Fréttablaðið - 12.09.2017, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 12.09.2017, Blaðsíða 40
Jóns Sigurðar Eyjólfssonar Bakþankar Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Öll höfum við sterka hvöt til þess að hneykslast, svei mér þá ef hún er ekki jafn frek til fjörsins og kynhvötin sjálf. Áður var afar einfalt að fullnægja henni, það þurfti ekki nema einn homma í þorpið og þá voru flestir komnir með mánaðarskammt af rammri hneykslan. Einstaka sinnum var fólk svo heppið að rekast á upp- dópaða menn, fólk frá framandi slóðum eða fitubollur hvers fell- ingar náðu út fyrir öll velsæmis- mörk svo hneykslapúkinn bjó við álíka allsnægtir og neyslupúkinn nú á dögum. Svo kom áfallið. Samfélagið varð svo yfirmáta skilningsríkt að heill hópur af samkynhneigðum dugði ekki í einn dagskammt. Svo var hommerí bara orðið að léttmeti og stefnir nú í að þykja bara býsna karlmannlegt ef fram heldur sem horfir. Hvað gera hneykslunar- þyrstir bændur þá? Eftir þetta hræðilega hrun hefur þjóðin leitað logandi ljósi að ein- hverju til að hneykslast á. Viðtöl, fréttir, ummæli og alls kyns skrif á netinu eru rannsökuð með það fyrir augum að finna einhverja næringu. Menn ganga jafnvel svo langt að endurvinna greinar sem finna má einhverja hneykslun í einsog þriggja ára grein eftir Óttar Guðmundsson sem nýlega var nýtt til endur- hneykslunar. Þetta minnir okkur á það að hneyksli er ekki óendanleg auðlind. Því ber að varðveita það vel og búa vel að óknyttafólki og Brynjari Níelssyni því annars gæti svo farið að við förum að hneykslast á lesbíum og nýbúum á nýjan leik. Ég bý hins vegar við þau forrétt- indi að fylgjast með öllum hama- ganginum úr fjarska og hef bara býsna gaman af. Hins vegar verð ég að viðurkenna að þegar þörfin segir til sín stenst ég ekki mátið og verð líka svona yfirmáta hneykslaður á öllu saman. Förum vel með hneykslin Byggjum von um betra líf Þú styrkir Á allra vörum með því að kaupa varasett. OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN Í ICELAND ENGIHJALLA, VESTURBERGI, ARNARBAKKA OG GLÆSIBÆ 1 2 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :2 6 F B 0 4 0 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D B 5 -6 C 5 4 1 D B 5 -6 B 1 8 1 D B 5 -6 9 D C 1 D B 5 -6 8 A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 0 s _ 1 1 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.