Fréttablaðið - 29.08.2017, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 29.08.2017, Blaðsíða 20
Nám í Svæðameðferðaskóla Þórgunnu Haustönn hefst þriðjudaginn 5. september Tilvalið nám fyrir þig sem hefur áhuga á að vinna sjálfstætt eða í hlutastarfi. Viðurkennt af BIG og niðurgreitt af stéttarfélögum. Kennsla eitt kvöld í viku frá kl. 18.00 - 21.00. Nánari upplýsingar á heilsusetur.is og í síma 8969653 gæði – þekking – þjónusta Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is HAKKAVÉLAR Mikið úrval af hakkavélum sem henta stórum og smáum fyrirtækjum BIÐRAÐAKERFI - FÆRIBÖND - DEIG- & RASPVÉL - BRÝNI MÁLMLEITARTÆKI - ÁLEGGSHNÍFAR - FLUGNABANAR HAMBORGARAVÉLAR - KJÖTSAGIR - ROÐFLETTIVÉLAR FÁÐU TILBOÐ Birgitta lætur ekkert stoppa sig. Hún er alin upp í líkamsræktinni hjá foreldrum sínum, Dísu og Bjössa í World Class. Birgitta Líf Björnsdóttir hefur í nógu að snúast og nýtur þess. Auk þess sem hún er framkvæmdastjóri Ungfrú Ísland, starfar Birgitta sem samfélags- stjóri hjá World Class og Laugar Spa og er þar að auki flugfreyja hjá Icelandair á sumrin. Þá er hún meistaranemi í alþjóðaviðskipt- um. Til að komast yfir allt þetta þarf hún að halda sér í góðu formi og kann ýmis góð ráð til þess. „Ég æfi nánast daglega og er dugleg að hafa hreyfinguna fjölbreytta og skemmtilega,“ segir Birgitta þegar hún er spurð um galdurinn á bak við heilbrigðið. „Ég er í þjálfun þrisvar í viku með vinkonum mínum hjá Mark Johnson þar sem við erum í ýmsum æfingum með lóð og við lærum tæknilegri æfingar. Þess utan er ég dugleg að fara sjálf í ræktina, að hlaupa, í opna tíma, hot yoga og á dans- æfingar. Ég æfi oftast daglega enda líður mér langbest þegar ég næ æfingu yfir daginn en að meðal- tali æfi ég 4-6 sinnum í viku,“ segir hún. Þegar Birgitta er spurð hver sé uppáhaldsæfingin, svarar hún: „Í augnablikinu eru það þungar hnébeygjur þar sem ég er að æfa mig og bæta mig í þeim til að ná ákveðnu markmiði fyrir lok árs.“ Hún segist auk þess velja almennt hollt fæði. „Ég vil hafa jafnvægi í mataræðinu og mér finnst allt gott í hófi. Ég neita mér ekki um neitt,“ bætir hún við. Birgitta segist reyna að fá góða orku fyrir æfingar. „Best finnst mér að fá mér hafragraut en ef ég er á hraðferð er alltaf gott að grípa í banana. Eftir æfingu passa ég að fá strax prótein til að koma í veg fyrir vöðvaniðurbrot og finnst best að skella í mig próteinsjeik. Á milli mála eru það bananar, Froosh, próteinsjeik, Mamma Chia, próteinstykki eða rískökur sem er vinsælast hjá mér.“ En lumar Birgitta góðum ráðum fyrir þá sem vilja taka sig á í rækt- inni? „Það er mikilvægt að hafa gaman af því sem maður er að gera til að ná árangri. Góður félagsskap- ur eða góð tónlist í ræktinni getur gert gæfumuninn og verður að passa að hafa allt í góðu hófi, bæði hvað varðar æfingar og mataræði,“ segir hún en helstu áhugamál hennar eru almenn hreyfing, dans, tíska, tónlist og ferðalög. Það má því segja að Birgitta geti sameinað öll áhugamálin í störfum sínum. Allt þarf að vera í góðu hófi Keppnin um Ungfrú Ísland fór fram um helgina. Birgitta Líf Björnsdóttir er framkvæmdastjóri keppninnar og hefur haft nóg að gera undanfarna daga. Og hún er dugleg að halda sér í formi. Stund milli stríða. Birgitta Líf æfir daglega og er í hörku- formi. Elín Albertsdóttir elin@365.is 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 9 . áG ú S t 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R 2 9 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 9 9 -0 D 4 4 1 D 9 9 -0 C 0 8 1 D 9 9 -0 A C C 1 D 9 9 -0 9 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 2 8 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.