Víkurfréttir - 05.01.2006, Blaðsíða 4
Sandgerðisbær:
MIKIL UPPBYGGING FYRIRHUGUD
í ÍÞRÖTTA- OG TÖMSTUNDAMÁLUM
Mikil uppbygging er í
vændum í íþrótta og
tómstundamálum
í Sandgerði. Á síðasta bæjar-
stjórnarfundi voru settar fram
hugmyndir um miklar endur-
bætur, m.a. á sundlaug bæjar-
ins. Lagði meirihlutinn fram
tillögur í nokkrum liðum um
framtiðarsýn í íþróttamálum.
Sigurður Valur Ásbjarnarson,
bæjarstjóri í Sandgerði, sagði í
viðtali við Víkurfréttir að eftir
talsverðar umbætur á ýmsum
stofnunum bæjarins myndi bær-
inn nú einbeita sér að íþrótta-
mannvirkjum líkt og sundlaug
og íþróttahúsinu. „Við lögðum
þessar tillögur fram á fundinum
og þaðan voru þær sendar til
viðkomandi fagráða sem munu
afgreiða þau.“
Fyrst má telja að meirihlut-
inn lagði til að tekið verði upp
samstarf við Fasteign ehf. um
stækkun íþróttamiðstöðvar bæj-
arins í samstarfi við sjálfstæðan
rekstraraðila til að byggja upp
þreksal og fjölnota þolfimisal
við enda íþróttamiðstöðvar-
innar og var íþróttaráði falið
verkefnið til tillögugerðar fyrir
bæjarstjórn.
Einnig var lagt til að farið yrði
út í undirbúningsvinnu fyrir
byggingu 25m sundlaugar við
hlið núverandi sundlaugar. í
þeim áætlunum er gert ráð fyrir
því að gamla sundlaugin verði
notuð sem barnalaug með renni-
brautum og þess háttar.
Þá verður á næstunni farið út
í viðræður við Golfklúbb Sand-
gerðis þar sem rætt verður um
Qármögnun á stækkun golfvall-
arins upp í 18 holur. Bærinn á
landið sem viðbótin verður á,
en þegar er búið að teikna upp
holurnar sem bætt verður við.
Lagt er til að farið verði út í við-
ræður við knattspyrnufélagið
Reyni um framtíðaruppbygg-
ingu á svæði þeirra, en sam-
kvæmt tillögum meirihlutans
fær deildin full afnot af vallar-
húsi sínu þegar félagsmiðstöðin
Skýjaborg flyst um set að Skóla-
vegi 1 á næsta skólaári. Reynir
mun því fá húsið til afnota í maí
þrátt fyrir að eftir séu nokkur ár
af leigusamningi um afnot bæj-
arfélagsins af hluta hússins fyrir
unglingastarf er tengist grunn-
skólabörnum.
Hvað varðar félagsstarf fyrir ung-
linga er von á byltingu í þeim
efnum þegar opnuð verður fé-
lagsmiðstöð í Skýlinu þar sem
bæjarskrifstofur hafa verið til
húsa, en eins og flestir vita,
verða þær fluttar yfir í Vörðuna.
Sú miðstöð er ætluð ung-
lingum sem eru eldri en 16
ára og verður reksturinn með
svipuðum hætti og 88 Húsið í
Reykjanesbæ. Þar er einnig
mögulegt að önnur frjáls félaga-
samtök geti haft afnot af hús-
næðinu og eru skátarnir nefndir
sem dæmi.
Meirihlutinn segir að bæjar-
búar og bæjarfélagið hafi notið
þess að bæjarstjórn hafi á und-
anförnum árum samþykkt
markaðsátakið Sandgerði innan
seilingar og þannig gert það
að verkum að bæjarfélagið er
áhugavert til búsetu í umhverfi
sem eigi og fari að skara fram
úr á Suðurnesjum. Bæjarstjórn
Sandgerðisbæjar hafi alla burði
til að koma góðum málum í
verk enda sé sýni fjárhagsáætlun
fyrir næsta ár að fjárhagsstaðan
sé góð.
^sjemtar
fr’eWir
Leigubílstjóri
tekinn með
dópogvaxt-
arhormón
Leigubílstjóri stöðv-
aður af lögreglu milli
hátíða vegna gruns
um sölu fíkniefna. í úlpu-
vasa hans voru tíu kúlur af
meintu amfetamíni. Hann
var handtekinn og færður
til yfirheyrslu á lögreglustöð-
inni. Við húsleit heima hjá
manninum fundust rúmlega
30 meintar E-pillur, nokkuð
magn af vaxtarhormónum
og ólöglegt skotvopn, loft-
skammbyssa. Málið telst
upplýst.
Skömmu fyrir áramót
fundust svo 3 gr. af meintu
amfetamíni og hassmoli við
leit að fíkniefnum á heimili
manns í Njarðvík. Maðurinn
er grunaður er um sölu fíkni-
efna.
r
Brunavarnir Suðurnesja:
Fyllstu varúðar gætt við geymslu
STARF í AUGLÝSINGA-
OG MARKADSDEILD
Vegna vaxandi starfsemi vantar okkur starfskraft
í auglýsinga- og markaðsdeild Víkurfrétta.
Um er að rœðafullt starfen einnig kemur
til greina að ráða í minna starfshlutfall.
Við leitum eftir góðri manneskju í
skemmtilegt en krefjandi starfá skrifstofu okkar
í Reykjanesbœ. Laun eftir samkomulagi.
Umsóknir berist í tölvupósti til Páls
Ketilssonar, ritstjóra á netfangið pket@vf.is
Víkurfréttir ehf. eru fjölmiðlafyrirtæki sem rekur
m.a. vikuleg, samnefnd fréttablöð á Suðurnesjum og
Hafnarfirði/Garðabæ/Álftanesi. Fyrirtækið á og rekur
þrjár netsíður auk þess sem það sinnir fréttaþjónustu
á Suðurnesjum fyrir alla stærstu fjölmiðla landsins.
Vikublaðið Víkurfréttir kom fyrst út í ágúst 1980 og
fagnar því aldarfjórðungsafmæli um þessar mundir.
V________________________._____________________J
flugelda í Rammahúsinu
Ibúum Reykjanesbæjar er
greinilega mikið í mun um
öryggi samfélagsins því
töluvert hefur verið spurt um
hvort gamla „Byko-Ramma“
húsið við Seylubraut í Njarð-
vík sé birgðageymsla fyrir
„sprengiefni.“ Víkurfréttir
leituðu svara hjá Sigmundi
Eyþórssyni, slökkviliðsstjóra
Brunavarna Suðurnesja, sem
hafði þetta um málið að segja:
„Jú, rétt er það að um er að ræða
birgðageymslu þar sem flug- og
skoteldar eru teknir og flokkaðir
til útkeyrslu og dreifmgar á sölu-
staði. Húsnæðið er hagkvæmt
fyrir þessa notkun þar sem
það er vel varið með bruna-og
vatnsúðunarkerfi (sprinkler), og
að auki er byggingarmáti þess
þannig að léttbyggðar plötur í
þaki gefa góða útloftum og létta
þrýsting af burðarvirki ef bruni
verður.“
Þegar mest lét voru um 160
tonn af skot- og flugeldum
í húsinu, en Sigmundur segir
að þessi notkun á Rammahús-
inu sé einungis tímabundin
og hætta sem stafaði af þeim
hafi verið í lágmarki. „Vörurnar
eru tilbúnar í neytendapakkn-
ingum, teknar úr gámum á
vörubrettum og komið fyrir á
ákveðnum stöðum í húsnæð-
inu. Mikið af lagernum hefur nú
þegar verið dreift á áfangastaði
söluaðila og lagerinn fer stöðugt
minnkandi. Eigendur vörunnar,
Slysavarnarfélagið Landsbjörg,
fylgdu öllum ábendingum
okkar og samstarfið hefur
verið mjög gott. Sameiginlega
voru settar fram öryggisreglur
m.a. var sett upp öryggis- og
myndavélakerfi og viðeigandi
merkingar. Sólarhringsviðvera
er í húsnæðinu, aðkoma að
húsnæðinu og umferð á lóð er
takmörkuð við ákveðinn tíma í
sólahringnum. Þá er vinnuferli
Brunavarna Suðunesja með
þeim hætti að bein fjarskipti
eru milli Ramma og varðstofu
slökkviliðs BS. Að auki fram-
kvæmir forvarnarfulltrúi dag-
legar skoðanir á staðnum til
að kanna og meta ástand og
tryggja að vinnureglum sem og
öðrum ákvæðum sé fullnægt í
hvívetna."
Sigmundur segir að lokum að
þeir telji þetta fyrirkomulag
mun betra heldur en verið hefur
undanfarin ár, en þó eru hug-
myndir komnar fram um var-
anlega lausn á málinu með því
að byggja þar til gerða geymslu
fyrir skot- og flugelda.
VfKURFRÉTTIR I 1. TÖLUBLAÐ 27. ÁRGANGUR
VÍKURFRÉTTIR Á NETiNU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!