Fréttablaðið - 29.08.2017, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 29.08.2017, Blaðsíða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 | LAUGARDAGA 11 - 16 BÆJARLIND 16 | 201 KÓPAVOGUR | SÍMI 553 7100 | LINAN.IS Hótel – Veisluþjónustur Gistiheimili – Mötuneyti Ljúffengt… … hagkvæmt og fljótlegt Danco hefur allt til að auðvelda veitingarnar hvort sem er í veisluna, mötuneytið, kokteilboðið, skólaeldhúsið, alls staðar. Forréttir, pizzur, smáréttir, forskornar tertur og fleira. Eingöngu selt til fyrirtækja Fjölbreytt úrval af matvöru og veisluréttum Nýjar vörur frá Útsöluaðilar: Útilíf – Kringlunni – Smáralind • Sportver Akureyri • Toppmenn & Sport Akureyri K Sport Keflavík • Nína Akranesi • Sportbær Selfossi • Axel Ó Vestmannaeyjum Dreifingaraðili: DanSport ehf. Hægt að sjá vörur á dansport.is www.nordanfiskur.is | 430-1700 | pantanir@nordanfiskur.is Yfir 300 vörutegundir fyrir veitingastaði, mötuneyti og fyrir þig ! Þetta liggur allt í því að við fengum víst ekki leyfi fyrir einum tökustað og þurft-um því að taka mynd-bandið út af netinu. Það eru samt margir sem halda að þetta hafi verið vegna þess að allir voru á rassinum. Þær eru nú ekki einu sinni á rassinum, þær eru auðvitað í nærbuxunum. Það er eitthvert fólk að segja: „Mátulegt á þær að vera með svona klámmyndband, búast þær við að þetta verði ekki tekið af netinu?“ Það var ekki alveg vanda- málið. Við erum að reyna að semja við þann sem á þessa flugvél en ann- ars er bara hugmyndin að blörra yfir vélina og segja að flugvélin sé of flott fyrir þetta myndband – vera með svona passive aggressive leiðindi,“ segir rapparinn og plötusnúðurinn Ragga Holm sem gerði lagið Reppa heiminn ásamt Reykjavíkurdætrum. Myndbandið vakti mikla athygli en þá sérstaklega eftir að það var tekið út af YouTube og voru ýmsir með misjafnar kenningar um það – en eins og Ragga segir snerist málið um rússneska einkaþotu sem notuð var í myndbandinu. Ragga Holm ætti að vera mörgum kunn enda hefur hún verið plötu- snúður lengi auk þess sem hún skemmtir hlustendum Áttunnar FM en þar er hún útvarpsmaður. Þau sem eru enn minnugri muna vafa- laust eftir smellinum Það er sumar sem Ragga gerði ásamt Margréti og Emmsjé Gauta árið 2011. En hvernig kemur til að hún kemur aftur fram og gerir þetta lag með Reykjavíkur- dætrum? „Þetta varð þannig til að ég og Katrín í Dætrunum vorum að vinna á sama vettvangi fyrir 2-3 árum þegar þær voru tiltölulega nýbyrj- aðar með Reykjavíkurdætur. Ég var pínu leið að missa af partíinu, því ég vissi að það hafði verið rappkonu- kvöld á Ellefunni og þá var öllum boðið að koma að rappa og Reykja- víkurdætur stofnaðar út frá því. Ég var svo hógvær og svo mikið inn í mig að ég tók ekki þátt. Svo er ég að spjalla við Katrínu, hún er að fara að gefa út lag með Helga Björns og Sóleyju, og hún rappar fyrir mig – ég var alveg „það væri alveg ógeðslega gaman að gera lag með ykkur“ og hún segir „já, gerum það!“ Síðan náttúrulega líður bara ár og svo annað ár. En þá er kominn einhver rosalegur drifkraftur í mig og ég var aftur búin að ná svo vel saman við æskuvin minn, sem gerir feitustu bítana á Íslandi, og segi honum að ég sé enn með þetta verkefni með Reykjavíkurdætrum á heilanum og bið hann að senda mér einhvern geggjaðan bít sem ég svo sendi á þær – þær alveg kolféllu fyrir honum. Reyndar héldu þær fyrst að ég hefði gert hann og voru eitthvað að grennslast fyrir um hvernig þær gætu tryggt sér hann – ég sagði bara „þetta er einfaldur díll – þið bara gerið lag með mér yfir hann og hann er ykkar“. Þannig bara fórum við Katrín að hittast og skiptast á textum.“ Lagið var tekið upp af strákunum í BLCKPRTY – enda Þorbjörn úr því tvíeyki umræddur æskuvinur Röggu. Megum við eiga von á að heyra meira? „Já, það er allt á siglingu hjá mér. Eftir að við ákváðum að gera þetta lag fyrir páska þá einhvern veginn kviknaði þrá hjá mér að byrja að gera tónlist. Ég er búin að dí djeia síðan 2010 og hef því svolítið verið að lifa í gegnum tónlist annarra þannig að mér fannst tími til kom- inn að koma einhverju frá sjálfri mér. Ég er einmitt að fara í stúdíó núna í dag til að taka upp nýtt lag með listamanni sem verður að koma í ljós hver er – þetta er nefnilega svo- lítið epískt verkefni. Þeir sem fylgjast með þessum listamanni búast pott- þétt ekki við að sjá hann í þessari senu,“ segir Ragga dularfull en segir þó að við getum átt von á að heyra lagið og sjá um hvaða listamann er að ræða mjög fljótlega enda vinni hún og samstarfsmenn hennar í BLCKPRTY mjög hratt og vel saman. „Við erum svo góð saman að ég hugsa að þetta verði bara ein taka. Við höfum svo mikla trú á því sem við erum að fara að gera – við erum alveg búin að stúdera þetta.“ Þeir sem vilja fylgjast með Röggu geta gert það bæði á Facebook-síðu hennar og á Snapchat þar sem hún er mjög virk undir notandanafninu rjholm. stefanthor@frettabladid.is Ragga Holm ætti að vera mörgum kunn enda hefur hún verið plötusnúður lengi auk þess sem hún skemmtir hlustendum Áttunnar FM en þar er hún útvarpsmaður. Ragga Holm vakti athygli fyrir helgi með samvinnuverkefni sínu og Reykjavíkurdætra, laginu Reppa heiminn. Ragga segist hafa sem plötusnúður lifað gegnum tónlist annarra og fannst tími til kominn að gera eitthvað sjálf. Vildi koma   einhverju út frá sjálfri sér það er allt á siglingu hjá mér. eftir að Við ákVáðum að gera þetta lag fyrir páska þá einhVern Veginn kVikn- aði þrá hjá mér að byrja að gera tónlist. 2 9 . á g ú s t 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D A g U R26 l í f I Ð ∙ f R É t t A B l A Ð I Ð 2 9 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 9 8 -E F A 4 1 D 9 8 -E E 6 8 1 D 9 8 -E D 2 C 1 D 9 8 -E B F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 2 8 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.