Fréttablaðið - 01.07.2017, Page 45

Fréttablaðið - 01.07.2017, Page 45
ATVINNUAUGLÝSINGAR 15 L AU G A R DAG U R 1 . j ú l í 2 0 1 7 NÆTURVAKTIR Í NETTÓ GRANDA Umsóknir sendist á grandi@netto.is Umsóknarfrestur er til 10. júlí nk. Allar nánari upplýsingar veitir: Ari Páll Samúelsson, verslunarstjóri á staðnum eða í síma: 773 - 3007 Nettó Granda leitar að öflugum starfskröftum: • Starfsmönnum á næturvaktir 23:00 - 08:00 • Unnið þriðjudag til þriðjudags aðra hvora viku • Aðeins 18 ára og eldri koma til greina Áhersla er lögð á styrkleika í mannlegum samskiptum, sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfni, reglusemi og árvekni í hvívetna. Staða leikskólastjóra við leikskólann Borg Skóla- og frístundasvið Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu leikskólastjóra í Borg. Borg er sex deilda leikskóli sem rekinn er á tveimur starfsstöðum, við Maríubakka og Fálkabakka í Breiðholti. Leiðarljós í starfi leikskólans eru jákvæð samskipti og gleði. Unnið er eftir hugmyndafræði PBS um stuðning við jákvæða hegðun. Borg er Grænfánaskóli og áhersla er lögð á umhverfismennt, heilbrigði og hollt mataræði. Leikskólinn fékk hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs 2016 fyrir verkefnið Sumarskóli elstu barna í Bakkahverfi ásamt Bakkaborg og Breiðholtsskóla og er þátttakandi í verkefninu Læsi allra mál, sem er samstarfsverkefni leik- og grunnskóla í Breiðholti. Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtoga hæfileikum og er tilbúinn til að byggja upp öflugt og metnaðarfullt leikskólastarf í Borg. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Meginhlutverk leikskólastjóra er að: • Vera faglegur leiðtogi leikskólans og móta framtíðarstefnu hans innan ramma laga, reglugerða, aðalnámskrár og stefnu Reykjavíkurborgar. • Hafa yfirumsjón með daglegu starfi í leikskólanum. • Skipuleggja foreldrasamstarf í samvinnu við foreldra og starfsmenn. • Hvetja til þróunar og nýbreytni í leikskólastarfi. • Stýra rekstri leikskólans á grundvelli fjárhagsáætlunar. • Bera ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun. • Skipuleggja tengsl skólans við ýmsa samstarfsaðila. Menntunar- og hæfniskröfur: • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf leikskólakennara. • Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á leikskóla- stigi. • Reynsla af stjórnun æskileg. • Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða. • Þekking á rekstri, áætlanagerð og fjármálastjórnun. • Lipurð og hæfni í samskiptum. • Sjálfstæði og frumkvæði. Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið leikskólakennari og greinargerð um framtíðarsýn umsækjanda á starf í leikskólanum. Ráðið verður í stöðuna frá 1. september 2017 eða eftir samkomulagi. Umsóknarfrestur er til og með 31. júlí 2017. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags stjórnenda leikskóla. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg M. Gunnlaugsdóttir, skrifstofustjóri fagskrifstofu leikskólamála, sími 411 1111. Netfang: ingibjorg.m.gunnlaugsdottir@reykjavik.is Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri. Árangur fyrirtækja ræðst af þekkingu, getu og reynslu starfsmanna. Hver einstök ráðning er mikilvæg fjárfesting og er hagur bæði fyrirtækis og viðkomandi einstaklings að vel takist til. Hafðu samband við okkur og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig. RÁÐNINGAR 0 1 -0 7 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 0 8 0 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 3 C -2 6 9 0 1 D 3 C -2 5 5 4 1 D 3 C -2 4 1 8 1 D 3 C -2 2 D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 8 0 s _ 3 0 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.