Fréttablaðið - 12.09.2017, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 12.09.2017, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 1 4 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r Þ r i ð J u d a g u r 1 2 . s e p t e M b e r 2 0 1 7 FrÍtt BORGARLEIKHUS.IS ÁSKRIFTARKORT BORGARLEIKHÚSSINS Kartöfluæturnar BROT ÚR HJÓNABANDI UNNUR ÖSP STEFÁNSDÓTTIR BJÖRN THORS Jólaflækja Fréttablaðið í dag skoðun Lilja Alfreðsdóttir segir í höndum þingmanna að efla traust á Alþingi. 12 lÍFið Eygló Jóna Gunnarsdóttir er 76 ára og fékk sér sitt fyrsta tattú um helgina. 22 plús 2 sérblöð l Fólk l  náMskeið *Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 saMFélag Ellilífeyriskerfið hefur verið eflt verulega og fyrirhugað er að halda því áfram, segir í aðsendri grein Þorsteins Víglundssonar, félags- og jafnréttismálaráðherra, sem birtist í blaðinu í dag. „Útgjöld til ellilífeyrisgreiðslna TR á næsta ári munu verða rúm- lega 74 milljarðar króna. Aukning- in frá árinu 2016, sem var síðasta gildisár eldra lífeyriskerfis, nemur 24 milljörðum króna, eða um það bil helmings- aukning,“ segir ráðherrann. Um síðustu áramót voru gerðar breytingar á greiðsl- um til ellilífeyrisþega. Í greininni rekur Þorsteinn hvern- ig greiðslur til lægstu tekjuhópa lífeyris- þega hækkuðu um fjórð- ung auk þess að miðgildi tekna ellilífeyrisþega hafi hækkað um 22 prósent og sé nú 342 þúsund krónur. – jóe / sjá síðu 13 Kjör ellilífeyrisþega hafa batnað að sögn ráðherra lögregluMál Magnús Garðarsson, fyrrverandi forstjóri United Silicon, er talinn hafa dregið sér um hálfan milljarð króna frá fyrirtækinu sem kært hefur Magnús til héraðssak- sóknara. Magnús er einnig sakaður um að halda áfram svikum eftir að hann hætti í stjórn United Silicon og haft samband við ítalska fyrirtækið Tenova Pyromet eftir að hann var hættur afskiptum af rekstri kísil- versins. Málið mun hafa undið upp á sig við endurskipulagningu og ósk United Silicon um greiðslustöðvun. Sagt er að komið hafi á daginn að hugmyndir fyrirtækisins um skuldir við Tenova Pyromet hafi verið fjarri lagi. Sagt er að fjármagnið hafi ratað á bankareikninga fyrirtækja erlendis og nú sé verið að rekja slóð þess. „Upphæðirnar virðast vera yfir hálfan milljarð íslenskra króna,“ segir Karen Kjartansdóttir, upplýs- ingafulltrúi United Silicon. Auðun Helgason, fyrrverandi stjórnarmaður í United Silicon og starfandi framkvæmdastjóri er fram- kvæmdir við verksmiðjuna hófust, kvaðst í gær ekki hafa kynnt sér málið. „Ég hef ekki heyrt í Magnúsi síðan í maí eða júní en það er mjög sorg- legt ef málið er komið í þennan farveg, en ég get ekki tjáð mig um þetta,“ sagði Auðun. Talinn hafa svikið áfram eftir starfslok sem forstjóri Hvorki lögreglan né forsvarsmenn kísilversins United Silicon hafa náð tali af Magnúsi Garðarssyni, fyrrverandi forstjóra, sem kærður hefur verið fyrir að hafa dregið sér yfir hálfan milljarð króna frá fyrir- tækinu. Sagt er að Magnús hafi haldið svikunum áfram eftir að hann hætti störfum frá fyrirtækinu. Samkvæmt þeim gögnum og athug- unum sem fyrirtækið hefur farið í kemur ekkert annað fram en að aðeins einn maður hafi verið viðriðinn þetta og vitað af því hvernig í pottinn var búið. Karen Kjartans- dóttir, upplýsinga- fulltrúi United Silicon Haldið er fram að Magn- ús Garðarsson hafi skrifað tilhæfulausa reikninga. Ekki hefur náðst í Magnús Garð- arsson þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Hann er erlendis og hafa hvorki lög- regluyfirvöld né forsvarsmenn fyrir- tækisins náð tali af Magnúsi. – sa / sjá síðu 8 Magnús Garðars- son, fyrrverandi forstjóri United Silicon viðskipti „Ég er að reyna að selja verksmiðjuna og fyrr en það gerist mun skiptum ekki ljúka,“ segir Mar- teinn Másson, lögmaður og skipta- stjóri þrotabús málmbræðslu GMR á Grundartanga sem fór í þrot í janúar. Kröfur í þrotabúið nema 3,6 milljörðum króna. – hg / sjá síðu 6 Milljarða króna gjaldþrot GMR Þorsteinn Víglundsson Martröð í uppsiglingu Í dag hefst endurnýjun stofnlagnar fyrir kalt vatn yfir Kringlumýrarbraut ofan við Miklubraut. Búist er við mjög miklum töfum á umferð næstu tvær vikurnar því akreinum á Kringlumýrarbraut á þessum stað verður fækkað í aðeins tvær í hvora átt á meðan framkvæmdirnar ganga yfir. Fréttablaðið/VilhelM 1 2 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :2 6 F B 0 4 0 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D B 5 -6 C 5 4 1 D B 5 -6 B 1 8 1 D B 5 -6 9 D C 1 D B 5 -6 8 A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 0 s _ 1 1 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.