Kiwanisfréttir - 01.04.1985, Page 24
Færeyjaferð
Um morguninn þann 6. október sl. mættu 8
Kiwanisfélagar á afgreiðslu flugskóla Helga
Jónssonar ákveðnir í því að komast til
Færeyja þrátt fyrir verkfall flugumferðastjóra
og tollvarða. En ákveðið var að efna til
Kiwanisfræðslu og skipta um stjórn í
Tórshavn klúbbnum.
í ferðina fóru Ævar Breiðfjörð umdæmis-
stjóri, Þór Ingólfsson kjörumdæmisstjóri,
Hermann Þórðarson umdæmisritari, Tómas
Jónsson frá K-dags nefnd, Arnljótur Guð-
mundsson, svæðisstjóri, Bragi Stefánsson
birgðavörður og tveir félagar frá Kötlu Einar
Högnason og Hilmar Svavarsson. í loft var
haldið um 10 leytið og komið til Færeyja um
hádegi, en á flugvellinum beið Samal
Bláhamar væntanlegur forseti auk tveggja
félaga sinna með rútu alla skreytta Kiwanis-
fánum og merkjum að utan sem innan, svo
ekki fór á milli hverjir þarna voru á ferð. Aður
en haldið skyldi til Þórshafnar buðu þeir
félagar upp á „smá“ snarl á flugvallarhótel-
inu. En er til Þórshafnar var komið um kl.
15,30var ákveðið aðfræðslanskyldi hefjast kl.
16,30 á hótel Hafnía. Tafðist það aðeins vegna
mikillar sölumennsku birgðavarðar sem létti
all verulega á tösku sinni þarna. Fræðslan
hófst síðan með því að Ævar skipti Færey-
ingum og Islendingunum í hópa, virðist sem
þessi fræðsla hafi komist all vel til skila.
Kl. 20 hófst svo stjónarskiptafundur er sest
var að veisluborði á hótel Hafnía. Stjórnar-
skipti fóru síðan fram með hefðbundum hætti
undir stjórn Arnljóts. En á fundinum
stjórnaði umdæmisstjóri inntöku tveggja
nýrra félaga og var þeim vel fagnað. Er fundi
lauk var boðið upp á ljúfar veigar eins og hver
gat í sig látið. Er menn höfðu notið
veitinganna um stund, kvaddi nýi forsetinn
sér hljóðs og bauð öllum viðstöddum til fram-
haldsfagnaðar á heimili sínu. Var því barinn
borinn út í strætó er beið fyrir utan hótelið til
þess að aka hópnum. Var síðan fagnaðinum
haldið áfram fram eftir nóttu á heimili forseta.
En kl. 10,30næstamorgunsafnaðisthópur-
inn saman til þess að halda á stað út á flugvöll.
A leiðinni með ferjunni frá Vestmann yfir
sundið kom í ljós að ekki höfðu allir fengið
tækifæri til þess að stíga færeyskan dans, var
því ákveðið að bæta úr því og settur upp
danshringur á bílaþilfarinu og dansað undir
söng dansaranna, gerði þetta mikla lukku
meðal annara farþega sem sýnilega langaði til
að vera með i hringnum, þótti ferðin yfir
sundið taka alltof skamman tíma. En er út á
flugvöll var komið, náði Ævar að snúa á gest-
gjafa okkar með því að verða á undan að bjóða
til hádegisverðar á flugvallarhótelinu, en fram
að þessu höfðum við ekki fengið að borga neitt
fyrir þær veitingar sem við höfðum fengið. I
loftið var síðan haldið að loknum málsverði og
kveðjum og lent í Reykjavík um fimmleitið.
Það voru því ánægðir og þreyttir félagar sem
héldu til síns heima eftir ánægjulega ferð.
Eftirmáli og Færeyjarfréttir.
Svo virðist að þessi ferð okkar svo og dvöl 2ja
fulltrúa þeirra á umdæmisþingu í Reykjavík
sl. sumar hafi gefið arð. Því líf virðist vera að
færast aftur í klúbbinn undir skeleggri forustu
Samals Blahmars. Félögum fjölgar og telst
klúbburinn nú vera með 18 félaga og fleiri á
leiðinni.
Nú eftir áramótin hafa þeir félagar vakið
athygli á Kiwanis og starFi sínu með söfnun
gos- og ölflaskna í Þórshöfn og nágrenni
fyrstu þrjá laugardagana á árinu. Hefur þetta
framtak gefið þeim í styrktarsjóð ca. 45
þúsund færeyskar krónur sem er jafnvirði
íkr. 162 þúsund. í fyrstu söfnunina gekk
erfiðlega að fá félaga til starfa, leitaði forseti
þá eftir aðstoð barna úr sunnudagsskólum í
Þórshöfn, Kollafirði, Kvívík og Vestmann.
Fengust 50 börn og 7 fullorðnir til starfsins en
safnað var fyrst í Vogi og nágrenni flugvallar-
ins. Varð þetta til þess að söfnunin fékk
meðbyr næstu laugardaga á eftir. Og alltaf
fjölgaði félögum og voru þeir laugardaginn
26. janúar sl. 12 talsins og töldu menn að nú
fyrst findu menn að það væri annað og meira
Kiwanis en að bera merkið bara í barminum.
Söfnunarfénu hefur þegar verið ráðstafað,
ákveðið er að kaupa telex eða telefax tæki
handa heyrnleysingjafélaginu og afgangurinn
skal renna til byggingasjóðs blindrafélagsins.
Er það því álit mitt að skriður sé kominn á
starf Kiwanismanna í Færeyjum.
Hilmar Svavarsson
Kötlu
24
K-FRÉTTIR