Fréttablaðið - 12.09.2017, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 12.09.2017, Blaðsíða 18
Markmiðið er að efla félagsstarf og tengsl milli þeirra sem hafa svipuð áhugamál, sem fylgja kannski ekki meginstraumnum en eru þó miklu merkilegri og uppbyggilegri en margir halda. Á þessum nám- skeiðum fá krakkar tækifæri til að ræða saman um áhugamálin og bera saman bækur sínar, prófa ný spil og víkka út áhugasviðið. Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@365.is Útgefandi: 365 miðlar Veffang: Visir.isÁbyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumaður auglýsinga: Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433 Í þessari viku hefjast byrjenda- og framhaldsnámskeið hjá Nexus Noobs og ætlar Soffía Elín ásamt Bjarna Svani Birgis- syni að kynna nördamennskuna fyrir áhugasömum á Íslandi. MYND/VILHELM Þegar ég var yngri átti ég mér frekar óvenjuleg áhugamál. Ég hafði gaman af því að leika mér með stjörnustríðskalla og aðrar fígúrur og hafði mikla ánægju af öllu sem viðkom vís- indaskáldskap og fantasíusögum. Þetta fannst mér eðlilegt þar sem pabbi, bræður mínir og frændfólk deildu þessum áhuga með mér. Þegar ég stækkaði fannst mér ég dálítið ein í heiminum þar sem vinir mínir voru ekki eins áhuga- samir um þetta og hallaðist ég þá meira að hinum hefðbundnu stelpuleikföngum. Nördaáhuginn hefur þó fylgt mér alla tíð og mig langaði að skapa vettvang fyrir unglinga og ungmenni sem eru í sömu sporum og ég var á sínum tíma,“ segir Soffía Elín Sigurðar- dóttir en hún stendur fyrir svo- kölluðum Nexus Noobs nám- skeiðum í samstarfi við Nexus. „Ég hafði samband við Gísla Einarsson, eiganda Nexus, fyrir þremur árum og stakk upp á því að við héldum saman námskeið fyrir unglinga og ungmenni með nördaleg áhugamál og honum leist strax vel á hugmyndina. Markmiðið er að efla félagsstarf og tengsl milli þeirra sem hafa svipuð áhugamál, sem fylgja kannski ekki meginstraumnum en eru þó miklu merkilegri og uppbyggilegri en margir halda. Á þessum nám- skeiðum fá krakkar tækifæri til að ræða saman um áhugamálin og bera saman bækur sínar, prófa ný spil og víkka út áhugasviðið,“ segir Soffía Elín en hún hefur unnið sem sálfræðingur um árabil og sérhæft sig í meðferð unglinga og ungmenna. Vinsæl jaðaráhugamál Þegar talið berst að því hvað flokkist sem nördaleg áhugamál segir Soffía Elín að hægt sé að vera nörd í svo til hverju sem er. „Það þýðir í raun að hafa mikla þekkingu á einhverju ákveðnu sviði, eins og öllu sem viðkemur íþróttum, tölvum eða þess háttar. Nördaáhugamálin sem við hjá Nexus Noobs komum inn á eru vísindaskáldskapur, teikni- mynda- og fantasíusögur, hlut- verkaleikir, kortaspil, borðspil og herkænskuleikir. Í dag þykir bara töff að vera nörd. Lengi vel voru þetta jaðaráhugamál en þau verða sífellt vinsælli og eru að mínu mati mjög uppbyggileg. Þau krefjast skapandi hugsunar og oft mikils ímyndunarafls, það þarf að beita herkænsku, samvinnu, finna úrlausnir og geta sett sig í karakter þannig að sum reyna líka á leik- ræna hæfileika.“ Leikir eru mikilvægir Soffía Elín segir miklu mikilvæg- ara að leika sér en marga gruni því leikir séu bjargráðin okkar í lífinu. „Þeir gefa okkur tækifæri til að gera hluti sem okkur finnast skemmtilegir og dreifa huganum frá daglegu amstri. Leikir eru félagsleg athöfn og hafa jákvæð áhrif á fólk. Það er mikilvægt fyrir alla að geta kúplað sig út úr raun- veruleikanum og gert eitthvað skemmtilegt, rétt eins og að spila fótbolta eða horfa á bíómynd,“ upplýsir hún. Í þessari viku hefjast byrjenda- og framhaldsnámskeið hjá Nexus Noobs og ætlar Soffía Elín ásamt Bjarna Svani Birgissyni að kynna nördamennskuna fyrir áhuga- sömum á Íslandi, eins og hún segir. „Við tökum fyrir borðspil, kortaspil, LARP (Live Action Role Playing game) sem kallast kvikspuni á íslensku, búninga- gerð og hlutverkaspil. Þarnæstu helgi verður síðan sérstakt LARP helgarnámskeið sem Bjarni Svanur útfærir og stýrir.“ Út fyrir rammann Þátttakendur fá að búa til vopn, sæta bardagaþjálfun og síðan er spilað ævintýri þar sem þátttak- endur fá að leysa þrautir og takast á við ýmsar aðstæður – allt saman í karakter. „Á Nexus Noobs nám- skeiðunum leggjum við áherslu á jákvæð samskipti og félagatengsl og einu reglurnar eru að koma vel fram við alla og dissa ekki áhugamál annarra. Ég vil endilega að krakkarnir prófi ný áhugamál eða læri meira um það sem þau þegar þekkja. Fyrir öllu er að vera skapandi og það má fara út fyrir rammann.“ Töff að vera nörd Soffía Elín Sigurðardóttir unglingasálfræðingur stendur fyrir námskeiðum fyrir ungt fólk með nördaáhugamál á borð við vísindaskáldskap, kortaspil og herkænskuleiki. Excecutive & Professional Language Training Námskeið á Englandi fyrir þá sem hafa góðan grunn í ensku, en vilja bæta stöðu sína og ná betri tökum á faglegu tungutaki. Hagnýt þjálfun og reyndir kennarar tryggja miklar framfarir á stuttum tíma. Form námskeiðanna er sniðið að þörfum hvers og eins; Einkaþjálfun, smáhópur eða samsett. Lengd nám- skeiða; Ein vika, eða fleiri og í boði allt árið. Markviss enskuþjálfun fyrir fólk í erlendum samskiptum Ármúli 11, 3. hæð Skráning á www.dale.is Skapaðu nýtt sjónarhorn Ókeypis kynningartími 13. september kl. 20:00 2 KYNNINGARBLAÐ 1 2 . S E p T E M B E R 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U RNÁMSKEIÐ 1 2 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :2 6 F B 0 4 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D B 5 -9 D B 4 1 D B 5 -9 C 7 8 1 D B 5 -9 B 3 C 1 D B 5 -9 A 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 0 s _ 1 1 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.