Fréttablaðið - 29.08.2017, Blaðsíða 12
Körfubolti „Það var frábær tilfinn-
ing að labba svona inn í Leifsstöð.
Þetta er vissulega skemmtileg til-
breyting og eitthvað sem ég bjóst ekki
við að fá að upplifa,“ sagði landsliðs-
fyrirliðinn Hlynur Bæringsson í gær-
morgun rétt áður en hann steig upp í
flugvél til Helsinki.
Hann hefur verið í landsliðinu frá
árinu 2000 og hefur svo sannarlega
lifað tímanna tvenna þegar kemur
að karlalandsliðinu í körfubolta.
Einu sinni var það aðeins fjarlægur
draumur að keppa á stórmóti en í gær
var Hlynur á leið á sitt annað Evrópu-
mót á tveimur árum.
Eins og firmalið fyrir tíu árum
„Umgjörðin er orðin allt önnur. Ég
vildi ekki bera það saman við það
þegar ég fyrst byrjaði. Fyrir tíu árum
þá var þetta nánast eins og firmalið
miðað við það sem er í dag með fullri
virðingu fyrir því sem var í gangi þá.
Það er stór munur á umgjörðinni og
öllu,“ segir Hlynur.
Hlynur er ekki sá eini sem upp-
lifir breytta tíma á eigin skinni.
„Umgjörðin og þetta er allt eitthvað
nýtt fyrir okkur. Það var ekki sami
pakki þegar við fórum til Berlínar,“
segir Jón Arnór Stefánsson og Martin
Hermannsson tekur undir það. „Þetta
er bara allt annað og virkilega gaman
að sjá stökkið sem við erum búnir að
taka frá síðasta Eurobasket. Auðvitað
skiptir körfuboltinn meira máli en það
er alltaf gaman þegar það er aðeins
stjanað við mann,“ segir Martin.
Skemmtilegra ef ég væri yngri
Hlynur er einn af þeim leikmönnum
sem eiga hvað mestan þátt í því að
liðið hefur komist svo langt á síðustu
árum. „Við sem erum eldri erum
stoltir af því að hafa náð því að byrja
að koma liðinu á fyrstu stórmótin.
Vonandi verða þau fleiri í framtíðinni.
Það hefði samt verið skemmtilegra að
vera þarna þegar maður var yngri,“
segir Hlynur.
Martin Hermannsson, einn af þeim
ungu, þekkir samt ekkert annað. „Ég
veit ekki af hverju þessir gömlu leik-
menn eru ekki löngu búnir að gera
þetta. Ég er búinn að vera í fimm ár
í landsliðinu og búinn að gera þetta
tvisvar,“ segir Martin og skýtur létt á
gömlu karlana í liðinu. Íslenska liðið
býr vissulega að því að vera að fara
á sitt annað Eurobasket á tveimur
árum.
„Það á eftir að nýtast okkur eitt-
hvað, en þegar við mættum til Berl-
ínar fyrir tveimur árum þá var þetta
allt saman svo nýtt fyrir okkur. Við
fórum þetta svolítið á adrenalíni og
stemningunni og við megum ekki
gleyma því,“ segir Jón Arnór og bætir
við:
„Við getum ekki mætt til Helsinki,
þóst hafa gert þetta allt saman áður
og verið einhverjir töffarar. Við
þurfum að fara þetta á stemningunni
og íslenska faktornum eins og hefur
verið talað mikið um. Við þurfum að
upplifa þetta aftur eins og við séum
að fara út í einhverja óvissu og út í
eitthvað nýtt,“ segir Jón Arnór.
Elskum að spila saman
Fyrsti sigurinn lætur enn bíða eftir sér
en mun ekki reynslan frá því í Berlín
2015 hjálpa liðinu núna?
„Okkur finnst við eiga heima þarna
sem er mjög mikilvægt fyrir okkur því
þá ertu bara ekki sáttur við að vera í
einhverjum jöfnum leik. Við vitum
það alveg enn þá að við verðum alltaf
litla liðið þarna og allt verður að detta
með okkur ef við ætlum að vinna,“
segir Hlynur.
Jón Arnór segir einu væntingarnar
vera að leikmenn íslenska liðsins ætli
að leggja sig meira fram heldur en and-
stæðingarnir.
„Við ætlum að berjast og sýna fólk-
inu heima hversu mikið við elskum að
spila saman fyrir landsliðið okkar. Við
ætlum að gera alla stolta,“ sagði Jón
Arnór rétt áður en hann hoppaði upp
í flugvél til Helsinki. ooj@frettabladid.is
Bjóst ekki við að upplifa þetta
Íslenska körfuboltalandsliðið flaug út til Helsinki í gærmorgun en strákarnir mættu allir í Leifsstöð í glæsi-
legum jakkafötum. Landsliðsfyrirliðinn segir mikinn mun á umgjörð liðsins í dag og fyrir nokkrum árum.
Jón Arnór Stefánsson, Pavel Ermolinskij, Hlynur Bæringsson og Brynjar Þór
Björnsson á ferðinni í gegnum Leifsstöð í gærmorgun. FréttABLAðið/Ernir
Íslenski hópurinn sem keppir á Eurobasket stillir sér upp fyrir framan flug-
vélina sem fór með strákana til Helsinki í gærmorgun. FréttABLAðið/Ernir
Við ætlum að
berjast og sýna
fólkinu heima hversu mikið
við elskum að spila saman
fyrir landsliðið
okkar. Við
ætlum að gera
alla stolta.
Jón Arnór
Stefánsson
ÚTSALAN
RISA
TAKMARKAÐ
MAGN!
÷50%
SUMMER GLOW
Queen Size (153x203 cm)
Fullt verð 278.711 kr.
NÚ 139.356 kr.
H E I L S U R Ú M
A
R
G
H
!!!
2
30
81
7
#6
Í dag
19.15 Valur - Afturelding Sport
StJArnAn kOMin áFrAM
Stjarnan tryggði sér í gær sæti í
32-liða úrslitum
Meistaradeildar
Evrópu með 0-1
sigri á Osijek frá
króatíu. katrín
ásbjörnsdóttir
skoraði eina mark
leiksins á 69. mínútu.
Stjarnan vann alla leiki sína í
undanriðlinum með markatölunni
21-0. Stjörnukonur hafa þrisvar
sinnum áður komist í 32-liða úrslit
Meistaradeildarinnar. Í öll skiptin
hafa þær dregist gegn liðum frá
rússlandi og alltaf dottið úr leik.
Það kemur í ljós á föstudaginn
hverjir mótherjar Stjörnunnar í
32-liða úrslitunum verða.
Undir SMáSJá nEwcAStLE
Enskir fjölmiðlar greindu frá því í
gær að enska úrvals-
deildarliðið new-
castle United
hefði áhuga
á Viðari Erni
kjartanssyni,
framherja Macc-
abi tel Aviv. Sagt er
að newcastle sé tilbúið að borga
átta milljónir punda fyrir Viðar
Örn. Selfyssingurinn var marka-
hæsti leikmaður Maccabi á síðasta
tímabili og hefur byrjað tíma-
bilið í ár af krafti. Auk Maccabi
hefur Viðar leikið með Vålerenga í
noregi, Malmö í Svíþjóð og Jiangsu
Sainty í kína síðan hann byrjaði
að spila sem atvinnumaður.
LiVErpOOL kAUpir kEïtA
Liverpool hefur náð samkomulagi
við rB Leipzig um
kaup á gíneska
miðjumanninum
naby keïta.
Félagaskiptin
munu hins
vegar ekki ganga
í gegn fyrr en í júlí
2018. Liverpool hefur samþykkt
að borga riftunarverð í samningi
keïtas sem hljóðar upp á 48 millj-
ónir punda. keïta sló í gegn með
Leipzig á síðasta tímabili. Hann
skoraði átta mörk og gaf sjö stoð-
sendingar í þýsku úrvalsdeildinni á
síðasta tímabili. Enskir fjölmiðlar
greindu einnig frá því í gær að
Liverpool hefði boðið í thomas
Lemar, leikmann Monaco.
tÍMABiLið HEFSt Í kVÖLd
Handboltavertíðin hefst formlega
í kvöld þegar Valur og Aftur-
elding eigast við á Hlíðarenda í
Meistarakeppni karla. Íslands- og
bikarmeistarar Valsmanna mæta
þarna Mosfellingum sem þeir
unnu í bikarúrslitaleiknum í fyrra.
Valur hefur styrkt sig í sumar og
fengið menn á borð við Snorra
Stein Guðjónsson og árna Þór
Sigtryggsson heim eftir margra ára
dvöl í atvinnumennsku erlendis.
Afturelding hefur verið í hópi
bestu liða landsins undanfarin ár
og metnaðurinn er mikill þar á bæ.
Leikurinn hefst klukkan
19.30 og verður
sýndur í beinni
útsendingu á
Stöð 2 Sport.
2 9 . á g ú s t 2 0 1 7 Þ r i Ð J u D A g u r12 s p o r t ∙ f r É t t A b l A Ð i Ð
sport
2
9
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
9
8
-D
B
E
4
1
D
9
8
-D
A
A
8
1
D
9
8
-D
9
6
C
1
D
9
8
-D
8
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
2
8
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K