Fréttablaðið - 12.09.2017, Qupperneq 29
Rúsínur
Kanill
Möndlur
Grjónagrautur
1
7
-1
2
3
9
-H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Gríptu með þér grjónagraut með
ristuðum möndlum, rúsínum og kanil.
Léttmál frá MS eru bragðgóðar nýjungar með hreinum
grunni og hollum og stökkum toppi. Einnig fáanlegt:
kotasæla með berjum og möndlum og grísk jógúrt
með döðlum, möndlum og fræjum.
Grjónagrautur
er nærandi millimál
Fáir hópar hafa verið í jafn miklum forgangi í ríkisfjármálum og notið jafn ríkulegra
kjarabóta á undanförnum misserum
og eldri borgarar. Útgjöld til ellilíf
eyrisgreiðslna TR á næsta ári munu
verða rúmlega 74 milljarðar króna.
Aukningin frá árinu 2016, sem var
síðasta gildisár eldra lífeyriskerfis,
nemur 24 milljörðum króna, eða um
það bið helmingsaukning. Jafnframt
sýnir samantekt TR að heildartekjur
lægri tekjuhelmings ellilífeyrisþega
voru í febrúar 2017 um 24% hærri
að jafnaði en í sama mánuði árið
áður. Þessar tvær staðreyndir sýna
svo ekki verður um villst að lífeyris
kerfið hefur verið eflt verulega. Þró
unin heldur áfram í sömu átt á næsta
ári. Það sýnir að metnaður okkar er
að tryggja sem best kjör fyrir eldri
borgara á Íslandi.
Þrátt fyrir þessa þróun má víða sjá
stóryrtar yfirlýsingar um ellilífeyris
kerfi almannatrygginga og þau áhrif
sem breytingar sem gerðar voru á því
um síðustu áramót hafa haft. Þær yfir
lýsingar eru flestar á skjön við veru
leikann, en aðrar beinlínis byggðar á
röngum skilningi á ellilífeyriskerfinu.
Mig langar sérstaklega að fjalla um
tvær algengar fullyrðingar:
1. Að aldrei hafi staðið til að skerða
lífeyrisgreiðslur almannatrygginga
vegna tekna frá lífeyrissjóðum eða
atvinnutekjum.
2. Að með breytingunni hafi dregið
úr ávinningi aldraðra af atvinnuþátt
töku og að breytingin hafi beinst gegn
tekjulægstu hópunum.
Fyrri fullyrðingin er býsna lífseig,
hefur raunar verið mjög áberandi í
umræðu um lífeyrismál upp á síð
kastið. Hún felur í sér þá skoðun að
almannatryggingar séu og hafi alltaf
verið fyrsta stoð lífeyrisréttinda
okkar þegar við hættum að vinna
en sparnaður okkar í lífeyrissjóði
komi síðan sem hrein viðbót. Stað
reyndin er hins vegar sú að greiðslur
frá almannatryggingum hafa alla tíð
verið hugsaðar sem tekjutrygging,
þ.e. komið til viðbótar öðrum tekjum
lífeyrisþega. Heildstæð löggjöf um
almannatryggingar leit fyrst dagsins
ljós árið 1947. Stefán Ólafsson, pró
fessor og fyrrum stjórnarformaður
Tryggingastofnunar, gerir sögu
kerfisins góð skil í bók sinn „Íslenska
leiðin“ sem kom út árið 1999. Þar
segir orðrétt á bls. 93: „Í reynd má
segja að tekjutenging eða lágtekju
miðun lífeyris hafi verið í gildi á
Íslandi öll eftirstríðsárin að undan
skildu tímabilinu milli 1960 og 1972.“
Með öðrum orðum hafi kerfinu ávallt
verið ætlað að tryggja hag tekjulægri
lífeyrisþega. Almennur lífeyrissparn
aður hafi því nær allt þetta tímabil
í raun verið fyrsta stoð kerfisins.
Þetta rímar ágætlega við markmið
núgildandi laga um almannatrygg
ingar en þar segir í 1.gr. „Markmið
laga þessara er að tryggja þeim sem
lögin taka til og þess þurfa bætur og
aðrar greiðslur vegna elli, örorku og
framfærslu barna, eftir því sem nánar
er kveðið á um í lögum þessum.“ Af
þessu verður ekki annað ráðið en að
ellilífeyriskerfinu hafi alla tíð verið
ætlað að vera viðbót við aðrar tekjur
lífeyrisþega, þ.m.t. lífeyristekjur, til að
tryggja framfærslu.
Hvað seinni fullyrðinguna varðar,
þ.e. að minni hvati sé til að afla sér
tekna í nýja kerfinu en því eldra, er
ágætt að skoða einfaldlega saman
burðinn á því sem lífeyrisþegi fær
greitt í núverandi kerfi samanborið
við það eldra. Á síðunni má sjá tvær
myndir sem sýna annars vegar
samanburðinn fyrir einstakling sem
býr einn, og hins vegar einstakling í
sambúð. Í nýju kerfi skerðast tekjur
eins, hvort heldur sem um er að ræða
lífeyristekjur eða atvinnutekjur, en í
eldra kerfi skertu greiðslur frá lífeyris
sjóðum greiðslur TR nokkuð meira
en atvinnutekjur vegna frítekjumarks
á síðastnefndu tekjurnar.
Myndirnar sýna hvernig viðbótar
greiðslur TR lækka eftir því sem aðrar
tekjur lífeyrisþega (lárétti ásinn)
hækka. Að mínu mati væri einmitt
réttara í ljósi tekjutryggingareðlis
almannatrygginga að horfa á það
hverju almannatryggingar bæta við
í stað þess að einblína á „skerðingar“.
Það gefur auga leið í tekjutryggingar
kerfi að þeir sem hærri hafa tekjurnar
fá minna frá almannatryggingum.
Þeir þurfa líka síður á þeim stuðningi
að halda.
Eins og sjá má á meðfylgjandi
myndum var ábati tekjulægsta hóps
ins mestur af þessum breytingum,
hvort sem um er að ræða einstakling
í sambúð eða einstakling sem býr
einn. Hækkun greiðslna til þeirra
tekjulægstu var mest, líkt og stefnt
var að. Þá má líka sjá að hvatinn til
aukinnar vinnu af gömlu frítekju
mörkunum er minni en af er látið
þar sem svonefnd framfærsluupp
bót (sem að hámarki gat numið 44
Eldri borgarar í forgangi
Þorsteinn
Víglundsson
félagsmála
ráðherra
þúsund krónum, lækkaði um krónu
á móti hverri krónu sem lífeyrisþegi
hafði í tekjur af vinnu eða frá lífeyris
sjóði. Þó er rétt að halda því til haga
að frítekjumörk atvinnutekna höfðu
meiri áhrif ef um blandaðar tekjur
var að ræða, þ.e. bæði tekjur frá líf
eyrissjóði og vegna atvinnu. Í þessu
samhengi má þó einnig halda því til
haga að á árinu 2016 höfðu 88,4%
67 ára og eldri engar atvinnutekjur.
Einungis 7,2% ellilífeyrisþega höfðu
atvinnutekjur yfir 50 þúsund krónum
á mánuði. Hópurinn sem nýtur góðs
af frítekjumörkum á atvinnutekjur er
því mikill minnihluti eldri borgara.
Þá dregur mjög úr atvinnuþátttöku
með hækkandi aldri. Ávinningur
eldri borgara af minni skerðingum
vegna lífeyristekna er því mun meiri
en tapið af afnámi frítekjumarks
atvinnutekna.
Síðast en ekki síst má sjá að allir
lífeyrisþegar með tekjur undir 500
þúsund krónum á mánuði, hvort sem
er vegna atvinnu eða greiðslna frá líf
eyrissjóði, fá hærri tekjur frá TR í nýja
kerfinu en því eldra. Það getur varla
verið hægt að halda því fram með
sanngirni að hvatinn til atvinnuþátt
töku sé minni í nýja kerfinu en því
eldra.
Við eigum vissulega að hafa metn
að til að tryggja eldri borgurum hér
á landi góð lífskjör. Lífeyriskerfið er
þar einna mikilvægasti þátturinn.
Löggjafinn sýndi vilja sinn til þess
að bæta lífskjör eldri borgara um
síðustu áramót. Um næstu áramót
hækka ellilífeyrisgreiðslur aftur, frí
tekjumark verður hækkað og útgjöld
til málaflokksins aukast enn.
✿ Heildargreiðslur TR til eftirlaunaþega fyrir og eftir
breytingarnar 2017 – einstaklingur í sambúð
✿ Heildargreiðslur TR til eftirlaunaþega fyrir og eftir
breytingarnar 2017 – einstaklingur sem býr einn
250000
250000
200000
200000
0
0
150000
150000
10000
10000
50000
50000
300000
0
0
500
00
500
00
100
000
100
000
150
000
150
000
200
000
200
000
250
000
250
000
300
000
300
000
350
000
350
000
400
000
400
000
450
000
450
000
500
000
500
000
550
000
550
000
Tekjur frá öðrum en TR 2017
Tekjur frá öðrum en TR 2017
Lífeyristekjur frá öðrum en TR 2016
Atvinnutekjur 2016
Atvinnutekjur 2016
Lífeyristekjur frá öðrum en TR 2016
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 13Þ R i ð J u D A G u R 1 2 . S e p T e m B e R 2 0 1 7
1
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
B
5
-7
B
2
4
1
D
B
5
-7
9
E
8
1
D
B
5
-7
8
A
C
1
D
B
5
-7
7
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
0
s
_
1
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K