Víkurfréttir - 05.01.2006, Blaðsíða 13
Hetja ársins
er Huginn Heiðar Guðmundsson, en þessi eins árs drengur hefur mætt meira
mótlæti á sinni stuttu ævi en flestir gera á allri ævinni. Hann hélt utan til
Bandaríkjanna með foreldrum sínum í vor þar sem hluti af lifur móður hans
var grædd í hann, en vegna sjaldgæfs sjúkdóms var hans eigin lifur óstarfhæf.
Þau sneru aftur í haust og liggur hann nú á Barnaspítala Hringsins. Líðan hans
er góð um þessar mundir og er vonandi að hann fari að styrkjast nóg til að geta
snúið heim. Mál hans hefur vakið mikla athygli urn allt land og eru margir sem
hafa látið sitt af hendi rakna til að hjálpa Hugin og fjölskyldu hans i haráttunni.
inni á Keflavíkurflugvelli sem
uppfylla nýjustu öryggiskröfur
við eftirlit með umferð inn
og út af varnarsvæðinu.
Framkvæmdirnar fólu í sér
byggingu nýrra varðskýla og
vegabréfaskrifstofu auk breyt-
inga á girðingu og lagningu
bifreiðastæða. Verkið var unnið
af Islenskum aðalverktökum
og nam kostnaður við verkið
um 132 milljónum króna.
FINGRAMÁL:
Fingrafimurfor-
sætisráðherra
Fingramál rokkara var eitthvað
sem Halldór Ásgrímsson,
forsætisráðherra, fékk tilsögn
í þegar hann átti leið um Heið-
arskóla í Reykjanesbæ á árinu.
Merking fingramálsins á með-
fýlgjandi mynd er ekki öllum
ljós en forsætisráðherra ætti að
vera óhætt að nota þetta tákn
því Bush Bandaríkjaforseti
beitti sömu aðferð á dögunum
og komst upp með hana.
KRAPI ÁRSINS:
Föst og eldsneytislaus
á hálendinu
Ungmennin af Suðurnesjum
sem Landhelgisgæslan bjarg-
aði ofan af hálendinu á árinu
höfðu fest annan bíl sinn í
krapa við Kúpu vestan Kerl-
ingafjalli og þurftu því að halda
áfram á hinum bílnum þar til
hann varð eldsneytislaus við
Búrfell á Hrunamannafrétti.
Meðfylgjandi mynd, sem
ljósmyndari landhelgisgæsl-
unnar tók, sýnir hversu illa
var farið fyrir fýrri bílnum
og ljóst var að talsvert átak
þyrfti til að ná honum upp.
jáLé
w
AFLÍFUN ÁRSINS:
Kisa föst í fótbogagildru
Aflífa þurfti kött hjá Heilbrigðis-
eftirliti Suðurnesja eftir að hann
hafði fundist illa á sig kominn
fastur í fótbogagildru í Innri-
Njarðvík. Önnur framloppa
kattarins var föst í gildrunni og
Ijóst að dýrið var illa brotið eftir
að hafa barist um í gildrunni.
Það var íbúi í Innri-Njarðvík
sem gekk fram á kisu við
grjótgarð á fjörukambinum.
Gildran var þar fest á milli
steina en á þannig stað að af
henni stafaði hætta fyrir önnur
dýr en þau sem gildran var
ætluð. Þá hefði gildran auð-
veldlega getað skaðað litlar
hendur, en ekki er óalgengt
að sjá börn að leik á þessum
slóðum sem gildran fannst.
FEGURÐ ÁRSINS:
Petrúnella fegurst fljóða
Petrúnella Skúladóttir er feg-
urðardrottning Suðurnesja
árið 2005. Hún var krýnd
við hátíðlega athöfn í Stapa.
I öðru sæti var Sigurlaug
Guðmundsdóttir og Harpa
Gunnarsdóttir var í því þriðja.
TANNGARÐUR ÁRSINS:
Ókindin á grásleppuslóð
Grá-
sleppukarl-
arnir Bald-
vin Reyr
Gunnarsson
og Þor-
bergur Þór
Heiðarsson,
sem gera út
bátinn Eyjólf
Ólafsson
GK til grásleppuveiða, fengu
óvenjulegan feng í grásleppu-
netin á árinu. Þessi hámeri
sem var á þriðja metra á lengd
kom í grásleppunetin á sex
föðmum undan Stafnesi.
SÝNING ÁRSINS:
„Orkuverið Jörð“
í Reykjanesvirkjun
Reykjanesbær og Hitaveita
Suðurnesja hf. ætla í samein-
ingu að byggja upp sýningar-
aðstöðuna „Órkuverið Jörð“ í
Reykjanesvirkjun. Aðstaðan,
svokallaður orkugarður,
verður tilbúin á næsta ári.
„I Reykjanesvirkjun verður
komið fýrir aðstöðu sem kynnir
orkunýtingarmöguleikar jarðar-
innar. Unnið er að djúpborun-
arrannsóknum á sama stað og
viðræður eru við erlenda aðila
um þátttöku í því verkefni."
LÓNÁRSINS:
Lækningalind var
það heillin
Bláa Lónið - lækningalind var
formlega opnuð á árinu en í
tilefni opnunarinnar afhjúp-
uðu þeir Jón Kristjánsson,
heilbrigðisráðherra, og Eðvarð
Júlíusson, stjórnarformaður
Bláa Lónsins hf, áletraða hraun-
hellu sem táknar upphaf fram-
kvæmda við lækningalindina,
en þeir losuðu helluna þann
7. janúar 2004. Keflavíkurverk-
takar voru aðalverktakinn
við byggingu lindarinnar.
Lækningalindin tekur við af
bráðabirgðahúsnæði og býður
upp á kraftmikið náttúrulegt
umhverfi sem hefur endurnær-
andi áhrif á líkama og hug.
Lón lækningalindarinnar er sér-
hannað með þarfir meðferðar-
gesta í huga. Rúmgóð innilaug
fyllt BLUE LAGOON jarðsjó
er einnig í lækningalindinni.
Fimmtán nýtískulega hönnuð,
björt og rúmgóð tveggja manna
gistiherbergi eru í boði fyrir
gesti lækningalindarinnar.
Rúmgóður veitingasalur er
í lækningalind ásamt setu-
stofu með sjónvarpi þar sem
gestir geta slakað á og notið
samverunnar. Gestir hafa
einnig aðgang að vel búnum
tækjasal þar sem stunda má
líkamsrækt og skjólgóðum
garði til útiveru og hvíldar.
Lækningalindin, sem er
samvinnuverkefni íslenskra
stjórnvalda og Bláa Lónsins
hf. stórbætir þjónustu við
íslenska psoriasissjúklinga og
er tímamótaverkefni í heilsu-
tengdri ferðaþjónustu á Island.
LÍFSREYNSLA ÁRSINS:
Komst út úr sökkvandi
bíl á elleftu stundu
Ökumaður
Toyota
Avensis bif-
reiðar náði
að komast
út úr bif-
reiðinni og
synda til
lands eftir
að bíllinn
hafnaði í
höfninni í Keflavík á árinu.
Bifreiðin fór yfir háan steyptan
kant á bryggjunni og flaut út í
höfnina um 30 metra áður en
hún sökk til botns. Kona sem
var ein í bílnum náði að komast
út úr bílnum skömmu áður en
hann sökk og synda til lands.
Sjónarvottar voru að slysinu og
létu þeir neyðarlínuna vita.
UMFERÐAMANNVIRKI ÁRSINS:
Virtu hraðahindr-
anir að vettugi
Þrátt fyrir að
hraðaliindr-
anir hafi verið
settar upp á
þjóðveginum í
gegnum Hafnir
síðasta sumar
virtust nokkrir
vörubílstjórar,
sem áttu leið þar í gegn, ekki
ætlað að láta sér segjast.
Ibúar Hafna voru vitni að
því þegar ákveðnir bílstjórar
slengdu tengivögnum bifreiða
sinna utan í stöplana, sem hafði
verið komið fyrir á veginum, til
að hnika þeim út af veginum.
Þar sem þessi ráðstöfun virt-
ist ekki gefa góða raun var
ákveðið að leggja veg fram hjá
þorpinu í Höfnum þar sem
almenningur er ekki í hættu.
NIÐURRIFSSTARFSEMI ÁRSINS:
Rockville loks rifið
Framkvæmdir eru loks hafnar
við rif húsanna í Rockville
en stórvirkar vinnuvélar
frá Hringrás hófu að rífa
niður gistiskála og fleiri
byggingar í vikunni.
Þó nokkuð er síðan ákveðið
var að fjarlægja mannvirkin
á svæðinu, sem hefúr verið
undir stjórn Varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli frá árinu
1953, en sökum annríkis
hjá verktaka dróst verkið.
VÉLABRÖGÐ ÁRSINS:
HVALRÆÐI ÁRSINS:
Hvalirí höfninni í
Reykjanesbæ
Hnúfubakar og hrefna sáust í
smábátahöfninni og í gömlu
höfninni í Reykjanesbæ einn
góðviðrisdag síðasta sumar
mörgum til mikillar ánægju
enda safnaðist nokkur fjöídi
til að fylgjast með ferðum
þeirra. Hvalaskoðunar fyrir-
tækið Moby Dick þurfti ekki
að fara langt með ferðamenn
sína þann morguninn og sigldi
rétt við smábátahöfnina.
Glæsilegt byggða-
safn á Garðskaga
Byggðasafnið á Garðskaga
var opnað í nýju og glæsilegu
húsnæði í júlí síðastliðnum. I
byggðasafninu eru munir sem
tengjast sjósókn, landbúnaði
og heimilishaldi fólks í Garði
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
VÍKURERÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 5. JANÚAR 2006 13