiðkona og
seiðandi stemning. Þá hamrar eld-
smiðurinn Þórarinn heitt járn yfir
eldi og kynnir fornt handverk svo
það er margt spennandi sem gestir
geta kynnt sér,“ segir hún. Hátíðin
stendur yfir frá klukkan 13 til 17.
kristjanabjorg@frettabladid.is
Það hefur orðið vakning í úti-vist á Íslandi. Fólk sækir meira í náttúruna en áður,
tínir sveppi og jurtir og fleira. Heið-
mörk er frábært útivistarsvæði sem
er sífellt meira nýtt,“ segir Guðfinna
Mjöll Magnúsdóttir skógarleika-
stjóri. Skógarleikarnir eru haldnir
í Furulundi í Heiðmörk og Skóg-
ræktarfélag Reykjavíkur heldur
leikana þriðja árið í röð. „Það var
mikil stemning í fyrra. Þetta er
sannkölluð hátíð sem snýst svo-
lítið um keppni skógarhöggsmanna
Skógarlíf
í Furulundi
Skógræktarfélag Reykjavíkur efnir til Skóg-
arleika í Furulundi í dag. Skógarhöggsmenn
keppa til dæmis í axarkasti, sporaklifri og
bolahöggi og gestum boðið upp á grillmat.
Guðfinna Mjöll skógarleikjastjóri ásamt vöskum skógarhöggsmönnum við undirbúning í Heiðmörk. Fréttablaðið/antonbrink
Í fyrra sýndi eldsmiður fornt handverk yfir eldi.
Um helgina, af hverju ekki að …
Farðu
Á Lines, þátttökuverk með gagn-
virkum hljóðfærum í Svarta boxinu
í Norræna húsinu. Línur fastar við
veggi, gólf og hangandi úr lofti mynda
þrjú hljóðfæri sem gestir spila á með
því að elta þær og snerta.
GenGur um Vesturbæinn
„Ég á fríhelgi og ætla að nýta hana
bara í að slaka á. Ég fer líka í eina eða
tvær gönguferðir um
Vesturbæinn en ég
undirbý mig undir
þátttöku í Reykja-
víkurmaraþoninu,“
segir Valdimar Guð-
mundsson tón-
listarmaður.
HorFðu
Á nýtt
myndband
sveitarinnar
Prins Póló við
lag hennar
Ölkærustuna
sem var gert í
samvinnu við
listamanninn
einhverfa Ísak
Óla.
Lestu
Min Kamp. Norski rit-
höfundurinn Karl Ove
Knausgaard hefur á
undanförnum árum
notið ómældra vin-
sælda fyrir sagnabálk-
inn Min Kamp. Hluti
hans hefur nú verið
þýddur á íslensku og
er óhætt að mæla
með lestrinum.
borðaðu
Grillaðan halloumiost
að hætti Kýpurbúa
með vatnsmelónu
og myntu. Halloumi
er gerður úr blöndu
geita- og sauða-
mjólkur og er ein
vinsælasta varan
sem Costco-óðir
Íslendingar kaupa í
versluninni. Hann er
vinsælt að steikja og
grilla, nota í salöt og
borða með grænmeti.
Í Japan Fer FóLk Í skóG-
arbað að Læknisráði.
Það GenGur einFaLdLeGa
um Í skóGinum.
1 . j ú l í 2 0 1 7 l A U G A R D A G U R16 H e l G i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð
helgin
0
1
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
3
C
-1
C
B
0
1
D
3
C
-1
B
7
4
1
D
3
C
-1
A
3
8
1
D
3
C
-1
8
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
8
0
s
_
3
0
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K