Fréttablaðið - 12.09.2017, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 12.09.2017, Blaðsíða 29
Rúsínur Kanill Möndlur Grjónagrautur 1 7 -1 2 3 9 -H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Gríptu með þér grjónagraut með ristuðum möndlum, rúsínum og kanil. Léttmál frá MS eru bragðgóðar nýjungar með hreinum grunni og hollum og stökkum toppi. Einnig fáanlegt: kotasæla með berjum og möndlum og grísk jógúrt með döðlum, möndlum og fræjum. Grjónagrautur er nærandi millimál Fáir hópar hafa verið í jafn miklum forgangi í ríkisfjár­málum og notið jafn ríkulegra kjarabóta á undanförnum misserum og eldri borgarar. Útgjöld til ellilíf­ eyrisgreiðslna TR á næsta ári munu verða rúmlega 74 milljarðar króna. Aukningin frá árinu 2016, sem var síðasta gildisár eldra lífeyriskerfis, nemur 24 milljörðum króna, eða um það bið helmingsaukning. Jafnframt sýnir samantekt TR að heildartekjur lægri tekjuhelmings ellilífeyrisþega voru í febrúar 2017 um 24% hærri að jafnaði en í sama mánuði árið áður. Þessar tvær staðreyndir sýna svo ekki verður um villst að lífeyris­ kerfið hefur verið eflt verulega. Þró­ unin heldur áfram í sömu átt á næsta ári. Það sýnir að metnaður okkar er að tryggja sem best kjör fyrir eldri borgara á Íslandi. Þrátt fyrir þessa þróun má víða sjá stóryrtar yfirlýsingar um ellilífeyris­ kerfi almannatrygginga og þau áhrif sem breytingar sem gerðar voru á því um síðustu áramót hafa haft. Þær yfir­ lýsingar eru flestar á skjön við veru­ leikann, en aðrar beinlínis byggðar á röngum skilningi á ellilífeyriskerfinu. Mig langar sérstaklega að fjalla um tvær algengar fullyrðingar: 1. Að aldrei hafi staðið til að skerða lífeyrisgreiðslur almannatrygginga vegna tekna frá lífeyrissjóðum eða atvinnutekjum. 2. Að með breytingunni hafi dregið úr ávinningi aldraðra af atvinnuþátt­ töku og að breytingin hafi beinst gegn tekjulægstu hópunum. Fyrri fullyrðingin er býsna lífseig, hefur raunar verið mjög áberandi í umræðu um lífeyrismál upp á síð­ kastið. Hún felur í sér þá skoðun að almannatryggingar séu og hafi alltaf verið fyrsta stoð lífeyrisréttinda okkar þegar við hættum að vinna en sparnaður okkar í lífeyrissjóði komi síðan sem hrein viðbót. Stað­ reyndin er hins vegar sú að greiðslur frá almannatryggingum hafa alla tíð verið hugsaðar sem tekjutrygging, þ.e. komið til viðbótar öðrum tekjum lífeyrisþega. Heildstæð löggjöf um almannatryggingar leit fyrst dagsins ljós árið 1947. Stefán Ólafsson, pró­ fessor og fyrrum stjórnarformaður Tryggingastofnunar, gerir sögu kerfisins góð skil í bók sinn „Íslenska leiðin“ sem kom út árið 1999. Þar segir orðrétt á bls. 93: „Í reynd má segja að tekjutenging eða lágtekju­ miðun lífeyris hafi verið í gildi á Íslandi öll eftirstríðsárin að undan­ skildu tímabilinu milli 1960 og 1972.“ Með öðrum orðum hafi kerfinu ávallt verið ætlað að tryggja hag tekjulægri lífeyrisþega. Almennur lífeyrissparn­ aður hafi því nær allt þetta tímabil í raun verið fyrsta stoð kerfisins. Þetta rímar ágætlega við markmið núgildandi laga um almannatrygg­ ingar en þar segir í 1.gr. „Markmið laga þessara er að tryggja þeim sem lögin taka til og þess þurfa bætur og aðrar greiðslur vegna elli, örorku og framfærslu barna, eftir því sem nánar er kveðið á um í lögum þessum.“ Af þessu verður ekki annað ráðið en að ellilífeyriskerfinu hafi alla tíð verið ætlað að vera viðbót við aðrar tekjur lífeyrisþega, þ.m.t. lífeyristekjur, til að tryggja framfærslu. Hvað seinni fullyrðinguna varðar, þ.e. að minni hvati sé til að afla sér tekna í nýja kerfinu en því eldra, er ágætt að skoða einfaldlega saman­ burðinn á því sem lífeyrisþegi fær greitt í núverandi kerfi samanborið við það eldra. Á síðunni má sjá tvær myndir sem sýna annars vegar samanburðinn fyrir einstakling sem býr einn, og hins vegar einstakling í sambúð. Í nýju kerfi skerðast tekjur eins, hvort heldur sem um er að ræða lífeyristekjur eða atvinnutekjur, en í eldra kerfi skertu greiðslur frá lífeyris­ sjóðum greiðslur TR nokkuð meira en atvinnutekjur vegna frítekjumarks á síðastnefndu tekjurnar. Myndirnar sýna hvernig viðbótar­ greiðslur TR lækka eftir því sem aðrar tekjur lífeyrisþega (lárétti ásinn) hækka. Að mínu mati væri einmitt réttara í ljósi tekjutryggingareðlis almannatrygginga að horfa á það hverju almannatryggingar bæta við í stað þess að einblína á „skerðingar“. Það gefur auga leið í tekjutryggingar­ kerfi að þeir sem hærri hafa tekjurnar fá minna frá almannatryggingum. Þeir þurfa líka síður á þeim stuðningi að halda. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var ábati tekjulægsta hóps­ ins mestur af þessum breytingum, hvort sem um er að ræða einstakling í sambúð eða einstakling sem býr einn. Hækkun greiðslna til þeirra tekjulægstu var mest, líkt og stefnt var að. Þá má líka sjá að hvatinn til aukinnar vinnu af gömlu frítekju­ mörkunum er minni en af er látið þar sem svonefnd framfærsluupp­ bót (sem að hámarki gat numið 44 Eldri borgarar í forgangi Þorsteinn Víglundsson félagsmála­ ráðherra þúsund krónum, lækkaði um krónu á móti hverri krónu sem lífeyrisþegi hafði í tekjur af vinnu eða frá lífeyris­ sjóði. Þó er rétt að halda því til haga að frítekjumörk atvinnutekna höfðu meiri áhrif ef um blandaðar tekjur var að ræða, þ.e. bæði tekjur frá líf­ eyrissjóði og vegna atvinnu. Í þessu samhengi má þó einnig halda því til haga að á árinu 2016 höfðu 88,4% 67 ára og eldri engar atvinnutekjur. Einungis 7,2% ellilífeyrisþega höfðu atvinnutekjur yfir 50 þúsund krónum á mánuði. Hópurinn sem nýtur góðs af frítekjumörkum á atvinnutekjur er því mikill minnihluti eldri borgara. Þá dregur mjög úr atvinnuþátttöku með hækkandi aldri. Ávinningur eldri borgara af minni skerðingum vegna lífeyristekna er því mun meiri en tapið af afnámi frítekjumarks atvinnutekna. Síðast en ekki síst má sjá að allir lífeyrisþegar með tekjur undir 500 þúsund krónum á mánuði, hvort sem er vegna atvinnu eða greiðslna frá líf­ eyrissjóði, fá hærri tekjur frá TR í nýja kerfinu en því eldra. Það getur varla verið hægt að halda því fram með sanngirni að hvatinn til atvinnuþátt­ töku sé minni í nýja kerfinu en því eldra. Við eigum vissulega að hafa metn­ að til að tryggja eldri borgurum hér á landi góð lífskjör. Lífeyriskerfið er þar einna mikilvægasti þátturinn. Löggjafinn sýndi vilja sinn til þess að bæta lífskjör eldri borgara um síðustu áramót. Um næstu áramót hækka ellilífeyrisgreiðslur aftur, frí­ tekjumark verður hækkað og útgjöld til málaflokksins aukast enn. ✿ Heildargreiðslur TR til eftirlaunaþega fyrir og eftir breytingarnar 2017 – einstaklingur í sambúð ✿ Heildargreiðslur TR til eftirlaunaþega fyrir og eftir breytingarnar 2017 – einstaklingur sem býr einn 250000 250000 200000 200000 0 0 150000 150000 10000 10000 50000 50000 300000 0 0 500 00 500 00 100 000 100 000 150 000 150 000 200 000 200 000 250 000 250 000 300 000 300 000 350 000 350 000 400 000 400 000 450 000 450 000 500 000 500 000 550 000 550 000 Tekjur frá öðrum en TR 2017 Tekjur frá öðrum en TR 2017 Lífeyristekjur frá öðrum en TR 2016 Atvinnutekjur 2016 Atvinnutekjur 2016 Lífeyristekjur frá öðrum en TR 2016 S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 13Þ R i ð J u D A G u R 1 2 . S e p T e m B e R 2 0 1 7 1 2 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :2 6 F B 0 4 0 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D B 5 -7 B 2 4 1 D B 5 -7 9 E 8 1 D B 5 -7 8 A C 1 D B 5 -7 7 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 0 s _ 1 1 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.