Fréttablaðið - 12.09.2017, Síða 24
8 KYNNINGARBLAÐ 1 2 . s e p t e m B e R 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U RNámsKeIÐ
Ég get fullyrt það að fáar atvinnugreinar komast af án þess að nota hugbúnað sem
hluta af daglegum rekstri og þurfa
þar af leiðandi að reiða sig enn
meira á störf forritara. Það er því
ljóst að þörfin á nýjum forriturum
verður sífellt meiri um ókomin
ár,“ segir Finnbjörn Þorvaldsson,
brautarstjóri hjá NTV (Nýja tölvu
og viðskiptaskólanum).
„Starf forritara er ótrúlega
fjölbreytt og í raun starf án allra
landamæra og að mínu mati
skemmtilegasta starf í heimi,“
segir Finnbjörn brosandi. „Ég
skora á alla áhugasama, sem eru
að velta fyrir sér námi í dag, að
kynna sér forritunarnám og ég vil
sérstaklega hvetja fleiri konur til
að kynna sér fagið.“
NTV skólinn (Nýi tölvu og
viðskiptaskólinn) fagnar 20 ára
starfsafmæli á þessu ári. Sérstaða
skólans er að bjóða upp á starfs-
miðað nám og í anda þess hefur
NTV sett á laggirnar nýtt metn-
aðarfullt þriggja anna forritunar-
nám.
Finnbjörn segir mikil og vax-
andi tækifæri tengd náminu. Það
er þróað í samvinnu við nokkur af
stærstu hugbúnaðarhúsum lands-
ins. Í náminu læra nemendur alla
helstu færniþætti sem forritarar
þurfa að búa yfir til að starfa við
hugbúnaðarsmíði. Námið er mjög
verkefnadrifið og kennt í smærri
hópum.
„Við höfum verið að fá nem-
endur á öllum aldri með mismun-
andi bakgrunn úr atvinnulífinu
og marga sem kunnu ekkert fyrir
sér í forritun en hefur gengið mjög
vel í náminu hjá okkur. Þetta er
því nám sem er fyrir alla sem hafa
áhuga á faginu.“
Á fyrstu önn læra nemendur
helstu grundvallaratriði í forritun
og fræðast um gagnagrunna. Auk
þess fá nemendur þjálfun í „rök-
og talnafræði“. Námskeiðinu lýkur
með stóru verkefni sem þjálfar
nemendur í efni annarinnar.
Á annarri önn læra nemendur
að hanna skýjalausnir og nýta
þekkingu fyrri annar. Nemendur
læra að forrita kerfi sem eru
með viðmót í vafra og eru þar af
leiðandi ekki bundin við ákveðin
stýrikerfi og henta meðal annars
fyrir snjalltæki. Þetta er vinsælasta
leiðin fyrir nýjar hugbúnaðar-
lausnir. Önninni lýkur svo með
stóru verkefni þar sem nemendur
hnýta saman þekkingu sína af
fyrstu tveimur önnunum. Eftir
aðra önn eiga nemendur að vera
hæfir til að smíða sinn eigin hug-
búnað í Azure skýjaumhverfinu.
Á þriðju og síðustu önninni
kynnast nemendur Scrum verk-
efnastjórnun og læra að smíða
snjalltækja-App (fyrir helstu
stýrikerfi) með Xamarin lausninni.
Jafnframt læra þeir að vinna með
nýjar og áhugaverðar lausnir
hverju sinni sem kennarar flétta
inn í námið. Önninni lýkur svo
með viðamiklu hugbúnaðarverk-
efni sem nemendur þurfa að vinna
í námslok.
„NTV er í samstarfi við leiðandi
hugbúnaðarhús á markaðinum
sem hafa hjálpað okkur að þróa
námið og gera það eins gott og
það er. Þar að auki starfa flestir
kennarar skólans í tæknifyrir-
tækjum samhliða kennslu sem við
teljum tryggja að við séum alltaf
með nýjustu þekkingu og reynslu
hverju sinni í náminu. Þar að auki
er NTV líka Learning Partner hjá
Microsoft og alþjóðleg prófamið-
stöð.
Eftir ítarlegar endurbætur á
námsbrautinni með hjálp sam-
starfsaðila okkar finnum við mikil
viðbrögð bæði frá vinnumarkaði
og frá áhugasömum nemendum.
Við erum mjög stolt af náminu og
sannfærð um að við séum að gera
rétta hluti, enda höfum við aldrei
fundið eins mikinn áhuga þarna
úti og einmitt núna,“ segir hann.
Að lokum vill Finnbjörn vekja
athygli á því að fimmtudaginn 14.
september frá kl. 17-18 verður
kynning á forritunarnámi NTV og
eru allir hjartanlega velkomnir í
Hlíðarsmára 9. Hægt er að hitta
kennara og fyrrverandi nemendur
auk þess að fræðast nánar um
námið.
mikil eftirspurn eftir forriturum
til fjölbreyttra starfa
NTV skólinn fagnar 20 ára starfsafmæli á þessu ári. Í boði er öflugt forritunarnám enda mikil þörf
á fagmönnum í stéttinni. Konur eru sérstaklega hvattar til að kynna sér fagið.
Finnbjörn
Þorvaldsson,
brautarstjóri hjá
NtV.
mYND/NÍNABJÖRK
1
2
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
B
5
-A
2
A
4
1
D
B
5
-A
1
6
8
1
D
B
5
-A
0
2
C
1
D
B
5
-9
E
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
1
1
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K