Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.01.2006, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 05.01.2006, Blaðsíða 6
Þrettándinn haldinn hátíðiegur rettándagleði og álfa- brenna verður haldin föstudaginn 6. janúar og hefst með skrúðgöngu frá Reykjaneshöll kl. 19:30. Dagskrá hefst í Reykjaneshöll kl. 18:30 en þar verður boðið upp á andlitsmálun fyrir yngstu krakk- ana, leiktæki og heitt kakó. Dagskrá á Iðavöllum hefst kl. 19:50 með álfabrennu, tónlist og söng. Álfakóngur og drottning mæta á staðinn ásamt Grýlu, Leppalúða, jólasveinum og ýmsum púkum. Karlakór Keflavíkur, kvennakór Suðurnesja og Lúðrasveit Tón- listarskóla Reykjanesbæjar leika og syngja. Flugeldasýning á vegum Björg- unarsveitarinnar Suðurnes hefst kl. 20:20. Flugvallarvegur verður lokaður á milli Sunnubrautar og upp á Reykjanesbraut ofan Iðavalla á milli kl. 18:30 og 22:00: Minnt er á bílastæði við Fjöl- brautaskólann, íþróttahúsið við Sunnubraut og Samkaup. Starfsmaður óskast í 50% starf við skóladagvist. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af að vinna með börnum. Þarf að geta hafið störf 5. janúar nk. Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 422 7020 eða 866 3998. KÍvZ'j Fjölskyldupakkar og fliei,ri\nýjar vörur Nr. 1 - Gullpakki Nr. 2 - Silfurpakki Nr. 3 - Bronspakki Opnunartímar 05. janúar 18 - 21 06. janúar 15 - 21 S/ RITSTJÓRN VfKURFRÉTTA Afgreiðsla Víkurfrétta er opin alla virka daga frá kl. 09-12 og 13-17. Athugið að föstudaga er opið til kl. 15 Með þvíað hringja í síma 4210000 er hægt að veija beint samband við auglýsingadeild, fréttadeild og hönnunardeild. Fréttavakt allan sólarhringinn er i síma 898 2222 Útgefandi: Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar: Ritstjóri og ábm.: Fréttastjóri: Blaðamaður: Auglýsingadeild: Útlit, umbrot og prentvistun: Hönnunardeild Víkurfrétta: Prentvinnsla: Dagleg stafræn útgáfa: Skrifstofa Víkurfrétta: Víkurfréttir ehf.,kt. 710183-0319 Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, Simi 421 0000 Fax 421 0020 Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is, postur@vf.is Þorgils Jónsson, sími 421 0003, gilsi@vf,is, sport@vf.is Jófríður Leifsdóttir, sími 421 0008, jofridur@vf.is Jón Björn Ólafsson, sími 421 0001, jbo@vf.is Víkurfréttir ehf. Kolbrún Jóna Pétursdóttir, s: 421 0005, kolla@vf.is Þorsteinn Kristinsson, s: 421 0006, steini@vf.is Prentsmiðjan Oddi hf. www.vf.is og www.vikurfrettir.is Guðrún Karitas Garðarsdóttir, sími 421 0009, gudrun@vf.is Aldís Jónsdóttir, sími 421 0010, aldis@vf.is ►► Kallinn á kassanum Fyrirtœkjakeðjur í engum tengslum við samfélagið á Suðurnesjum KALLINN VILL BYRJA á því að þakka lesendum fyrir gamla árið og gleðilegs nýs árs. KALLINN FYLGDIST nokkuð vel með jólastemmningunni í Reykjanesbæ og fór m.a. niður í miðbæ og þrammaði í margar búðir á Þor- láksmessu. Það var mikill íjöldi í flestum búðum og svo virðist á fréttum sem flestir kaupmenn séu þokkalega ánægðir. Samkeppnin virðist sífellt verða erfiðari við Kringlur, Smálindir og útlönd en það er mikilvægt að við skiptum við okkar búðir. ÞAÐ ER ALVEG LJÓST að það verða mun meiri peningar eftir í samfélaginu hjá Samkaupskeðj- unni og Kaskó en hjá Bónusi. Sama má segja um nokkrar fyrirtækjakeðjur sem hafa sett sig niður hér eins og t.d. Dominos pítsur. Eigendurnir ekki í neinum eða sáralitlum tengslum við Suðurnesin. Ekki fannst karlinum það heldur góðar fréttir að Doddi í Bókabúðinni eins og hann er kallaður, sé búinn að selja Pennanum bókabúðina. Kallinn er hræddur um að það verði ekki sama tilfinning hjá eigendum í Reykjavík gagnvart samfélaginu á Suðurnesjum. SVO FINNST KALLINUM hin gamla góða Stapa- fellsbúð ekki hafa breyst til batnaðar eftir eigenda- skiptin og mátti heyra óánægjuraddir með vöru- úrvalið þar fyrir þessi jól. í gamla daga var alltaf stemmning að koma í Stapafell en það virtist ekki vera eins nú í ár. Vonandi tekst að rífa búðina upp því það er mikilvægt að hún sé góð enda orðinn samofin samfélaginu. ANNARS VAR GAMAN AÐ SJÁ Skyrgám á Hafnargötunni á Þorláksmessu. Hvernig stendur á því að hann þekkir fullt af krökkum og full- orðnum með nafni? he..he.. KALLINN ER ÁNÆGÐUR með jólahljómsveit- ina sem er mjög sjáanleg og spilar jólalög í jóla- versluninni í desember. Ótrúlega gott veður á Þorláksmessu ár eftir ár. NÚ FER PÓLITÍKIN að fara á fullt og Kallinn fylgist spenntur með enda áhugasamur um stjórn- mál. Minnihlutinn í Reykjanesbæ setti ofan í meirihlutann með stálpípuna og þeir síðarnefndu þurfa að svara fyrir hundruð milljóna sem eytt hefur verið í lóð undir pípuna. En vonandi nýtist sú vinna fyrir eitthvað annað. Kallinn hafði aldrei, frá fyrstu fréttum, trú á þessu pípudæmi. Það komst einhvern veginn aldrei á það Aug Það væri trúverðugt. ÓVÆNTAR FRÉTTIR kornu með uppsögn Frið- jón Einarssonar, framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs Suðurlands og strax eru komnar raddir um að hann ætli sér í pólitík og þá ekki með meirihlut- anum enda ekki mikið pláss þar. HVAÐ SEM ÖLLU LÍÐUR er ljóst að það stefnir í spennandi bæjarpólitík í Reykanesbæ þó svo það sé ekki búið að stilla upp listum hvorki hjá vinstri né hægri. KALLINN ÆTLAR að versla þrettándaflugeldana hjá Björgunarsveitunum, engum öðrum. Þegar neyðin er stærst er Björgunarsveitin nærst. Það yrði saga til næsta bæjar ef einkaaðilarnir á flug- eldamarkaðnum myndu koma okkur til bjargar t.d. uppi á hálendinu eða í sjávarháska. Kallinn viðurkennir lögmál markaðarins en það eru til óskrifaðar reglur sem vont er að brjóta. kallinn@vf.is. Sameinaðu allar tryggingar á einfaldan hátt í TM-Öryggi TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN www.tmhf.is VlKURFRÉTTIR Á NETiNU • www.vf.is LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DACLEGA! 6 VlKURFRÉTTIR I 1.TÖLUBLAÐ í 27. ÁRGANGUR

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.