Fréttablaðið - 01.07.2017, Page 66

Fréttablaðið - 01.07.2017, Page 66
Ég hugsaði ósjálf- rátt um staðinn þegar Ég vann verkin og fannst spennandi og for- vitnilegt að sjá verkin mín þar. Dagskráin er metn-aðarfull og fjölþjóð-leikinn áberandi. Sem dæmi um langt að komna listamenn má nefna Mamady Sano, heimsfrægan tónlistarmann frá Gíneu, með flokk sinn Barakan Dance and Drums, og þjóðlaga- sveitina Trato frá Síle. Og frá Kanada kemur margverðlaunað þjóðlagadúó, Sophie and Fiachra,“ segir Mónika Dís Árnadóttir. Hún er framkvæmda- stjóri Þjóðlagahátíðarinnar á Siglu- firði í fimmta skipti og vinnur náið með Gunnsteini Ólafssyni, stofnanda og listrænum stjórnanda hátíðar- innar. Hvernig fara þau að því að fá fólk úr öllum áttum og halda því uppi norður í Fjallabyggð? „Þetta er mikið batterí,“ viðurkennir hún. „Gunnsteinn er gríðarlega duglegur að hafa samband við fólk og svo fáum við margar fyrirspurnir alls staðar að frá fólki sem vill koma fram á hátíð- inni og einnig tengla á tónlist þess. Almenna reglan er að borga undir listafólk en sumt er þegar komið með styrki og er á ferðinni.“ Mónika Dís segir Finna koma sterka inn, til dæmis dúóið Amanda Kauranne og Mikko H. Haapoja sem verður með magnaða listinnsetningu í gömlum lýsistanki. „Vin í eyðimörk- inni er vídeóverk og tónlist, hvort tveggja innblásið af náttúruhljóðum og myndum frá Kirjálahéraði, Hels- inki og Siglufirði. Þau Amanda og Mikko verða sjálf í tankinum hluta úr dögum og gestum gefst kostur á að fá sér tesopa með þeim og spila og syngja. Allt hluti af innsetningunni,“ lýsir hún. Mónika nefnir líka Svíana, þjóðlagasöngkonuna Malin Gunn- arsson og Krilja-tríóið sem flytur rússneska sígaunatónlist. Jafnvel Íslendingarnir velja flestir tónlist frá framandi slóðum, Svanlaug Jóhannsdóttir er með argentínska tangóa og Björg Brjánsdóttir frum- flytur hér á landi nýlegan flautu- konsert eftir pólska tónskáldið Marcin Blazewicz ásamt Sinfóníu- hljómsveit unga fólksins. Frá Egils- stöðum kemur svo kvennakórinn Vaseele Bebe og syngur kröftug lög af Balkanskaga sem einkenn- ast af því að þar beitir fólk rödd- inni með öðrum hætti en við eigum að venjast, að sögn Móniku. Ekki má gleyma Kalmanskórnum með ljóð og lög úr safni Þórðar Kristleifssonar, Ragnheiði Grön- dal og Guðmundi Péturssyni með íslenska og enska ástarsöngva, Svöfu Þórhallsdóttur sem syngur tónlist eftir Grieg eða Tinnu Árnadóttur sem flytur lög Inga T., Jóns Múla og fleiri Austfirðinga. Né heldur Í-tríói sem heldur bæði tónleika og harmón- íkudansleik. Þá eru ótalin námskeiðin sem eru samhliða tónlistardagskránni en upplýsingar eru á siglofestival.com. „Þetta er góður pakki,“ segir Mónika. „Notalegheit sem smitast út á götur Sigló. Það er svo gaman að rölta gegnum bæinn á næsta tónleikastað.“ Notalegheit sem smitast út á götur Sigló fjölbreytni einkennir þjóðlagahátíðina á siglufirði í ár sem hefst 5. júlí. þar verður meðal annars flutt litrík tónlist frá afríku, suður-ameríku, rússlandi, Balkanskaga og finnlandi auk þeirrar íslensku. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is „Gestum gefst kostur á að spila og syngja með og fá sér tesopa,“ segir Mónika Dís. Fréttablaðið/Ernir Sophie lavoie og Fiachra O’regan frá Kanada kynna írska tónlist sem barst vestur um haf með innflytjendum. Hyvä trio frá Finnlandi leikur frumsamda þjóðlagaskotna tónlist. Styrkir fyrir sérstaklega myndríka miðlun/útgáfu tengda sögu og menningu í Reykjavík Styrkirnir eru ætlaðir til niðurgreiðslu á kostnaði vegna kaupa á ljósmyndum til birtingar frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Styrkirnir eru vegna útgáfu bóka og annars efnis sem kemur út á árinu 2017 eða í ársbyrjun 2018. Tilgangur styrkveitinganna er að hlúa að varðveislu menningararfleifðar Reykjavíkur og miðlunar hennar í fjölbreyttu formi. Þriggja manna dómnefnd skipuð tveimur starfsmönnum Borgarsögusafns Reykjavíkur og skrifstofu- stjóra menningarmála metur umsóknir. Í umsókn komi fram nauðsynlegar upplýsingar um umsæk- janda ásamt lýsingu á fyrirhugaðri útgáfu og verðáætlun Ljósmyndasafns Reykjavíkur vegna afgreiðslu ljósmynda í höfundarétti sem bera birtingagjald skv. gjaldskrá safnsins. Umsókn merkt ,,Myndrík miðlun/útgáfa“ berist á netfangið menning@reykjavik.is. Umsóknir berist í síðasta lagi í dagslok þriðjudaginn 15. ágúst. Um snúning himintunglanna nefn- ist sýning sem myndlistarkonan Marta María Jónsdóttir opnar klukkan 12 á morgun í safnaðar- heimili Neskirkju, strax að aflokinni messu. „Ég er ekki ýkja kirkjurækin en mér var boðið að sýna hér í safn- aðarheimilinu og það er fallegt rými og áhugavert. Ég hugsaði ósjálfrátt um staðinn þegar ég vann verkin og fannst spennandi og forvitnilegt að sjá verkin mín þar,“ segir lista- konan. Hún kveðst vera að fjalla um stórar, klassískar spurningar eins og tímann, eilífðina, ódauðleikann og tengsl vísinda og lista á sýningunni. „Ég var byrjuð á einföldum teikn- ingum og verkum á pappír þar sem ég vann með hringi og þau þróuðust yfir í þessi málverk þegar ég fékk salinn. Fannst það passa. Þannig rúllaði þetta.“ Marta María tekur líka þátt í stórri samsýningu í Listasafni Reykjanesbæjar nú sem nefnist Abstrakt á 21. öldinni þar sem ungir abstraktmálarar sýna. „Áður sýndi ég í Listasafni ASÍ og í janúar var ég með sýningu í Arion banka þannig að verkin mín eru sett upp í ýmsu samhengi. Mér finnst gott að sýna í kirkju á eftir banka.“ – gun Gott að sýna í kirkju á eftir banka Eitt verkanna á sýningunni í neskirkju. 1 . j ú l í 2 0 1 7 l A U G A R D A G U R34 m e n n i n G ∙ F R É T T A B l A ð i ð menning 0 1 -0 7 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 0 8 0 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 6 K _ N Ý.p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 3 C -2 1 A 0 1 D 3 C -2 0 6 4 1 D 3 C -1 F 2 8 1 D 3 C -1 D E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 8 0 s _ 3 0 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.