Fréttablaðið - 12.09.2017, Blaðsíða 22
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
Líf, fjör og kátína á fótboltavellinum.
Íþróttaiðkun barna og unglinga hefur aukist mikið frá árinu 2002 þegar 71 prósent barna
æfði reglulega, samkvæmt því
sem segir á vefnum forskning.no.
Árið 2010 hafði sú tala hækkað
í 85 prósent. Í dag eru því afar fá
ungmenni sem ekki æfa neitt.
Áhugi á íþróttanámskeiðum er
mikill í Noregi. Sex af hverjum tíu
æfa íþróttir í hverri viku og stór
hluti er í æfingum þrisvar í viku.
Það þykir ánægjulegt að íþróttir
höfði til svo margra barna,
segir Anders Bakken sem leiddi
rannsóknina fyrir æskulýðsmið-
stöðina Nova og háskólann í Ósló.
„Þetta er sérstaklega gleðilegt þar
sem æskan í dag er frekar talin
hanga fyrir framan tölvu og þar af
leiðandi mikið í kyrrsetu.“
Rannsóknin sýnir að ungmenni
sem taka virkan þátt í íþróttum
eyða mun minni tíma fyrir framan
skjáinn en aðrir. Þau eru einnig
andlega betur á sig komin. Svo
virðist sem krakkar sem stunda
íþróttir eða taka þátt í einhvers
konar námskeiðum utan skóla-
tíma séu í betra sambandi við for-
eldra sína, hagi sér betur í skóla og
í samfélaginu yfirleitt. Þá eru þessi
ungmenni síður í hættu að byrja
að reykja eða neyta áfengis.
Svo virðist sem uppeldi skipti
miklu máli um það hvort börn
byrji í íþróttum eða taki þátt
í margvíslegum íþróttanám-
skeiðum. Efnaminni foreldrar
hvetja börn sín síður til að stunda
íþróttir. Einnig virðast margir
stunda íþróttir á barnsaldri en
hætta þegar komið er á ungl-
ingsár.
Mikilvægt er að velja námskeið
strax sem hentar barninu og það
finnur sig í. Hvort sem það er
knattspyrna, körfubolti, hand-
bolti, sund, fimleikar eða annað.
Ef barninu líkar íþróttin eru meiri
líkur á að það leggi sig fram og
haldi áfram þegar það er orðið
unglingur. Það er félagslega mjög
gott ef börn eiga sér áhugamál
utan skóla og sömuleiðis hefur
það mjög góð samfélagsleg áhrif.
Þess vegna ættu sveitarfélög að
leggja áherslu á gott aðgengi að
frístundasporti.
Norska rannsóknin sýnir að
strákar eru duglegri í íþrótta-
iðkun en stelpur. Þetta á jafnt
við þegar um er að ræða ein-
staklingsíþróttir eða í hópum.
Þau börn sem stunda einhverjar
íþróttir eiga gjarnan fleiri vini en
hinir sem stunda engar íþróttir.
Þegar krakkarnir eldast og fara
í menntaskóla eykst áhugi á
líkamsræktarsölum en minnkar á
hefðbundnum íþróttum. Nálægt
tveir af hverjum tíu unglingum
hætta að stunda hefðbundnar
íþróttir á aldrinum 15-17 ára.
Stelpur detta frekar út en strákar.
Foreldrar ættu að hvetja börn
sín til að taka þátt í einhverju
námskeiði meðfram skóla. Það
gerir barnið hamingjusamara og
dregur úr tölvunotkun.
Íþróttir hafa góð áhrif á börn
Um 93 prósent norskra barna æfa einhverjar íþróttir í frítíma. Þetta kemur fram í nýrri norskri
rannsókn. Íþróttaiðkun hefur aukist mikið á undanförnum árum.
6 KYNNINGARBLAÐ 1 2 . s e p t e m B e R 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U RNámsKeIÐ
Móðurmál - samtök um tvítyngi
Móðurmálskennsla fyrir tvítyngd börn á 25 tungumálum
Mother tongue instruction for bilingual children in 25
languages starts Hefst: 9.9. / 16.9.
Nánari upplýsingar / Information www.modurmal.com/
groups/ & modurmal@modurmal.com
Ragga Nagli - Njótum að nærast.
Eru ekki allir þreyttir á boðum og bönnum í mataræði? Hvað má og má ekki borða. Samviskubit
og sektarkennd. Á þessu námskeiði er notuð sálfræðileg nálgun á allt ferlið í kringum það að
borða. Þú öðlast færni að skilja eigin matartengdar ákvarðanir. Þú lærir að nálgast mat sem
nærir og gleður, frekar en að forðast mat. Jafnframt færðu verkfæri fyrir hug og hegðun til að
njóta jafnvægi, fjölbreytni og hófsemi í mat.
Kennari er Ragnhildur Þórðardóttir heilsusálfræðingur og þjálfari.
Næstu námskeið eru haldin 4. 5. 6. desember kl 19:30-21.30
Kennt í húsnæði Námsflokka Hafnarfjarðar
Skráning og nánari upplýsingar á
https://ragganagli.com/njotum-ad-naerast-namskeid/
Söngskólinn
í Reykjavík kynnir
Söngnámskeið 1
• Hentar fólki á öllum aldri sem hefur áhuga á söng
• Námskeið hefst mánudaginn 11. sept. Stendur yfir í 7 vikur
Söngnámskeið 2
• Hentar fólki á öllum aldri sem hefur áhuga á söng
• Námskeið hefst mánudaginn 30.okt. Stendur yfir í 7 vikur
Að kveða að - Kristján Hreinsson
• Hentar þeim sem vilja skrifa ljóð
• Hefst fimmtudaginn 5. okt. Samtals 4.5 kennslustundir
Að semja sjálf/ur - Guðmundur Steinn Gunnarsson
• Hentar öllum sem vilja læra undirstöðuatriði í tónsmíðum
• Hefst fimmtudaginn 26. okt. Samtals 4.5 kennslustundir
Að vita allt um íslenska tónlist - Bjarki Sveinbjörnsson
• Hentar öllum sem vilja fræðast meira um íslenska tónlist
• Hefst fimmtudaginn 26. okt. Samtals 4.5 kennslustundir
Að stjórna kór - Garðar Cortes
• Hentar núverandi og tilvonandi kórstjórum landsins
• Hefst fimmtudaginn 16. nóv. Samtals 4.5 kennslustundir
Nánari upplýsingar um öll námskeið má finna
á heimasíðu okkar: www.songskolinn.is/namskeid
Stílvopnið kynnir
Fjölbreytt námskeið á sviði
ritlistar og félagsörvunar
Að skrifa endurminningar
Námskeið hefst 18. sept. Alls 4 x 4 kennslustundir
Skapandi skrif - helgarnámskeið
Námskeið hefst 22. sept. Alls 3 x 4 kennslustundir
Greinaskrif – helgarnámskeið
Námskeið hefst 4. nóv. Alls 3 x 4 kennslustundir
Málfar og stíll
Námskeið hefst 28. nóv. Alls 3 x 4 kennslustundir
Nánari upplýsingar um öll námskeið má finna
á heimasíðu okkar www.stilvopnid.is
Allir í dans!
Ný námskeið að hefjast hjá
Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar.
Samkvæmisdans fyrir pör og einstaklinga, byrjendur
og framhald, 8 vikna námskeið. Kennt á mánudags-
kvöldum í Bjarkarhúsinu Haukahrauni 1, Hafnarfirði.
Salsa hefst fimmtud. 21.sept. kl. 20.00 í íþróttahúsi
Setbergsskóla.
Kennum einnig barnadansa fyrir allan aldur,
yngst 3. ára, Street Jazz og Break frá 7 ára aldri.
Sjá nánari upplýsingar á www.dih.is
1
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
B
5
-8
E
E
4
1
D
B
5
-8
D
A
8
1
D
B
5
-8
C
6
C
1
D
B
5
-8
B
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
1
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K