Fréttablaðið - 01.07.2017, Side 42

Fréttablaðið - 01.07.2017, Side 42
 12 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 . j ú l í 2 0 1 7 LAUGARDAGUR Guesthouse Want to hire people for part-time work in cleaning and general work at a guesthouse. Applications can be send to staff@nordurey.is Neytendastofa óskar eftir að ráða metnaðarfullan einstakling til starfa á Mælifræðisviði stofnunarinnar. Um er að ræða faglega krefjandi starf þar sem m.a. reynir á tæknikunnáttu er varðar kvarðanir mælitækja, gerð kvörðunarvottorða og rekjanleika. Um er að ræða margvísleg áhugaverð verkefni er varða mælifræði, s.s. kvarðanir á prófunarstofu Neytendastofu og á vettvangi hjá innlendum fyrirtækjum og eftirlit með notkun mælitækja hér á landi. Um framtíðarstarf er að ræða og starfshlutfall er 100%. Helstu verkefni eru: • Kvörðun, viðhald og umsjón mæligrunna Neytendastofu. • Umsjón og viðhald tækjaskrár kvörðunarþjónustu Neytendastofu. • Móttaka mælitækja viðskiptavina, kvarðanir tækjanna og frágangur. • Þátttaka í mótun og viðhaldi á gæðastjórnunarkerfi fyrir kvarðanir. • Þátttaka í samstarfi um þróun reglna sem gilda um mælifræði og mælifræðilegt eftirlit. Menntun og hæfniskröfur • Háskólapróf á sviði tækni- eða raungreina, s.s tæknifræði, verkfræði, eðlisfræði, eða sambærilegum greinum. • Góð íslensku- og enskukunnátta er krafa og færni í einu Norðurlandamáli æskileg. • Almenn þekking og reynsla á meðferð og prófun mælitækja æskileg. • Frumkvæði og nákvæmni. • Skipulags- og samskiptahæfni. • Viðsýni, jákvæðni, leiðtogahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum. Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningum Fjármálaráðu- neytisins við viðkomandi stéttarfélag. Vakin er athygli á ákvæðum laga nr 96/2000, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Umsóknir skal fylla út á heimasíðu Neytendastofu www.neytendastofa.is eða www.starfatorg.is Umsóknarfrestur er til og með föstudags 7. júlí 2017. Umsóknir geta gilt í sex mánuði. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar um starfið veita Guðmundur Árnason, sviðsstjóri Mælifræðisviðs, Benedikt G. Waage, sérfræðingur í kvörðunum og Tryggvi Axelsson, forstjóri í s. 510 1100. Netföng eru á heimasíðu Neytendastofu. Mælifræðisvið Neytendastofu fylgist með að mælingar hér á landi uppfylli alþjóðakröfur og að alþjóðlega mælieiningakerfið SI sé notað á Íslandi. Mælifræðisvið annast eftirlit með lögum um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn og reglum settum samkvæmt þeim; varðveitir landsmæligrunna og kvarðar mælitæki. Tæknilegur sérfræðingur á Neytendastofu Neytendastofa Borgartúni 21 • 105 Reykjavík • Sími: 510 1100 • Bréfasími: 510 1101 postur@neytendastofa.is • www.neytendastofa.is Helstu verkefni og ábyrgð Ber ábyrgð á rekstri heilsugæslustöðvar gagnvart framkvæmdastjórn Skipuleggur heilsugæsluþjónustu í umdæmi stöðvar Þróar nýjungar og vinnur að breytingum í starfsemi Mótar, innleiðir og endurskoðar verkferla Byggir upp og styður við teymisvinnu og þverfaglegt samstarf Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu Stuðlar að gæðaþróun og árangursmati í starfi stöðvar Tekur þátt í gerð áætlana varðandi rekstur, þjónustu og áherslur í starfsemi stöðvar Er faglegur yfirmaður á sínu sviði Sinnir klínísku starfi eins og aðstæður leyfa Hæfnikröfur Heimilislæknir Reynsla af starfi í heilsugæslu Þekking, reynsla og hæfni á sviði stjórnunar Reynsla af þróunarstarfi og breytingastjórnun æskileg Nám í stjórnun æskilegt Hæfni í mannlegum samskiptum Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri í starfi Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt Aðrir eiginleikar Vilji til að veita framúrskarandi þjónustu og efla heilbrigði íbúa svæðisins Áhugi og hæfni til að leiða þverfaglegt starf heilsugæslunnar Áhugi og hæfni til að nýta aðferðafræði straumlínustjórnunar Vilji til að skapa gott starfsumhverfi Nánari upplýsingar Starfshlutfall er 100% og verður ráðið í starfið til 3 ára frá og með 1. september 2017 eða eftir nánara samkomulagi. Upplýsingar veitir: Svanhvít Jakobsdóttir, forstjóri, s. 585-1300, svanhvit.jakobsdottir@heilsugaeslan.is Ábyrgð – Fagmennska – Traust – Þjónusta – Framþróun Heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaður í heilbrigðis- þjónustunni þar sem ólíkum þörfum notenda er mætt og þeim leiðbeint yfir í önnur kerfi heilbrigðisþjónustunnar eftir því sem þörf er á. Flóknari vandamál, þörf fyrir fjölbreyttari úrræði og skortur á sérhæfðu starfsfólki kallar á nýja nálgun í starfsemi heilsugæslustöðva. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur gert breytingu á skipulagi og rekstri heilsugæslustöðva sem miðar að því að auka þjónustu við notendur, nýta betur fjármuni og að bæta vinnuumhverfi starfsmanna. Til að gera þjónustuna markvissari er lagt upp með teymisvinnu sem grunnstef í starfsemi stöðva, ásamt innleiðingu aðferða straumlínustjórnunar. Þverfagleg teymi heilbrigðisstarfsfólks munu auðvelda stöðvum að taka á flóknum vandamálum með fjölbreyttum úrræðum. Í breyttu skipulagi fær starfsfólk aukið sjálfstæði til að móta starfsemina og til að útfæra þjónustu sem mætir þörfum íbúa og uppfyllir um leið kröfur um árangur samkvæmt mælingum og mati. Svæðisstjóri og fagstjóri lækninga Heilsugæslunni Grafarvogi Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir laust til umsóknar starf svæðisstjóra Heilsugæslunnar Grafarvogi. Svæðisstjóri mun jafnframt gegna samhliða starfi fagstjóra lækninga samkvæmt nýju skipulagi. Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf sem reynir á frumkvæði, stefnumótandi hugsun og samskiptahæfileika. Umsóknarfrestur er til og með 10. júlí 2017. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands. Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast til Svövu K. Þorkelsdóttur, mannauðsstjóra Heilsugæslu höfuðborgar- svæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Ákvörðun um ráðningu í starfið byggist á viðtölum við umsækjendur og á innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningar. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Sækja skal um á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (www.heilsugaeslan.is) undir laus störf eða á Starfatorgi (www.starfatorg.is). Ef þú ert með rétta starfið — erum við með réttu manneskjuna www.capacent.is Ráðgjafar okkar búa yfir víðtækri þekkingu á atvinnulífinu og veita trausta og persónu lega ráðgjöf. Aðstoð á tannlæknastofu Aðstoð óskast á sérhæfða tannlæknastofu á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða 60% starf. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. ágúst. Umsóknir sendist á box@frett.is merkt „tannlæknastofa“ 0 1 -0 7 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 0 8 0 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 3 C -0 4 0 0 1 D 3 C -0 2 C 4 1 D 3 C -0 1 8 8 1 D 3 C -0 0 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 8 0 s _ 3 0 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.