Fréttablaðið - 12.09.2017, Side 40
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
Bakþankar
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Öll höfum við sterka hvöt til þess að hneykslast, svei mér þá ef hún er ekki jafn frek
til fjörsins og kynhvötin sjálf. Áður
var afar einfalt að fullnægja henni,
það þurfti ekki nema einn homma
í þorpið og þá voru flestir komnir
með mánaðarskammt af rammri
hneykslan. Einstaka sinnum var
fólk svo heppið að rekast á upp-
dópaða menn, fólk frá framandi
slóðum eða fitubollur hvers fell-
ingar náðu út fyrir öll velsæmis-
mörk svo hneykslapúkinn bjó við
álíka allsnægtir og neyslupúkinn nú
á dögum.
Svo kom áfallið. Samfélagið varð
svo yfirmáta skilningsríkt að heill
hópur af samkynhneigðum dugði
ekki í einn dagskammt. Svo var
hommerí bara orðið að léttmeti
og stefnir nú í að þykja bara býsna
karlmannlegt ef fram heldur sem
horfir. Hvað gera hneykslunar-
þyrstir bændur þá?
Eftir þetta hræðilega hrun hefur
þjóðin leitað logandi ljósi að ein-
hverju til að hneykslast á. Viðtöl,
fréttir, ummæli og alls kyns skrif á
netinu eru rannsökuð með það fyrir
augum að finna einhverja næringu.
Menn ganga jafnvel svo langt að
endurvinna greinar sem finna má
einhverja hneykslun í einsog þriggja
ára grein eftir Óttar Guðmundsson
sem nýlega var nýtt til endur-
hneykslunar. Þetta minnir okkur á
það að hneyksli er ekki óendanleg
auðlind. Því ber að varðveita það
vel og búa vel að óknyttafólki og
Brynjari Níelssyni því annars gæti
svo farið að við förum að hneykslast
á lesbíum og nýbúum á nýjan leik.
Ég bý hins vegar við þau forrétt-
indi að fylgjast með öllum hama-
ganginum úr fjarska og hef bara
býsna gaman af. Hins vegar verð ég
að viðurkenna að þegar þörfin segir
til sín stenst ég ekki mátið og verð
líka svona yfirmáta hneykslaður á
öllu saman.
Förum vel
með hneykslin
Byggjum
von um
betra líf
Þú styrkir Á allra vörum
með því að kaupa varasett.
OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN
Í ICELAND ENGIHJALLA,
VESTURBERGI,
ARNARBAKKA
OG GLÆSIBÆ
1
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
B
5
-6
C
5
4
1
D
B
5
-6
B
1
8
1
D
B
5
-6
9
D
C
1
D
B
5
-6
8
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
0
s
_
1
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K