Fréttablaðið - 12.09.2017, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 12.09.2017, Blaðsíða 6
Iðnaður Kröfur í þrotabú málm- bræðslu GMR á Grundartanga nema 3,6 milljörðum króna og á Lands- bankinn þar af rúma tvo milljarða undir. Skiptastjóri búsins hefur reynt að selja verksmiðjuna síðan í vor og hafa bæði innlendir og erlendir fjárfestar sýnt henni áhuga. „Ég er að reyna að selja verk- smiðjuna og fyrr en það gerist mun skiptum ekki ljúka. Það hafa nokkrir aðilar sýnt henni áhuga, bæði íslenskur hópur fjárfesta, sem reyndar gerði tilboð í vor en því var hafnað enda þótti það of lágt. Síðan hef ég átt símafundi með bæði amerísku fyrirtæki og öðru evrópsku sem er staðsett í Bretlandi. Að lokum hefur eigandi fyrirtækis sem er staðsett í Sviss og er í stálvið- skiptum kynnt sér hana,“ segir Mar- teinn Másson, lögmaður og skipta- stjóri þrotabúsins. GMR Endurvinnslan hóf rekstur á Grundartanga árið 2013 en var lýst gjaldþrota í lok janúar. Fyrirtækið endurvann brotamálma, meðal ann- ars stál sem féll til við rekstur álvera hér á landi. Verksmiðjan, áhöld hennar og tæki voru í árslok 2014 metin á 2,2 milljarða króna, sam- kvæmt nýjasta ársreikningi GMR sem er í evrum, miðað við þáver- andi gengi. Lán frá Landsbankanum námu þá 2,6 milljörðum króna. Sam- kvæmt lánasamningum við ríkis- bankann voru hvorki greiddir vextir né afborganir árið 2015 og áttu fyrstu greiðslur að hefjast í júní í fyrra. Almennar kröfur í búið nema 290 milljónum króna. Þar af á íslenska ríkið átta milljóna kröfu vegna fjár- festingarsamnings sem það gerði við GMR árið 2012. ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, komst að þeirri niðurstöðu, sem EFTA-dómstóllinn staðfesti síðar, að samningurinn hefði falið í sér ólögmæta ríkisaðstoð. Ekki var búið að endurheimta hana þegar verksmiðjan fór í þrot, en Marteinn segir ólíklegt að almennar kröfur í búið fáist greiddar. Á þeim þremur árum sem málm- bræðslan var rekin skráði Umhverf- isstofnun á þriðja tug frávika frá starfsleyfi fyrirtækisins. Sætti það auknu eftirliti vegna ítrekaðra vanefnda við að koma mengunar- vörnum í viðunandi horf og fyrir að geyma spilliefni óvarin á lóðinni. „Umhverfisstofnun var með ákveðnar kröfur og þær verða teknar upp þegar og ef nýr rekstrar- aðili kemur. Ég er með starfsmann fyrir þrotabúið sem er að vinna á svæðinu og vaktar verksmiðjuna og heldur tækjabúnaði í lagi. Hann hefur verið að taka til á svæðinu. Við höfum einnig látið flytja inn í húsið spilliefni sem voru á lóðinni,“ segir skiptastjórinn. Eyþór Arnalds, fjárfestir og fyrr- verandi oddviti Sjálfstæðismanna í Árborg, var í eigendahópi GMR í árslok 2014 og stjórnarformaður félagsins þangað til í apríl í fyrra. Þá voru einnig í hluthafahópnum félög í eigu þeirra Stefáns Arnars Þórissonar, fyrrverandi stjórnar- manns GMR, og Arthurs Garðars Guðmundssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtækisins. haraldur@frettabladid.is Kröfur í málmbræðslu nema 3,6 milljörðum Landsbankinn á rúma tvo milljarða króna undir vegna lánveitinga til GMR Endurvinnslu á Grundartanga. Verksmiðjan fór í þrot í janúar en skiptastjórinn reynir nú að selja hana. Var undir auknu eftirliti Umhverfisstofnunar í fyrra. GMR hóf rekstur á Grundartanga árið 2013. FRéttablaðið/EyþóR Írak Rúmlega 1.300 fjölskyldumeð- limir hryðjuverkamanna Íslamska ríkisins eru í haldi írakskra yfirvalda. Fjölskyldunum er haldið í búðum suður af borginni Mósúl. Frá þessu greindi Reuters í gær og hafði eftir heimildarmönnum innan írakska hersins og mannúðarsamtökum. Fram kemur að Norska flótta- manna ráðið, sem aðstoðar þau sem haldið er í búðunum, líti svo á að fjölskyldunum sé í raun haldið föngnum. Um er að ræða konur og börn frá þrettán mismunandi ríkjum. Stærstur hluti fjölskyldnanna er frá Tyrklandi en þó ber nokkuð á fólki frá Tadsíkistan, Aserbaísjan og Rúss- landi auk örfárra Frakka og Þjóð- verja. Þúsundir ferðuðust til Íraks og Sýr- lands árin 2014 og 2015 til þess að slást í lið með ISIS eftir sigra þeirra á svæðinu. Flestar fjölskyldurnar flúðu borg- ina Tal Afar þegar írakski herinn endurheimti borgina af ISIS-liðum í ágúst. Í frétt Reuters segir að þær hafi gefið sig fram við hersveitir Kúrda nærri Tal Afar með fjölskyldufeðr- unum, það er hryðjuverkamönnun- um. Kúrdarnir hafi í kjölfarið afhent Írökum börnin og konurnar en ekki er vitað um afdrif feðranna. Í viðtali við AP sagði Kamel Harki, hershöfðingi Kúrda, að sumir mann- anna hafi verið afhentir Írökum en aðrir drepnir eftir að hafa þóst gefast upp og ráðist á Kúrda. – þea Fjölskyldur ISIS-liða í haldi stjórnvalda Fjölskyldurnar gáfu sig fram við hersveitir Kúrda. NoRdicphotos/aFp BÍLALAND BÝÐUR BÍLA Á FRÁBÆRUM KJÖRUM! KOMDU STRAX Í DAG OG TRYGGÐU ÞÉR GÓÐAN BÍL FRÁ BÍLALANDI ÚRVAL NOTAÐRA BÍLA NISSAN Micra Acenta Nýskr. 05/17, ekinn 3 þ.km, bensín, beinskiptur. VERÐ 2.190 þús. kr. SUBARU Forester Premium. Nýskr. 03/17, ekinn 1 þ.km, bensín, sjálfskiptur. VERÐ 4.490 þús. kr. HYUNDAI Santa Fe III Style Nýskr. 05/16, ekinn 24 þ.km, dísil, sjálfskiptur. VERÐ 5.990 þús. kr. RENAULT Clio Expression Nýskr. 09/16, ekinn 10 þ.km, bensín, beinskiptur. VERÐ 2090 þús. kr. VOLVO V40 Cross Country Nýskr. 03/16, ekinn 36 þ.km, dísil, beinskiptur. VERÐ 3.190 þús. kr. HYUNDAI i20 Premium Nýskr. 04/16, ekinn 19 þ.km, bensín, beinskiptur. VERÐ 2.290 þús. kr. Rnr. 153021 Rnr. 370548 Rnr. 121315 Rnr. 144296 Rnr. 144292 Rnr. 121309 www.bilaland.is Kletthálsi 11 - 110 Reykjavík og Hyundai notaðir bílar - Kauptúni 1 - 210 Garðabæ Sími: 525 8000 - bilaland@bilaland.is Opið frá kl. 9–18 og á laugardögum frá kl. 12–16. www.facebook.com/bilaland.is E N N E M M / S ÍA / N M 8 3 9 3 7 B íl a la n d 2 x 3 8 1 2 s e p t 1 2 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 Þ r I ð J u D a G u r6 f r é t t I r ∙ f r é t t a b L a ð I ð 1 2 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :2 6 F B 0 4 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D B 5 -9 8 C 4 1 D B 5 -9 7 8 8 1 D B 5 -9 6 4 C 1 D B 5 -9 5 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 0 s _ 1 1 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.