Fréttablaðið - 29.08.2017, Blaðsíða 10
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000,
ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Kjartan Hreinn
Njálsson
kjartanh@frettabladid.is
Nú er kominn
tími til að
vísindamenn
fái tækifæri til
að endur-
gjalda greið-
ann.
568 8000 • BORGARLEIKHUS.IS
KORTASALAN Í
FULLUM GANGI
Ef ekkert
verður
aðhafst, þá
myndast
tómarúm
sem fjár-
sterkir aðilar
nýta sér og of
seint verður
að koma í
veg fyrir að
náttúruauð-
lindir glatist
úr eigu
þjóðarinnar
Lilja Dögg
Alfreðsdóttir
alþingismaður
Óvænti gesturinn
Um helgina fór fram aðalfundur
hjá Pírötum. Þeir sem Frétta-
blaðið hefur haft samband við
segja að fundurinn hafi verið
fámennur, einkum ef horft er
til þess að flokkurinn er áhrifa-
flokkur á Alþingi og í borgar-
stjórn. Dagskrá fundarins vakti
þó mikla athygli og hrifningu, en
uppljóstrarinn Edward Snowden
heiðraði samkomuna með því
að taka þátt í gegnum fjarfunda-
búnað. Snowden var leynigestur
og því ákaflega fáir sem vissu af
honum fyrirfram. Hugsanlega
hefði fundurinn vakið meiri
eftirvæntingu ef fólk hefði haft
spurnir af því fyrirfram að von
væri á Snowden sem gesti.
Uppgjöfin
Þótt Theodóra Þorsteinsdóttir,
þingmaður Bjartrar framtíðar,
verði seint talin fyrirferðar-
mesti þingmaðurinn á Alþingi
vekur tilkynning hennar um
væntanlegt brotthvarf athygli.
Theodóra hefur í hartnær ár
þegið laun sem bæjarfulltrúi í
Kópavogi og þingmaður. Innan
Bjartrar framtíðar fagna margir
því að Theodóra taki af skarið
og velji í hvorn fótinn hún ætlar
að stíga. Skýringarnar valda
þó væntanlega vonbrigðum.
Spyrja má sig hvort eðlilegt sé
að þingmaður flokks, sem boðar
breytta starfshætti á Alþingi,
gefist upp á verkefninu eftir
einungis nokkra mánuði í starfi.
jonhakon@frettabladid.is
Við sitjum á gullnámu. Gersemar þessar eru í formi gríðarlegs magns erfðaupplýsinga sem eru geymdar á stafrænu formi í tölvu-kerfum íslenskra vísindastofnana. Hér á Íslandi hefur ítarleg krabbameinsskrá
verið haldin frá árinu 1955 og upplýsingar um æxli hafa
verið skráðar frá árinu 1935. Íslendingabók nær aftur til
ársins 740. Þar er að finna ættfræðiupplýsingar rúmlega
800 þúsund einstaklinga. Önnur og ekki síðri verðmæti
eru fólgin í dulkóðuðum erfðaupplýsingum þúsunda
Íslendinga sem geymd eru hjá Íslenskri erfðagreiningu.
Saman mynda þessar upplýsingar gagnasafn sem er
án fordæma. Jarðvegurinn hér er frjór fyrir erfðarann-
sóknir. Slík verkefni, þar sem vísindamenn kafa ofan í
ríkulegan erfðabrunn einangraðrar og erfðafræðilega
einsleitrar þjóðar, hafa skilað urmul vísindagreina,
nýjum lyfjum og að vissu leyti nýrri sýn á líffræði okkar.
Þrátt fyrir öflugt vísindastarf, sögulegar rannsóknar-
niðurstöður og viðurkenningar sem fylgja, fer lítið
fyrir þessari þekkingu í almennri heilbrigðisþjónustu.
Á Landspítalanum starfar fámennur hópur erfðaráð-
gjafa á sameinda- og erfðalæknisfræðideild. Með dýpri
þekkingu og tækniframförum mun hlutverk þessarar
deildar, sem er sú eina sinnar tegundar á landinu, verða
æ stærra.
Sally Davies, landlæknir Bretlands, boðaði framtíðar-
sýn sína á dögunum er hún blés til stórsóknar í söfnun
erfðaupplýsinga, í þeirri von að þekking á niturbösum
kjarnsýrunnar, sem er undirstaða alls lífs, verði til að
þess að bjarga lífum og lengja þau.
Í umræðunni um það hvort einstaklingum sem bera
hættulegar stökkbreytingar, eins og BRCA, verði til-
kynnt að viss áhætta sé til staðar þá hefur okkur tekist
að tala okkur út í horn. Þær siðferðilegu spurningar
sem vakna eru fjölmargar og nauðsynlegar úrlausnar,
en þær mega ekki koma í veg fyrir að hægt sé að nýta
þekkinguna og bjarga mannslífum og jafnvel milda eða
fyrirbyggja veikindi komandi kynslóða.
Á móti kemur að hér þarf að vera til staðar heil-
brigðiskerfi sem getur tekist á við þetta mikla verkefni.
Þeir sem þekkja stökkbreytingu sína verða að hafa val-
möguleika. Það að upplýsa fólk þjónar aðeins tilgangi ef
raunhæfir valkostir eru á færi allra.
Þessa dagana stendur nefndarvinna yfir í velferðar-
ráðuneytinu. Markmið nefndarinnar er að leggja fram
tillögur um nýtingu erfðaupplýsinga í einstaklingsmið-
uðum forvörnum. Það er óskandi að nefndinni takist
að sætta siðferðileg og læknisfræðileg sjónarmið og að
við fáum loks tækifæri til að nýta þennan dulkóðaða
fjársjóð og þekkingu okkar á erfðaefni Íslendinga svo
hægt sé að bjóða þeim sem bera lífshættulegar stökk-
breytingar forvarnir og ráðleggingar.
Íslenska þjóðin hefur gefið erfðaefni sitt til raðgrein-
ingar og rannsókna. Nú er kominn tími til að vísinda-
menn fái tækifæri til að endurgjalda greiðann.
Dulkóðaður
fjársjóður
Landið okkar er verðmætt sökum náttúruauðlinda og landfræðilegrar legu. Önnur ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) hafa takmarkað eignarhald
erlendra aðila að landi og það eigum við einnig að gera.
Núverandi löggjöf er ógagnsæ og heimildir og takmark-
anir erlendra aðila utan EES-svæðisins í fasteignum hér á
landi því óskýrar m.a. vegna þess að ráðherra getur veitt
undanþágu. Því er nauðsynlegt að ráðast í heildarendur-
skoðun laga um eignarrétt og afnotarétt fasteigna.
Lög um eignarrétt og afnotarétt fasteigna kveða á um
að enginn megi öðlast eignarrétt eða afnotarétt yfir fast-
eignum á Íslandi, þar á meðal veiðirétt, vatnsréttindi
eða önnur fasteignaréttindi, nema að viðkomandi aðili
sé íslenskur ríkisborgari eða með lögheimili á Íslandi.
Samkvæmt núgildandi lögum hafa aðilar á EES-svæðinu,
einstaklingar og lögaðilar, sömu réttindi og íslenskir ríkis-
borgarar í þessum efnum. Hins vegar getur ráðherra vikið
frá þessu skilyrði samkvæmt umsókn frá þeim sem hefur
rétt til að stunda atvinnurekstur hér á Íslandi og vill öðlast
eignarrétt eða afnotarétt yfir fasteign til beinnar notkunar
í atvinnustarfsemi sinni eða til að halda þar heimili. Í gildi
var reglugerð sem meinaði erlendum aðila með lögheimili
á EES-svæðinu að kaupa land nema að kaupin væru liður
í að hann nýtti rétt sinn til að hafa á Íslandi lögmæta dvöl
eða starfsemi.
Fyrrverandi ráðherrar hafa skipað vinnuhópa um
málið sem hafa skilað ýmsum gagnlegum tillögum. Hins
vegar hefur þeim tillögum ekki verið hrint í framkvæmd.
Það er nauðsynlegt að marka skýrari stefnu, því eins og
löggjöfin er í dag þá fylgja jafnframt yfirráð yfir þeirri auð-
lind sem er á svæðinu. Í endurskoðuninni þarf að horfa
til þess að settar séu skýrar takmarkanir um fjárfestingar
erlendra aðila utan EES-svæðisins. Líta má til ríkja á borð
við Noreg, Svíþjóð og Danmörku í þessum efnum. Ef ekk-
ert verður aðhafst, þá myndast tómarúm sem fjársterkir
aðilar nýta sér og of seint verður að koma í veg fyrir að
náttúruauðlindir glatist úr eigu þjóðarinnar vegna tóm-
lætis. Staðreyndin er sú að landfræðileg lega Íslands er afar
verðmæt og mun aukast að verðmæti í framtíðinni meðal
annars vegna aukins mikilvægis norðurslóða. Alþingi
hefur verk að vinna til að gæta að hagsmunum Íslands.
Landið okkar
2 9 . á g ú s t 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D A g U R10 s k o Ð U n ∙ F R É t t A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
2
9
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
9
8
-E
F
A
4
1
D
9
8
-E
E
6
8
1
D
9
8
-E
D
2
C
1
D
9
8
-E
B
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
2
8
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K