Víkurfréttir - 05.01.2006, Blaðsíða 10
Atvinna
Starfsmaður óskast,
verður að geta unnið sjálfstætt.
Upplýsingar í síma 896 1751.
S; 421 6828 ■ 896 1751 ■ 699 1751.
Fimmtuddginn 12. janúar kl. 20:00
verður kynning á Alfa.
Við bjóðum einnig upp á Alfa 2,
sem erframhald afAlfa 1.
Bæði námskeiðin verða kynnt jpetta kvöld.
Alfa 1 hefst þriðjudaginn 24. janúar kl. 19.00.
Alfa 2 hefst fimmtudaginn 19. janúar kl. 19.00.
Allar nénari upplýsingar gefur
Kristinn í síma 697 7993.
Með brotnar
tennur eftir árás
Karlmaður óskaði að-
stoð ar lög reglu á
nýársnótt þar sem
annar maður
hafði skallað
hann í andlitið,
með þeim af-
leiðingum að
tennur brotn-
uðu og neðri
vör skarst tals-
vert mikið. Meintur gerandi
fannst stuttu seinna og var
hann með 4 cm skurð á enni.
Hann gisti fangageymslu vegna
málsrannsóknar. Báðir menn-
irnir voru ölvaðir.
Nefbraut konu á
skemmtistað
Maður réðst á konu á
skemmtistað Reykja-
nesbæ skömmu fyrir
áramót. Lögregla og sjúkra-
lið var kallað að staðnum og
var konan flutt á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja þar sem
kom í ljós að hún var nefbrotin
auk annara áverka í andliti.
Vitað er hver árásaraðili er en
hann var farinn af staðnum
þegar lögregla kom á vettvang.
ICELANDAIR SS
TECHNICAL Services "7
Starfsmaður í framleiðsludeild
Tækniþjónustan Keflavíkurflugvelli óskar að ráða
starfsmann í almennt skrifstofustarf.
Starfsvið:
Skráning á vinnukortum í AMICOS tölvukerfi.
Sala á matarkortum, tímauppgjör.
Útfylling eyðublaða á hlutadeild (Component shop)
Vinnutími er frá 7:45-15:45 alla virka daga.
Leitað er að hæfum reyklausum einstaklingi sem á gott með
að vinna með öðrum.
Æskilegt er að viðkomandi hafi bæði góða ensku og tölvukunnáttu.
Kostur ef viðkomandi hefur stúdentspróf.
Umsóknir óskast sendar starfsmannastjóra Tækniþjónustunnar
(starf@its.is) eigi síðar en 12. janúar 2006.
Skriflegar umsóknir berist til Tækniþjónustunnar
Keflavíkurflugvelli, Bygging 8, 235 Keflavíkurflugvelli.
Sálin stóðfyrir sínu
Fjölmenni var samankomið í Stapa föstudagskvöldið 30.
desember þegar Sálin hans Jóns míns lék fyrir dansi.
Skemmtu ballgestir sér vel og hljómsveitin hélt uppi
fjörinu langt undir morgun. Þetta var síðasta ball Sálarinnar
á Suðurnesjum um óákveðinn tíma þar sem hljómsveitin
ætlar að taka sér frí frá hljómleikahaldi en árið 2005 var anna-
samt hjá Sálarmönnum.
Ljósmyndari Víkurfrétta lét sig ekki vanta á ballið og má sjá
afraksturinn hér og einnig er fleiri myndir að finna á vef
Víkurfrétta, www.vf.is
Hvalsneskirkjaflóðlýst
Sóknarnefnd Hvalsneskirkju hefur látið koma upp
flóðlýsingu við kirkjuna og nú getur þessi fallega bygging
notið sín þegar húmar að á Hvalsnesinu. Hvalsneskirkja er
friðuð en hún var vígð á jólunum árið 1887.
Séra Hallgrímur Pétursson, mesta sálmaskáld þjóðarinnar, þjónaði
við Hvalsneskirkju en árið 1964 fannst þar brot úr legsteini
Steinunnar, dóttur Hallgríms. Hafði legsteinninn verið notaður í
gangstétt framan við kirkjuna. Viðamiklar viðgerðir fóru fram á
kirkjunni árið 1945 og var það Húsasmíðameistari Ríkisins, Ketill
Ketilsson, stórbóndi í Kotvogi sem kostaði kirkjubygginguna.
Mynd: Reynir Sveinsson
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
10 I VI'KURFRÉTTIR i 1.TÖLUBLAÐ 27. ÁRGANGUR