Fréttablaðið - 12.09.2017, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 12.09.2017, Blaðsíða 8
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð NÝ DÖGUN www.nydogun. is • www.sorg. is • nydogun@nydogun. is Þann 13. september kl 20:00 í Safnaðarsal Háteigskirkju, ræðir Svavar Stefánsson M.Th. um sorg eftir sjálfsvíg. Að því loknu verður hægt að skrá sig í stuðningshóp þeirra sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi. Ókeypis og allir velkomnir. Að takast á við sorg eftir sjálfsvíg TUDOR rafgeymar TUDOR TUDOR AGM þurrir rafgeymar fyrir Start-Stop bíla Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta Viðurkenndir af öllum bílaframleiðendum Veldu öruggt start me ð TUDOR FYRIR FLESTAR GERÐIR BÍLA... GORMAR HÖGGDEYFAR VANRÆKTU EKKI VIÐHALDIÐ! STÁL OG STANSAR | SÍMI: 517-5000 | VAGNHÖFÐI 7 | STALOGSTANSAR.IS Það er mjög sorglegt ef málið er komið í þennan farveg en ég get ekki tjáð mig um þetta. Auðun Helga- son, fyrrverandi stjórnarmaður í United Silicon Heilbrigðismál Víða á þéttbýlis- stöðum utan höfuðborgarsvæðisins er einungis einn sjúkrabíll tiltækur. Því getur hættuástand skapast ef bílarnir bila. Sjúkrabíllinn í Vík í Mýrdal bil- aði í gær og er það í annað sinn á skömmum tíma sem það gerist. Í gær fór olíuslanga úr sambandi þann- ig að hann lak hráolíu. Fyrr á árinu hafði bíllinn bilað þegar hann var í forgangsakstri og vélin bræddi úr sér. „Þetta eru björgunartæki sem maður treystir á og þau eiga að vera í lagi. Það eiga þá að vera aukabílar til staðar ef eitthvað svona kemur upp á. Óskastaðan væri að hafa tvo,“ segir Henný Hrund Jóhannsdóttir, sem vakti athygli á ástandi bílsins á Facebook í gær. Hún leggur áherslu á að þetta sé sín skoðun og hún tali ekki fyrir munn Heilbrigðisstofn- unar Suðurlands eða annarra. Rauði krossinn á Íslandi sér um innkaup á sjúkrabílum og rekstur þeirra fyrir ríkið. Samkvæmt upplýs- ingum frá Rauða krossinum er víða einn sjúkrabíll í hverju plássi. „En þegar sjúkrabíll bilar reynum við að færa á milli og reynum að kippa því í liðinn sem allra fyrst,“ segir Bryn- hildur Bolladóttir, upplýsingafulltrúi Rauða krossins. Auk bílsins í Vík sé einn á Kirkjubæjarklaustri, tveir á Hvolsvelli og fjórir á Selfossi. „Í þessum bíl var ný vél og slangan fór í sundur, sem er óheppilegt, en ekkert við því að gera þegar bílar gera annað en að redda öðrum bíl,“ bætir Brynhildur við. – jhh Fleiri sjúkrabíla þarf á landsbyggðina Henný Hrund Jóhannsdóttir vakti athygli á sjúkrabílamálinu á Facebook í gær. lögreglumál Magnús Garðarsson, fyrrverandi forstjóri United Silicon, er talinn hafa dregið sér um hálfan milljarð með fölsuðum reikningum gefnum út á búnaðarframleiðand- ann Tenova Pyromet á Ítalíu. Magnús er einnig sakaður um að hafa haldið áfram svikum eftir að hann hætti í stjórn United Silicon og haft samband við Tenova eftir að hann var hættur afskiptum af rekstri kísilversins. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins á málið að hafa undið upp á sig við endurskipulagningu og ósk United Silicon um greiðslustöðvun. Í þeirri vinnu hafi komið upp úr kaf- inu að hugmyndir fyrirtækisins um skuldir við búnaðarframleiðandann Tenova á Ítalíu reyndust fjarri sann- leikanum. Töldu forsvarsmenn Uni- ted Silicon skuldina við fyrirtækið mun hærri en hún í raun var. Á þessum tímapunkti vöknuðu grunsemdir um að ekki væri allt með felldu í reikningshaldi fyrir- tækisins. Einnig hefur Fréttablaðið það eftir heimildum að haganlega hafi verið að verkinu staðið. Reikning- arnir hafi verið afar vel gerðir. Fjár- magnið hafi ratað á bankareikninga fyrirtækja erlendis og nú sé verið að rekja þær slóðir. Reikningarnir séu margir og mikill metnaður lagður í hin meintu sviki. „Magnús er grunaður um að hafa svikið og dregið sér verulegar fjár- hæðir í tengslum við samninga félagsins. Upphæðirnar virðast vera yfir hálfan milljarð íslenskra króna,“ segir Karen Kjartansdóttir, upplýs- ingafulltrúi og talsmaður United Silicon. „Samkvæmt þeim gögnum og athugunum sem fyrirtækið hefur farið í kemur ekkert annað fram en að aðeins einn maður hafi verið við- riðinn þetta og vitað af því hvernig í pottinn var búið,“ bætir Karen við. Auðun Helgason, fyrrverandi stjórnarmaður í United Silicon og starfandi framkvæmdastjóri fyrirtækisins á þeim tíma sem fram- kvæmdir við verksmiðjuna hófust vorið 2014, kvaðst ekki hafa kynnt sér málið þegar blaðamaður náði tali af honum í gær. „Ég hef ekki átt aðkomu að rekstr- inum síðan ég gekk úr stjórn í lok janúar og er ekkert inni í málefnum United Silicon. Ég hef ekki heyrt í Magnúsi síðan í maí eða júní en það er mjög sorglegt ef málið er komið í þennan farveg, en ég get ekki tjáð mig um þetta,“ sagði Auðun. Ekki hefur náðst í Magnús Garð- arsson þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Fréttablaðsins. Magnús er staddur erlendis og hafa hvorki lögregluyfirvöld né for- svarsmenn fyrirtækisins náð tali af honum. sveinn@frettabladid.is Kært fyrir meint svik upp á yfir 500 milljónir Magnús Garðarsson, fyrrverandi forstjóri United Silicon, hefur verið kærður vegna meints skjalafals og fjárdráttar. Talinn hafa falsað reikninga frá fyrirtæki á Ítalíu og sagst hafa fullt umboð United Silicon þótt hann væri hættur störfum. Talið er að Magnús Garðarsson, fyrrverandi forstjóri United Silicon, hafi dregið sér fé frá frá byrjun. Mynd/VíkUrFréTTir 1 2 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 Þ r i ð J u D A g u r8 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð 1 2 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :2 6 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D B 5 -9 3 D 4 1 D B 5 -9 2 9 8 1 D B 5 -9 1 5 C 1 D B 5 -9 0 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 1 1 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.