Fréttablaðið - 01.07.2017, Síða 26

Fréttablaðið - 01.07.2017, Síða 26
Þurrkað grísalæri „jamón“ með melónu, geitaosti og truffluolíu. MYND/ IVAR VIVÅS Brakandi ferskt jarðarberjasalat, borið fram með súrdeigsbrauði og viðbiti. MYND/ IVAR VIVÅS Virðing fyrir sögu húss og verslunar Egils Jacobsen er í hávegum höfð á Loftinu, þar sem strangar og tvinnakefli liggja í hillum og hálfsaumuð föt á herðatrjám. MYND/ERNIR Inga á Nasa á Loftinu. MYND/BRYNJAR SNÆR Framhald af forsíðu ➛ Örvar er frægur fyrir gott bragð. Það er gott bragð af öllum mat sem hann eldar. „Já, góða bragðið er minn skjöldur og sverð, en einnig að vera heimilislegur og frjáls við eldamennskuna.“ Jacobsen Loftið er að leggja á borð í fyrsta sinn; diska, hnífa og gaffla. Á matseðlinum er samsuða af skandinavísku smurbrauði og suður- evrópsku tapas, en líka allt þar á milli, eins og fersk salöt og girnilegir eftirréttir. „Þessi samsuða býður upp á óendanlega möguleika,“ segir Örvar og það er unaðsleg angan í loftinu á Loftinu. „Við tapas-gerðina leikum við af fingrum fram, eins og tapas með gljáðum geitaosti, cho- rizo-pylsu, ristuðum furuhnetum og gulrótar- mauki. Síðan smyrjum við fjölkorna brauð með reyktum laxi eða bakaðri kindakæfu með stökku fleski og smá- lauk, og berum fram þurrkað grísa- læri með melónu og geitaosti. Meðal ómótstæðilegra eftirrétta er skyr brûlée með múslí og ávöxtum, borið fram í krukku, og súkkulaðibolla- kaka, sem engin kona fær staðist, borin fram í bolla,“ nefnir Örvar sem dæmi af matseðli Loftsins. Víst er að margir fá vatn í munninn þegar Örvar skammtar á diskana enda vanur að gleðja íslenska og útlenda munna. „Mataráhuginn kviknaði þegar ég var níu ára og tók fyrst til hendinni í eldhúsinu hjá pabba sem var hótelstjóri úti á landi. Ég kann því vel að taka á móti matargestum af öllum þjóðernum og hlakka til að kæta bragðlauka gesta hér á Loftinu.“ Jacobsen Loftið er í samstarfi við Bakarí Sandholt, Esju kjötvinnslu og Garðyrkjustöðina Ösp með brakandi ferskt og íslenskt hráefni til matar- gerðarinnar. „Við leggjum áherslu á ferskt gæðahráefni til matargerðar og höfum lagt vinnu í að para saman kokteila og bjór með hverjum rétti, sem lofar spennandi bragðupp- lifun,“ segir Örvar og bendir á að ekki þurfi að panta borð á Loftinu. „Bara að mæta! Maginn verður sæll og stemningin villt!“ Inga á Nasa á Loftinu Við barinn stendur nýr skemmtana- stjóri og einn rekstraraðila Jacobsen Loftsins, sjálf Inga á Nasa, og nú Inga á Loftinu. Inga sér um næturhlið Loftsins og byrjaði á að lækka aldurs- takmarkið niður í 22 ár til að fá yngra fólk í húsið. Það liggur líka nýr taktur í loftinu. Í kvöld fær DJ Styrmir gesti Loftsins til að hrista skankana á dans- gólfinu, og í sumar bíða DJ Dóra Júlía, Símon og fleiri eftir að komast að með plötusafnið. „Loftið hefur notið vinsælda sem lounge-kokteilstaður með opnun síðdegis en nú galopnum við dyrnar klukkan ellefu á morgnana og framreiðum hádegismat alla virka daga. Seinnipartinn verður enn hægt að detta inn í Happy hour, fá sér svo dýrindis kvöldverð hjá Örvari og enda kvöldið í trylltum dansi með mér,“ segir Inga sem veit ekkert skemmtilegra en að skemmta fólki. Hún hefur reynsluna eftir að hafa stofnað og rekið Nasa, einn vin- sælasta skemmtistað lýðveldisins, þar til honum var lokað eftir tólf ára stanslaust stuð. „Á Nasa stóð ég allar vaktir sjálf og fékk aldrei leiða á því. Um leið og ég steig inn í næturlífið á Loftinu fann ég aftur hvað mér finnst gaman. Ég hef yndi af því að skemmta fólki og Íslendingar eru með skemmtilegasta fólki þegar þeir lyfta sér upp. Hér fer fólk út til að hafa gaman og það hefur líka gaman,“ segir Inga sem er einnig Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@365.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433 umboðsmaður Páls Óskars og þekkt fyrir gleði og höfðinglegar móttökur. „Ef röðin var löng á Nasa fór ég út með bakka af skotum á línuna og sé ekki fyrir mér að ég muni láta af því hér. Það eru enda forréttindi að fá að verða samferða landsmönnum um þessa gleðivegu mannlífsins, og alltaf gaman.“ Til miðnættis er Jacobsen Loftið nú orðið að mat- og kokteilastað en þá tekur við aðeins villtari stemning og meira stuð, að sögn Ingu, enda trekki dansgólfið alltaf að. „Andrúmsloftið er heimsborgara- legt og hingað koma íslenskir gestir í bland við aðra frá öllum heimshorn- um í kokteil, mat og snúning. Aldurs- hópurinn er breiður og allir njóta lífsgleðinnar saman. Umgjörðin er líka heillandi, í einu fegursta húsi Reykjavíkur, og unun að horfa á mannlíf Austurstrætis innan um sögu hússins sem er gert hátt undir höfði á Loftinu.“ Loftið er í Austurstræti 9. Opið frá klukkan 11 til 22 virka daga og frá klukkan 16 um helgar. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 . j ú L Í 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R 0 1 -0 7 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 0 8 0 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 3 C -2 B 8 0 1 D 3 C -2 A 4 4 1 D 3 C -2 9 0 8 1 D 3 C -2 7 C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 8 0 s _ 3 0 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.