Fréttablaðið - 01.07.2017, Qupperneq 62
Lestrarhestur vikunnar
Ellen
Júlíusdóttir
Að venju efna Borgarbókasafnið, Bókmenntaborgin og Forlagið til
sumarlesturs meðal barna. Á bókasafninu skrifa þau nafn á áhuga-
verðri bók sem þau hafa lesið á bókarkjöl ásamt nafni, aldri og síma-
númeri. Í hverri viku fær einn heppinn þátttakandi bók að gjöf og í lok
sumarsins er veittur einn veglegur vinningur.
Leikurinn
Konráð
á ferð og flugi
og félagar
Á grasflöt sem þau félag-
arnir gengu fram á voru
víða hvítar breiður af ein-
hverjum litlum blómum.
„Forvitnilegt væri að vita
hvaða blóm þetta er,“
sagði Konráð. „Til hvers?“
spurði Kata. „Þarftu alltaf
að vita hvað allt heitir,
má þetta ekki bara vera
þarna?“ Kata var ber-
sýnilega ekki í sínu besta
skapi í dag. „Ég er kannski
bara svona fróðleiksfús,“
sagði Konráð.
krakkar Getur þú hjálpað Konráði? Veist þú hvað þetta blóm heitir? Er þetta:
A. HvítsmáriB. SmjörblómD. Vallhumall
?
?
?
SVAR: A
256
Hvað er skemmtilegast við
bækur? Að lesa þær, lesa sögur
og skemmta sér með þær.
Hvaða bók lastu síðast og um
hvað var hún? Held það hafi
verið Binnu B. Bjarna bók. Hún
var um Binnu og strák sem var
alltaf að stríða henni. Hún var að
reyna að segja honum að hætta
en hann hætti ekki, svo henti
hann boltanum hennar upp í tré.
Hann sótti svo boltann upp í tré
þegar hann áttaði sig á að hann
var að gera rangt.
Manstu eftir fyrstu bókinni sem
var í uppáhaldi hjá þér? Ég held
að það sé annaðhvort Láru-
bækurnar eða Binnu B. Bjarna-
bækurnar.
Hvernig bækur þykir þér
skemmtilegastar? Smá svona
erfiðar bækur með smáu letri
eins og er í fréttablöðunum.
Í hvaða skóla gengur þú? Ég er í
Langholtsskóla.
Ferðu oft á bókasafnið? Já,
stundum.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Gera bara allt í lífinu, vera með
fjölskyldunni minni og vinum
mínum.
Drottningin og
börnin hennar
Einn þátttakandi er valinn til að
vera drottningin (má líka vera
kóngur) og stendur eða situr út af
fyrir sig.
Hinir eru á afmörkuðu svæði og
taka sameiginlega ákvörðun um
hvað þeir þykjast hafa gert þann
daginn til að geta leikið það fyrir
drottninguna. Að því búnu fara þeir
á fund hennar og hún segir: „Hvað
gerðuð þið í dag börnin góð?“ Þá
byrja allir að leika með látbragði
það sem ákveðið hafði verið og
drottningin reynir að giska á hvað
það er.
Ef drottningin giskar á rétt hlaupa
börnin af stað og reyna að komast
inn á svæðið sem afmarkað var í
byrjun. Þeir sem drottningin nær
að klukka á leiðinni mega aðstoða
við að ná hinum í næsta skipti en
drottningin ein má giska. Sá sem
síðast er klukkaður verður drottn-
ing næst.
Hinn 13 ára Elías Óli Hilmarsson
leikur á móti Sigurði Skúlasyni í
stuttmyndinni Fótspor sem fjallar
um samband barnabarns við afa
sinn og verður sýnd á barnamynda-
hátíðinni Generator +10 sem er
ein sú stærsta sinnar tegundar.
Hvað kom til að þú tókst þátt í
myndinni? Það var haft samband
við mig og ég var beðinn um að
koma í prufu. Það gekk vel og ég var
beðinn um að leika hlutverkið.
Hvað var skemmtilegast við það?
Bara að kynnast þessu öllu og auð-
vitað fannst mér gaman að leika.
En hvað leiðinlegast? Þetta var allt
svo nýtt og spennandi svo það var
bara mjög gaman.
Heldurðu að þú farir á Generator-
hátíðina? Ég held ekki, mér finnst
það ólíklegt. En það væri gaman.
Hefur þú oft leikið áður? Ég hef
leikið í útvarpsleikriti og talað inn
á teiknimyndir.
Hvað gerir þú helst í tómstundum?
Ég æfi handbolta, fer á skíði og fer
í veiði.
Ertu veiðikló? Já, mér finnst mjög
gaman að veiða.
Áttu þér uppáhaldsveiðistað?
Ég veiddi einu sinni mjög vel í Laxá
í Dölum og ég er nýkominn af
Arnarvatnsheiði, það var gaman.
Hefur þú ferðast mikið um Ísland?
Já, við fjölskyldan ferðumst mikið.
Af öllum stöðum á landinu, sem
þú hefur komið á, hver þykir þér
vera fallegastur? Það var mjög fal-
legt að ganga Laugaveginn niður í
Þórsmörk.
Spennandi
að leika í kvikmynd
Elías Óli Hilmarsson leikur strák sem spilar fótbolta við afa sinn í stuttmynd-
inni Fótspor. Fréttablaðið/Ernir
intellecta.is
RÁÐNINGAR
1 . j ú l í 2 0 1 7 l A U G A R D A G U R
0
1
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
3
B
-F
A
2
0
1
D
3
B
-F
8
E
4
1
D
3
B
-F
7
A
8
1
D
3
B
-F
6
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
8
0
s
_
3
0
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K