Fréttablaðið - 01.07.2017, Síða 58
Útfararstofa kirkjugarðanna
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Við önnumst alla þætti undir-
búnings og framkvæmd útfarar
ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og
umhyggju að leiðarljósi
og af faglegum metnaði.
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Ellert Ingason,
umsjón sálmaskrár
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir
síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
1919 Stofnendur Morgunblaðsins selja það nýstofnuðum
félagsskap sem kallast Fjelag í Reykjavík.
1922 Fyrsta útvarpsauglýsingin er send út í Bandaríkjunum.
1926 Landhelgisgæsla Íslands er stofnuð.
1928 Líflátshegning er afnumin á Íslandi og hafði ekki verið
beitt í næstum öld.
1931 Þýska loftskipið Graf Zeppelin kemur til Reykjavíkur
með póst og tekur hér fyrsta flugpóst til útlanda.
2000 Kristnihátíðin er sett á Þingvöllum.
2000 Eyrarsundsbrúin milli Danmerkur og Svíþjóðar er
opnuð.
Aviso Grille, snekkja Adolfs Hitlers,
kom til Íslands 2. júlí árið 1937 og
hafði hér viðdvöl í tvo daga en hélt
þá til Noregs. Verið var að kanna
sjófærni skipsins og voru engir far-
þegar um borð en áhöfninni gafst
tækifæri til að sjá Ísland og Noreg í
sjónhendingu.
Yfirmenn Aviso Grille fóru að
Gullfossi og Geysi í boði íslensku
ríkisstjórnarinnar og í heimsókn til
Hermanns Jónassonar forsætisráð-
herra. Hann fékk einnig að skoða
skipið en hvort hann fékk að líta
hina bleikmáluðu setustofu Hitlers
er ekki vitað.
Snekkjan var 2.600 rúmlestir
að stærð og í áhöfninni voru að
jafnaði 240 manns. Hún var notuð
af foringjanum við flotaæfingar,
hersýningar og eftirlitsferðir.
Þ etta g e r ð i st : 2 . j ú l í 1 9 3 7
Snekkja Adolfs Hitlers kom til Íslands
Aviso Grille - snekkja Hitlers
Merkisatburðir
Þær svafa Þórhallsdóttir sópransöngkona, ella Vala Ármannsdóttir horn-leikari og sigrún Magna Þórsteinsdóttir orgelleik-ari flytja íslensk sönglög
í bland við hátíðlega tóna fyrir horn
og orgel í akureyrarkirkju á morgun
klukkan 17, sunnudaginn 2. júlí. Þar
með hefja þær dagskrá sumartónleika
í akureyrarkirkju sem eru fastur punkt-
ur í menningarstarfi Norðurlands og
fagna nú 30 ára starfsafmæli.
„Hér verða tónleikar alla sunnu-
daga í júlímánuði og dagskráin sem
fyrr fjölbreytt og glæsileg,“ segir lára
sóley jóhannsdóttir fiðluleikari sem
nú sér um framkvæmd sumartónleika
í akureyrarkirkju í fyrsta sinn. „Þegar
ég tók við skipulagningunni síðasta
haust hafði fjöldi umsókna þegar
borist. Ásóknin er mikil og sumir tón-
leikarnir eru bókaðir um ár fram í tím-
ann,“ lýsir hún. „Við leitumst við að
hafa efnisvalið sem fjölbreyttast og að
orgel kirkjunnar, það dásamlega hljóð-
færi, fái notið sín. líka að þar komi
fram bæði reynslumiklir listamenn og
reynsluminni, þá á ég við hljóðfæra-
leikara sem eru að hefja feril sinn.“
lára segir tónleikaröðina hafa í gegn-
um árin verið vel sótta, bæði af heima-
mönnum og innlendum og erlendum
gestum. „Ég held að það skipti máli að
aðgangur er ókeypis svo allir eiga þess
kost að njóta stundarinnar. tónleika-
gestir eru af öllum stærðum og þar sem
hverjir tónleikar standa aðeins um
klukkustund henta þeir vel fyrir yngri
hlustendur. Þetta er eina klassíska
tónleikaröðin með tónleikum í fullri
lengd sem skipulögð er á akureyri. Hún
skiptir því heilmiklu máli fyrir listalífið
á staðnum.“ gun@frettabladid.is
Að orgelið fái notið sín
Í þrjátíu ár hafa Sumartónleikar í Akureyrarkirkju átt sinn sess í menningarlífinu
norðan heiða. Á morgun er komið að fyrstu tónleikum þessa árs í tónleikaröðinni.
Svafa Þórhallsdóttir, Ella Vala Ármannsdóttir og Sigrún Magna Þórsteinsdóttir hefja leikinn þetta árið. Mynd/LÁrA SóLEy JóHAnnSdóttir
Lára Sóley heldur í alla spotta.
1 . j ú l í 2 0 1 7 l A U G A R D A G U R26 t í m A m ó t ∙ F R É t t A B l A ð i ð
tímamót
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 512 5000.
0
1
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
3
C
-1
2
D
0
1
D
3
C
-1
1
9
4
1
D
3
C
-1
0
5
8
1
D
3
C
-0
F
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
8
0
s
_
3
0
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K