Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.01.2006, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 12.01.2006, Blaðsíða 18
féfffslátt.feur af GjílpŒfatnaó^og s^QjiiijV Nýtt kortatímabil Heiðartúni 2 • 250 Garöi sími 422 7103 • G5M 892 9812 • tölvupóstur: rafsi@centru Vfl RAFLAGNIR ijj I VERSLUN MhlMa rqflagnlr • helmlllstœkl SportvOrvr • CjafavOrur • SkóknrOrur Síðasta sýn- ingarhelgi Trainspotting Um helgina verða síð- ustu sýningar Leik- félags Keflavíkur á Trainspotting. Leikritið fjallar um hóp ungs fólks á 8. áratugnum sem eru að reyna að fóta sig í lífinu. Me- gas þýddi verkið en Jón Mar- inó Sigurðsson leikstýrir. Sýningardagarnir eru 12. - 14. og 15. janúar og heíj- ast sýningarnar allar kl. 21. Frumleikhúsið er opnað klukkustund fyrir sýningu en miðapantanir eru í síma 421 2540 eða 846 7883. Miða- verð er kr. 1000,- t Elskulegur eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, Aðalbjörn Jónsson, Vesturgötu 36, Keflavík, áður til heimilis að Hólavöllum, Garði, andaðist að heimili sínu mánudaginn 9. janúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Kristný Rósinkarsdóttir, Ester Aðalbjörnsdóttir, Guðmundur Sigurðsson, Jón Aðalbjörnsson, Aldís Árnadóttir, HaraldurAðalbjörnsson, Sigrún Harðardóttir, Jakobína Aðalbjörnsdóttir, Björgvin Skarphéðinsson, Rósinkar Aðalbjörnsdóttir, Ólöf Guðrún Albertsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, Lúðvík G. Jónsson lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja miðvikudaginn 4. janúar. Útför fer fram frá Keflavíkurkirkj u föstudaginn 13. janúar kl. 13.30. Helga Jónsdóttir, Elísabet Lúðvíksdóttir, Ragnar Eðvaldsson, Ásdís Þorsteinsdóttir, Eðvald Lúðvíksson, Sigríður Sigurðardóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Námskeið fyrir sykursjúka og aðstandendur þeirra Heilbrigðisstofnun Suðurnesja heldur námskeið fyrir sykursjúka og aðstandendur þeirra dagana 2.-4. febrúar 2006 í Eldborg í Svartsengi. Markmið námskeiðsins eru fyrst og fremst að auka þekkingu sykursjúkra og aðstandenda þeirra á sjúkdómnum, meðferð hans og fylgikvillum, með áherslu é lífsstílsbreytingar og ábyrgð einstaklingsins á eigin meðferð. Innifalið í námskeiðsgjaldi er gisting ítvær nætur,fullt fæði og fræðslufundir. Skráning ferfram 13.16.og 17. janúar kl 10.30 - 14.00 ísíma 422 0510. Nánari upplýsingar á sama tima og skráning fer fram. Hjúkrunarframkvæmdastjóri HEILBRIGÐISSTOFNUN SUÐURNESJA SKÓLAVEGI 6 • 230 REYKJANESBÆ • WWW.HSS.IS • HSS@HSS.IS ^sjeumar fréttir Reykjanesbœr: Átak í ís- lenskunámi nýbúa Asíðasta fundi fræðslu- ráðs Reykjanesbæjar var ákveðið að ráðast í átaksverkefni til að styðja við íslenskunám þeirra íbúa sveitarfélagsins sem eru af er- lendum uppruna og íslenskra barna sem hafa alist upp á er- lendri grundu. Verkefnið er að tillögu Huldu Bjarkar Þorkellsdóttur, fulltrúa Samfylkingar í fræðsluráði, og verður sett á laggirnar þverfag- legri verkefnisstjórn með full- trúum frá Fræðsluráði, Menn- ingar- íþrótta- og tómstundaráði og FFR. Verkefnið verður unnið út frá fjölmenningarstefnu bæj- arins og lestrarmenningarverk- efninu. Meginverkefnin verði að: -tryggja fullorðnum íslensku- kennslu á viðráðanlegum kjörum -veita stuðning við máltölu leikskólabarna m.a með því að byggja upp hljóðbókasafn með vönduðum upplestri á bókum sem fjölskyldur geta fengið lán- aðar heim -veita stuðning við íslenskunám í grunnskólum til allra sem þess þarfnast -veita stuðning við íslenskunám í framhaldsskólum til allra sem þess þarfnast -tryggja öllum leik-, grunn- og framhaldsskólanemum sem þess þarfnast viðtöl með aðstoð túlka a.m.k. tvisvar á ári Hulda Björk sagði í tilllögu sinni að Reykjanesbær verði fremstur sveitarfélaga í þjónustu við inn- flytjendur og öðrum fyrirmynd í þessum málaflokki og minnt- ist einnig á forvarnargildi slíks verkefnis. Máli sínu til stuðnings vitnaði Hulda í yfirlýst markmið „Lestr- armenning í Reykjanesbæ”, og greinargerð ráðgjafarnefndar urn viðurkenningar á Degi ís- lenskrar tungu fyrir viðurkenn- ingu til Reykjanesbæjar 2005 vegnaLestrarmenningarverkefn- isins. í báðum tilfellum var lögð áhersla á að bæta aðstöðu inn- flytjenda og annarra sem hefðu veikari forsendur en aðrir til að ná tökum á íslensku. VÍKURFRÉTTIR I 2. TOLUBLAÐ ! 27. ARGANGUR VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.