Fréttablaðið - 12.09.2017, Blaðsíða 23
Við viljum heldur
hvetja nemendur
og safngesti til þátttöku
og samtals í heimsókn-
inni því áhugi hvers og
eins skiptir máli.
Borgarsögusafn
Reykjavíkur er
spennandi menningar-
minjasafn á fimm stöð-
um víðsvegar um borg-
ina og hver staður hefur
sinn sjarma.
AlmaDís Kristinsdóttir
Fræðsluteymi Borgarsögusafns Reykjavíkur, frá vinstri: Hlín Gylfadóttir, sérfræðingur í safnfræðslu, AlmaDís Krist-
insdóttir, verkefnastjóri og sérfræðingur í safnfræðslu, og Alma Sigrún Sigurgeirsdóttir, sérfræðingur í safnfræðslu. Á
myndina vantar Jóhönnu Guðrúnu Árnadóttur, sérfræðing í safnfræðslu og sýningum. MynD/SteFÁn
Jón Páll Björnsson, sérfræðingur í
safnfræðslu og sýningum er hér á 60
ára afmæli Árbæjarsafns.
MynD/BoRGARSöGuSAFn ReyKJAvíKuR
Við erum alltaf að læra, ekki einungis í formlega skóla-kerfinu. Öll söfn, sama hvert
viðfangsefni þeirra er, eru óform-
legur námsvettvangur sem hægt
er að nýta á margbreytilegan máta
í vettvangsferðum hópa. Starf
safnkennara gengur út á að miðla
menningararfi í safnarými og að
vera eins konar „millistykki“ á
milli safns og gesta,“ segir AlmaDís
Kristinsdóttir, verkefnastjóri safn-
fræðslu Borgarsögusafns Reykja-
víkur.
Hún segir safnfræðslu ungt fag
hér á landi en að fræðsluhlutverk
safna, lista-, menningarminja- eða
náttúruminjasafna, teygi sig aftur í
aldir, allt frá því að söfn voru opnuð
almenningi á 17. öld úti í heimi, 19.
öld á Íslandi.
1 safn – 5 staðir – 4 skólastig
Fræðsluteymi Borgarsögusafns
býður upp á vandaða safnfræðslu
fyrir nemendur á öllum skólastig-
um. Til dæmis eru átján tilboð fyrir
grunnskólanema, 9 fyrir leikskóla-
nema og 7 frístundatilboð.
„Við værum samt alveg til í að
sjá meira af framhaldsskóla- og
háskólanemum þó ekki væri nema
í heimsóknum á eigin vegum,“ segir
AlmaDís. „Borgarsögusafn Reykja-
víkur er spennandi menningar-
minjasafn á fimm stöðum víðsvegar
um borgina og hver staður hefur
sinn sjarma: Í Árbæjarsafni má
upplifa sveitasælu í miðri borg; á
Landnámssýningunni er fjallað um
fyrsta fólkið á Íslandi; Ljósmynda-
safn Reykjavíkur setur myndlæsi í
fókus; Sjóminjasafnið í Reykjavík
er hafsjór af fróðleik og í Viðey
sameinast list, náttúra og saga.“
AlmaDís bætir við: „Það er of langt
mál að ræða allt okkar framboð en
á vefsíðu okkar www.borgarsogu-
safn.is er hægt að skoða alla heim-
sóknarmöguleika.“
viltu láta hella upp í þig lýsi
eða fyllast af fróðleik í safn-
heimsókn?
„Við vorum að gefa út sextán síðna
fræðslubækling með fjölbreyttum
tilboðum fyrir kennara svo þeir
geti skipulagt safnheimsóknir með
nemendur sína. Við tökum einnig
á móti hópum í frístundastarfi og
ýmiss konar sérhópum eins og
eldri borgurum og fólki sem er að
byggja sig upp eftir veikindi. Við
vinnum eftir fræðslustefnu þar sem
þátttaka, sköpun og aðgengi fyrir
alla er haft að leiðarljósi,“ útskýrir
AlmaDís.
Á forsíðu bæklingsins er mynd af
kennara að hella lýsi upp í dreng í
Laugarnesskóla árið 1951. Myndin
er úr safneign og sýnir gamla hefð
– lýsisgjöf í skólum – sem hætt var
í kringum 1970 þegar lýsispillur
komu til sögunnar.
„Þó myndin sé dálítið skemmti-
leg erum við alls ekki að hella
fróðleik í fólk með því að tala út í
eitt sem hinn „alvitri kennari“. Við
viljum heldur hvetja nemendur og
Fræðsla í Borgarsögusafni
www.borgarsogusafn.is
skólaárið2017–2018
1 safn
5 staðir
4 skólastig
www.borgarsogusafn.is
MynD/RoMAn GeRASyMenKo
Borgarsögusafn
Reykjavíkur býður
safnfræðslu
fyrir skóla- og
frístundahópa á
öllum aldri án
endurgjalds.
Safnið er á fimm
stöðum víðsvegar
um borgina.
safngesti til þátttöku og samtals í
heimsókninni því áhugi hvers og
eins skiptir máli. Við viljum að
nemendur læri á eigin forsendum
og mælum eindregið með því að
safnheimsóknir séu nýttar sem
hluti af víðtækara námi allt árið um
kring. Þannig skapast margbreyti-
leg tækifæri til að læra á virkan og
skapandi hátt,“ segir AlmaDís.
Fræðsluhús
„Fræðsluhúsið okkar er í Árbæjar-
safni og heitir Líkn. Efri hæð
hússins er notuð fyrir námskeiða-
hald, til dæmis sumarnámskeið
í sígildum ljósmyndaaðferðum
fyrir krakka. Þau læra að búa til
myndavél úr pappakassa, taka
ljósmyndir með þeim og vinna í
myrkraherbergi við framköllun.
Þá hefur Heimilisiðnaðarfélagið
haldið námskeið fyrir krakka hjá
okkur í Árbæjarsafni. Á veturna
erum við í samstarfi við skóla og
aðra aðila sem tengjast starfsemi
safnsins og erum að þróa starfið í
þá átt að bjóða framhaldsskólum
upp á að vera með nemendasýn-
ingar til dæmis á afrakstri úr ljós-
myndanámskeiðum sínum í vetur.
Á neðri hæð hússins er sýning
um sögu ljósmyndunar og herbergi
þar sem hægt er að máta föt frá
ólíkum tímabilum og taka myndir
af sér í eins konar ljósmynda-
stúdíói. Við erum áhugasöm um að
bjóða hópum að koma og teikna
í Árbæjarsafni og mögulega sýna í
þessu rými. Þetta er allt á byrjunar-
rafmagns og af hverju þorramatur
er eins og hann er,“ segir AlmaDís.
Síðustu forvöð
í Sjóminjasafni
Það eru síðustu forvöð að skoða
sýningar Sjóminjasafnsins á Granda
nú í haust en það stefnir í miklar
breytingar um mitt næsta ár þegar
ný grunnsýning opnar. „Þetta verð-
ur mjög spennandi og skemmtilegt
en við hvetjum hópa til að koma
og skoða eldri sýningarnar áður
en þær verða teknar niður í byrjun
desember,“ bætir AlmaDís við.
Bóka þarf safnfræðslu með góðum
fyrirvara í gegnum netfangið safn-
fraedsla@reykjavik.is
stigi hjá okkur en ýmsar hugmyndir
á lofti. Það verður til dæmis þorra-
dagskrá fyrir leik- og grunnskóla í
janúar og febrúar 2018. Þá einblín-
um við á hvernig það var að upplifa
vetrarkulda og myrkur fyrir tíma
KynnInGARBLAÐ 7 Þ R I ÐJ u DAG u R 1 2 . S e p t e m B e R 2 0 1 7 nÁMSKeIÐ
1
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
B
5
-9
D
B
4
1
D
B
5
-9
C
7
8
1
D
B
5
-9
B
3
C
1
D
B
5
-9
A
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
0
s
_
1
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K