Víkurfréttir - 05.01.2006, Blaðsíða 2
SVART
& SYKURLAUST
Nefndir til sögu...
Blekið var vart þornað á sam-
starfssamningum Samfylk-
ingar og Framsóknar í Reykja-
nes bæ þeg ar
vangaveltur um
vænt an legan
oddvita ogbæjar-
stjóraefni fóru í
gang.
Margir eru til kallaðir þó þeir
séu sjáifsagt síðastir til að
frétta af því, en hæst hefur
borið nafn Þórólfs Árna-
sonar, fyrrverandi borgar-
stjóra og eldsneytisfrömuðar.
Þó hefur tíðindamanni S&S
einnig borist saga eftir „áreið-
anlegum" heimildum um að
Friðjón Einarsson, fráfarandi
framkvæmdastjóri Lífeyris-
sjóðsins, sé með þeim heitari.
Friðjón segir i viðtali í VF í
dag að hann sé alls óráðinn
í þeim efnum. Hann verður
þó laus mála hjá LS með vor-
inu og verður fróðlegt að sjá
hvort hann stýri Samsóknar/
Framfylkingarskútunni í bar-
áttunni við meirihluta sjálf-
stæðismanna....
Allt fyrir ekkert...
Það er gott að lifa á kosn-
ingaári. Það hefur verið
ókeypis í strætó í nokkurn
tíma en nýjasta trompið er
ókeypis í sund fyrir börnin
í Reykjanesbæ. Ekki er laust
við að það sé kosningalykt í
ioftinu en bæjarbúar kvarta
varla og bíða eftir næsta
útspili. S&S giskar á ókeypis
leikskóla og lóðir á slikk með
vorinu...
Aðstoðarfólk
í eldhús vantar í
Matariyst Atlanta.
Upplýsingar í síma
8975292
(Guðjón Vilmar).
MATARLYST ATLANTA
IÐAVELLIR 1 - KEFLAVÍK - SÍMI 421 4797
MUIMDI
Er þetta grasrótar-
starfsemin í Sandgerði?
Fjölmenni við útför séra Ólafs Odds
Útför séra Ólafs Odds Jónssonar var gerö frá Keflavíkurkirkju sl. föstudag. Séra Sigfús B. Ingvason og
dr. Einar Sigurbjörnsson jarðsungu. Jarösett var í Gufuneskirkjugarði. Fjölmenni var við útförina og
margir úr prestastétt, ásamt biskupum. Líkmenn voru Halldór Leví Björnsson, Elias Guðmundsson, Jón
Þorsteinsson, Baldur Rafn Sigurðsson, Páll Skúlason, Vilhjálmur Árnason, Kristján Valur Ingólfsson og
Hjalti Hugason. Kór Keflavíkurkirkju söng og Bylgja Dís Gunnarsdóttir söng einsöng.
2% atvinnu-
leysi á Suð-
urnesjum
Alls skráðu 194 einstak-
lingar sig á atvinnuleys-
isskrá á Suðurnesjum í
nóvemberbermánuði, eða 2%
af mannafla. Um er að ræða
fjölgun frá októbermánuði,
en alls skráðu 167 sig þá á at-
vinnuleysisskrá. Fjölgun þessi
er árstíðabundin, en atvinnu-
leysi eykst alltaf á þessum tima
árs.
Þrátt fyrir þessa aukningu er
hún óveruleg þegar litið er til
síðasta árs, en í nóvember 2004
voru 283 sem skráðu sig á at-
vinnuleysisskrá.
Atvinnuleysi á landsvísu mæld-
ist 1,5% og hefur lækkað úr 3%
síðan í fyrra.
CSI
Málefni Varnarliðsins:
Komu Flughersins
til Keflavíkur frestað
Ekki verður af því að flug-
her Bandaríkjanna taki
við rekstri Varnarstöðv-
arinar á Keflavíkurflugvelli á
næsta ári eins og reiknað var
með. Ákvörðun um skipti sjó-
hers og flughers hefur verið
skotið á frest um óákveðinn
tíma, en Friðþór Eydal, upp-
lýsingafulltrúi Varnarliðsins,
sagði í samtali við Víkurfréttir
að ljóst sé að ekki verði af skipt-
unum á næsta ári.
„Skiptin þóttu ekki hagkvæm
að sinni, þannig að ákvörðun-
artöku var frestað. Flugherinn
hafði samþykkt skiptin af sinni
hálfu, en sjóherinn sá ekki hag-
ræðið í þeim.“
Friðþór sagði að engin breyting
yrði á daglegum rekstri á varn-
arstöðinni og bætti því við að
þessi frestun hefði enga sérstaka
þýðingu um framhaldið.
Þrátt fyrir að ekki sé útilokað
að af skiptunum verði er engu
að síður víst að ekki minnkar
óvissan um veru Varnarliðsins.
RÆKTAÐI0G SELDI
MARIHUANA
Mikið magn af mari-
huana, eða um 250
grömm, fannst
í aðgerð lögreglu milli jóla
og nýárs, en auk þess fund-
ust rúmlega 60 marihuana-
plöntur í atvinnuhúsnæði í
Sandgerði. Einn maður var
handtekinn vegna málsins.
Lögregla hafði afskipti af karl-
manni á fimmtugsaldri vegna
gruns um að hann ræktaði og
framleiddi eiturlyf. I bifreið
mannsins fundust um 120 gr.
af efninu og enn meira fannst
á heimili hans í Reykjavík.
Þar fundust líka kannabisfræ
og rúmlega 100.000 kr í pen-
ingum.
Samtals var lagt hald á um
250 gr. af marihuana auk
plantnanna og tæki og tól til
framleiðslu.
Maðurinn var látinn laus eftir
yfirheyrslur. Um var að ræða
samstarfsverkefni lögregl-
unnar í Keflavík og lögregl-
unnar á Keflavíkurflugvelli.
íbúaþróun á síðasta ári:
MIKIL FJÖLGUN Á SUÐURNESJUM
Suðurnesjamönnum fjölgaði um rúm-
lega 800 á síðasta ári, en samkvæmt
mannfjöldamælingum Hagstofu fs-
lands töldu þeir 17.899 þann 1. desember
síðastliðinn.
Um er að ræða 4,7% fjölgun, en það er lang-
mesta fjölgunin í landshlutum sem liggja
að höfuðborgarsvæðinu. Mesta hlutfallslega
fjölgunin á Suðurnesjum var í Sandgerði
þar sem hún var 9,8%.
I fjölmennasta sveitarfélagi landshlutans,
Reykjanesbæ var fjölgunin 3,5% eða úr
10954 upp í 11346 íbúa. Heildarfjölgun eru
392 íbúar.
I Grindavík var fjölgunin 5,8% eða úr 2479
upp í 2624. Heildarfólksfjölgun var alls 145
manns.
I Sandgerði er augljóst að markaðsátakið
„Sandgerði innan seilingar" hefur borið
ríkulegan ávöxt því þar var fjölgunin 9,8%
eða úr 1398 upp í 1535. Heildarfólksfjölgun
er því 137 manns.
I Garði nam fjölgunin 4,1% eða úr 1322 upp
í 1376. Heildarfjölgun var 54 íbúar.
Þá fjölgaði íbúum Vatnsleysustrandarhrepps
um 8,4%, úr 939 upp í 1018 og hafa þeir í
kjölfarið sótt um bæjarréttindi. Vatnsleysu-
strandarhreppur mun því fljótlega breytast í
sveitarfélagið Voga.
Á nýafstöðnum aðalfundi Sambands sveit-
arfélaga á Suðurnesjum var ályktað um
hina miklu fjölgun sem hefur átt sér stað í
landshlutanum og reiknuðu fundarmenn
með því að íbúar Reykjaness verði vel yflr
20000 manns þegar árið 2008. Ljóst sé að
Reykjanes er að koma sterkt inn sem næsta
uppbyggingarsvæði í nágrenni höfuðborg-
arinnar og er þegar orðinn mjög eftirsóttur
íbúakostur.
Fundarmenn töldu að framundan væru tæki-
færi til sóknar á Reykjanesi. Þar verði Suð-
urnesjamenn að standa saman og tryggja
svæðinu bjarta framtíð.
2 IVÍKURFRÉTTIR I 1.TÖLUBLAÐ I 27. ÁRGANGUR
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU -www.vf.is- LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!