Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.01.2006, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 12.01.2006, Blaðsíða 8
Bílaleiga - s. 8934455 Foreldra- morgnar í Kirkjulundi Nýbakaðir foreldrar á Suð urnesj um munu eiga sér sama- Bstað í Kirkju- lundi í Kefla- víkurkirkju á næstunni, en miðvikudag- inn 25. janúar verð ur þar haldinn fyrsti Foreldramorguninn. Fyrir- hugað er að þessir fundir verði alla miðvikudags- morgna klukkan 10. Þar geta mæður jafnt sem feður komið saman og rætt um heima og geima auk þess sem mögulegt er að stöku sinnum verði á dagskrá fræðsla um börn og barna- uppeldi. Að fundum loknum er svo kjörið að líta inn í kyrrðar- stund í kapellunni og fá sér súpu og brauð áður en haldið er heim á leið. f { f T V I þar sem einfaldar danshreyfingar og jóga blandast saman Ef þu vilt: • styrkjast • auka þol •léttast •fá innri ró • auka einbeitingu • efla ónæmiskerfiá • bæta meltinguna • andlega vellíðan • auka orkuna • komast í form • bæta heilbrigbi • verða bjartsýnni Kennt er mánudaga og mióvikudaga kl. 18:45 Námskeib hefst ló.janúar Skráning er hafin! Víkurbraut 11 Simar. 423 7500 & 848 53ó6 Sandgeroisbæ www.pulsinn.is Opnar nýtt kaffí- hús og bar Nýjung er á döfinni í skemmtanalífi Suður- nesjamanna, en Njarð- víkingurinn Atli Rúnar Her- mannsson opnar nýtt kaffihús/ bar að Hafnargötu 28 í Reykja- nesbæ næsta laugardag. Staður- inn mun bera nafnið Yello. Atli, sem hefur lengi þeytt skífum i flottustu skemmti- stöðum höfuðborgarinnar, ss. Pravda, Thorvaldsen, Hressó og Hverfisbarnum, hefur búið og starfað í Reykjavík frá árinu 1998. I samtali við Víkurfrétir sagðist hann spenntur fyrir að snúa aftur á gamlar slóðir. „Hér fékk ég fyrsta smjörþef- inn af djamminu á áramóta- balli í Stapa þegar eg var 16 ára. Hljómsveitin sem spilaði hét Mikki Refur, að mig minnir, en ég haíði hlakkað til þess allt haustið. Nú fannst mér vanta ákveðna tegund af stað hér í bænum og sá mér leik á borði þegar þetta húsnæði losnaði og sló til.“ Atli segir húsnæðið henta mjög vel fyrir kaffihús og bar en rýmið hefur tekið miklum breyt- ingum frá því að saumastofan Liljur var starfrækt þar. „Ég er búinn að spila á óteljandi stöðum út um allt land og hef kynnst ýmsu, en ég fékk gæsa- húð þegar ég gekk fyrst inn í sal- inn,” bætir Atli við. „Húsnæðið hentar mjög vel og er passlega stórt til að halda uppi góðri stemmningu. Ég hef spilað á þúsund manna böllum, en mér finnst alltaf betra að hafa um 100-150 manns því þá er maður í miklu betri snertingu við fólkið á gólfinu." Atli segist hafa mjög ákveðnar skoðanir á því hvernig Yello verði. „Þetta verður flottur og skemmtilegur staður, en það verður fjölbreytt dagskrá hjá okkur. Um helgar verður diskó- tek og fólk að skemmta sér, en á virkum dögum verður kaffi- húsastemmning og rólegra yfir- bragð. Þá verðum við kannski með trúbadora eða minni tón- leika auk þess sem við stefnum að því að sýna listaverk á veggjum staðarins. Annars er þetta víðara veitingakonsept heldur en bara skemmtistaður því það verður líka hægt að leigja salinn út fyrir veislur og svo verðum við líka með bolt- ann í beinni.“ Opnunarhátíðin hefst með veislu fyrir sérstaka boðsgesti sem stendur frá kl. 22 til mið- nættis, en eftir það verður stað- urinn opnaður fyrir almenna gesti og lofar Atli miklu fjöri í flottu umhverfi. STARFIÐ KOA/IIÐ Á FULLT HJÁ SRFS Starfsemi Sálarrannsóknarfélag Suðurnesja er komin á fullt skrið eftir jólafrí og ætla þau Lára Halla Snæfells, Skúli Lórenzson og Þórhalug Guðmundsson, miðill að vera með einkafundi dagana 23., 24. og 25. janúar. Tímapant- anir eru í síma 421-3348 og 866-0345. Fyrirhugað er að hafa eina kvöldstund í febrúar þar sem vaerður leidd hugleiðsla, tarotlestur og fleira, en það verður augiýst nánar í smáauglýsingum Víkurfrétta. VfKURFRÉTTIR ! 2. TÖLU8LAÐ I 27. ÁRGANGUR VÍKURFRÉTTiR Á NETiNU -www.vf.is* LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.