Fréttablaðið - 12.09.2017, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 12.09.2017, Blaðsíða 16
Prufur voru gerðar á augnkreminu frá Taramar í sumar. Greinileg breyting varð á augnsvæði eftir 9 vikur. Poki undir augum hefur minnkað og húðfellingar á augnloki gengið til baka. Dr. Guðrún Marteinsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, er hugmynda- smiður Taramar kremanna. Upphaf Taramar kremanna má rekja til húðvandamála sem frumkvöðullinn Guð- rún átti sjálf við að etja. „Guðrún er með viðkvæma húð og í kjölfar þess að sjá fyrstu ellimörkin koma fram með tilheyrandi línum og hrukkum fór hún að nýta þekk- ingu sína til að búa til krem. Á sama tíma veitti hún athygli rannsóknum sem eiginmaður hennar var með í gangi í matvæla- fræði og til samans sáu þau að þær aðferðir voru kjörnar til að skapa nýjar leiðir til að þróa lífvirk efni úr bæði sjávarfangi og þekktum íslenskum lækningajurtum en þessi efni þykja hafa afar jákvæð áhrif á húð okkar mannfólksins,“ segir Viðar Garðarsson, markaðs- stjóri Taramar. Taramar kremin eru þannig hávísindaleg krem sem byggja á tuttugu ára rannsóknum og flutningi á miklu magni af vís- indaþekkingu úr rannsóknum á matvælum yfir í húðvörur. „Not- aðar eru háþróaðar aðferðir til að draga virku efnin úr jurtunum og fella þau inn í náttúrulegar ferjur sem flytja þau djúpt ofan í neðri lög húðarinnar,“ lýsir Viðar en ferlið við að ná lífvirku efnunum úr jurtunum tekur marga mánuði. „Við köllum þetta slow cosmetics Taramar – hávísindaleg krem Taramar kremin byggja á tuttugu ára vísindaþekkingu dr. Guðrúnar Marteinsdóttur og dr. Krist- bergs Kristbergssonar, prófessora við Háskóla Íslands. Á næstunni er von á glænýju augnkremi. með pumpum sem minnka áreiti ljóss og hugsanlegs gerlasmits frá höndum,“ segir Viðar. Fjölbreytt vörulína Fjögur krem í Taramar vöru- línunni eru nú þegar komin á markað en fimmta varan verður kynnt á vefsíðunni taramar.is í þessari viku. „Þetta er kremið Healing treatment sem er alls- herjar græðandi krem. Það hefur reynst mörgum vel með brennda húð, hvort sem er eftir sólböð eða annars konar bruna. Einnig við sólarexemi, rósroða eða bara á bossann á börnum.“ Spennandi augnkrem Nýtt augnkrem, Eye treatment, er á leið á markað í lok október og er þess beðið með mikilli eftir- væntingu að sögn Viðars. „Við fengum fjörutíu konur til að taka þátt í prófunum í byrjun júní og þær báru kremið á augnsvæðið í átta til tíu vikur kvölds og morgna. Teknar voru myndir fyrir og eftir auk þess sem konurnar svöruðu spurningum um eigin upplifun,“ segir Viðar en skemmst er frá því að segja að niðurstöðurnar lofa afar góðu. „Við erum þessa dagana að vinna úr niðurstöðunum. Við sjáum mun á öllum konunum en þó mismikið eftir húðgerð. Línur og hrukkur grynnast og dofna og í einhverjum tilfellum ganga húð- fellingar til baka. Það virðist því sem kremið sé mjög virkt,“ segir Viðar spenntur. Nánari á www.taramar.is Svava Rós Guðmundsdóttir, knattspyrnukona í Breiða-bliki, hefur glímt við meiðsli af og til á þessu ári. „Ég meiddist á ökkla í byrjun júlí þegar mikilvægur leikur var fram undan í ágúst en þá þóttu litlar líkur á að ég gæti spilað hann,“ segir Svava sem heyrt hafði af Weyergans-meðferðunum hjá Heilsu & fegrunarstofu Huldu og ákvað að láta reyna á skjótari bata. „Eftir tvö skipti var ég strax orðin miklu betri í ökklanum, gat beitt honum vel og endaði með að spila leikinn. Endurheimt eftir leiki er mikil eftir meðferðir hjá Huldu og nú er ég ekkert slæm í líkamanum eftir leiki.“ Svava fékk einnig slæmt tak aftan í rassvöðva sem leiddi aftur í læri við gang. „Eftir aðeins eitt skipti í tækinu hjá Huldu var ég orðin góð. Ég mæli eindregið með þessum meðferðum því árangur- inn er undraverður.“ Orðinn allt annar maður Magnús Gunnarsson átti erfitt með að labba upp stiga án þess að halda sér í og gat ekki stigið upp í tröppur til að skipta um ljósaperu án þess að titra. Eftir þrjú skipti hjá Huldu gengur hann nú um allt og hjólar. „Árangurinn er stórkostlegur og stórmerkilegur. Ég er bara allt annar maður,“ segir Magnús sem var skorinn upp fyrir árafjölda þegar kalk var tekið úr öxlum hans, en hann hefur átt í því síðan. „Eftir þrjú skipti hjá Huldu eru axlarvöðvarnir komnir af stað og hreyfigetan orðin mikil. Nú er ekk- ert mál að fara í golf og ég farinn að slá golfkúlunum miklu lengra en áður,“ segir Magnús kátur. „Líðan mín og líkamsgeta hafa gjörbreyst. Ég er með tvö ónýt hné og með- ferðirnar létta á öllu saman; ég þarf ekki að taka inn lyf eða neitt.“ Getur gengið á ný Haukur Haraldsson hefur lengi átt erfitt með gang og bíður þess að skipt verði um hné í honum. „Þegar ég fór til Huldu hafði ég verið sérstaklega slæmur og gat varla gengið, en það breyttist strax eftir fyrsta skiptið. Eftir þrjú skipti var ég alveg orðinn góður, líðanin breyttist til batnaðar, sem og göngulagið og fæturnir sem virkuðu,“ útskýrir Haukur sem er einkar ánægður með óvænta hliðarverkun meðferðarinnar hjá Huldu. „Ég var undirlagður af bjúg á fótum en bjúgurinn hvarf eftir meðferðina. Áður var ég hættur að ganga í sokkum því þeir sukku í holdið en nú get ég gengið í sokkum án þess að bera þess merki á eftir,“ segir Haukur og mælir heilshugar með sogæða- meðferðum Huldu. „Árangurinn er ótrúlegur og maður er allur annar á eftir.“ Heilsu- & fegrunarstofa Huldu er í Borgartúni 3. Sjá nánar á facebook. com/hfhulda Undraverður árangur Eftir örfá skipti í Weyergans-sogæðameðferð næst nánast yfirnáttúrulegur bati sem byggir á heilsuvegferð geimfara. Hulda Ósk Eysteinsdóttir er eigandi Heilsu & fegrunarstofu Huldu. Hún fór utan til að sérmennta sig í meðferðum Weyergans High Care-tækjanna frá heilsuvöruframleiðandanum Weyergans í Þýskalandi. Hulda segir gefandi að upplifa skjótan bata og aukna vellíðan skjólstæðinga sinna. MYND/ERNIR Þegar vinur eða ástvinur talar við þig, sýndu þá jákvætt við-mót, veittu honum óskerta athygli og leyfðu honum að tala. Minnstu þess að þar sem þessi manneskja er þér mjög kær á hún skilið alla þína athygli og allan þann tíma sem hún þarf til að tjá sig. Meðan þú hlustar beinirðu athyglinni að mælandanum. Ef þú finnur athyglina hvarfla frá bein- irðu henni mjúklega í rétta átt eins og mælandinn væri viðfang hug- leiðslu. Reyndu eins og þú getur að forðast að tala, spyrja spurninga eða hafa áhrif á mælandann. Mundu að þú ert að gefa honum dýrmætan tíma til að tjá sig. Þú mátt sýna jákvæð svipbrigði eða kinka kolli, jafnvel segja „ég veit“ eða „ég skil“ en reyndu að gera ekki of mikið af því og hafa þannig áhrif á mælandann. Ef hann hefur ekki fleira að segja gefðu honum þá tíma til að þegja smástund en vertu til í að hlusta á ný ef hann tekur aftur til máls. Heimild: Núvitund, leitaðu inn á við eftir Chade-Meng Tan. Óformleg æfing í núvitundarhlustun Á lífstöltinu er dýrmætt að eiga góðan vin sem kann og vill hlusta. enda eru öll kremin búin til frá grunni á Íslandi.“ Án allra rotvarnarefna Eitt það markverðasta við Taram- ar vörulínuna er að hún inniheld- ur engin manngerð rotvarnarefni. „Guðrún hefur þróað aðferða- fræði sem er einstök á heimsvísu. Aðferðin verður til þess að kremin geymast lengi án þess að rot- varnarefni komi við sögu en einn- ig er hugað að endingu kremanna með fleiri þáttum. Þannig eru kremin í svörtum glerflöskum 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 2 . S E P T E M B E R 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R 1 2 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :2 6 F B 0 4 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D B 5 -A 2 A 4 1 D B 5 -A 1 6 8 1 D B 5 -A 0 2 C 1 D B 5 -9 E F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 0 s _ 1 1 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.