Fréttablaðið - 29.08.2017, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 29.08.2017, Blaðsíða 8
Yfirlýsing frá CoverGlobal oy Finnlandi CoverGlobal oy tilkynnir hér með öllum viðskiptavinum á Íslandi með ólokna samninga um handrið eða svalalokun úr Cover efni að þann 14. ágúst 2017 sleit CoverGlobal oy einkaleyfissamningi sínum við Gler og Brautir Intl. ehf., Skútuvogi 10B, 104 Reykjavík, sem var þáverandi einkaleyfishafi á Íslandi fyrir Cover vörur. Ekki hefur verið unnt að komast í samband við alla viðskiptavini með undir- ritaðan samning gerðan við einkaleyfishafa fyrir 14. ágúst 2017. Allir við- skiptavinir eru hvattir til að láta CoverGlobal oy vita um stöðu samnings þeirra til að tryggja afhendingu viðkomandi Coverkerfis ásamt ábyrgð. Vinsamlegast sendið tölvubréf ásamt ljósriti af samningi og upplýsingum um greiðslur sem inntar hafa verið af hendi og stöðu verksamnings og afhendingar til Juhana. Berner@coverglobal.com og cc til thuridurhalldorsdottir@gmail.com Öll vinna og uppsetningar með Cover efni eftir 14. ágúst 2017 er ólögleg ef hún hefur ekki verið samþykkt fyrirfram af CoverGlobal oy eða gerð með þeirra leyfi. Varðandi allar nýjar pantanir eða staðfestingu á þegar gefnum tilboðum eru viðskiptavinir vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Þuríði Halldórsdóttur hdl., Hátúni 6a, 105 Reykjavík. Sími 7775729. Netfang: thuridurhalldorsdottir@gmail.com Birt samkvæmt umboði undirrituðu af Päivi Rajamäki, CEO CoverGlobal Ltd. Samtök um sorg og sorgarviðbrögð NÝ DÖGUN www.nydogun. is • www.sorg. is • nydogun@nydogun. is Þann 30. ágúst kl. 20:00 í safnaðarsal Háteigskirkju ræðir Halldór Reynisson um sorgina og þau margvíslegu áhrif sem dauðsföll hafa á líf okkar. Ókeypis og allir velkomnir. Að lifa með sorg Íþróttasjóður Umsóknarfrestur til 2. október H N O T S K Ó G U R g ra fí sk h ön nu n Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Íþróttasjóði sem starfar samkvæmt lögum nr. 64/1998 og reglugerð nr. 803/2008. Veita má framlög til eftirfarandi verkefna: l Sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana l Útbreiðslu- og fræðsluverkefna l Íþróttarannsókna l Verkefna samkvæmt 13. gr. íþróttalaga Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar er að finna á www.rannis.is Umsóknum skal skila á rafrænu formi fyrir kl. 17:00, 2. október 2017. Nánari upplýsingar veitir Andrés Pétursson, andres.petursson@rannis.is, sími 515 5833. CCG As a christian church known by many from our internet page ccg.org, we know there is conciderable interest for our litter- ature in Iceland. Because of this we would like to conduct a seminar for interested persons this autumn. If anyone would like to meet with us, please contact us at secretary@ccg.org Bandaríkin Heilu hverfin eru nú á floti í fjórðu stærstu borg Bandaríkj- anna, Houston, eftir að Harvey gekk á land sem meiriháttar fellibylur á föstudagskvöld. Allt að 2.000 manns hefur verið bjargað í Houston og nágrenni. Varað er við að hið versta sé ekki afstaðið. BBC greinir frá því að sumum hafi verið bjargað af þökum húsa sinna. Í það minnsta átta manns eru látnir samkvæmt fréttum The Guardian. Alls hefur 75 sentimetra úrkoma fallið í Houston, þar sem 6,6 millj- ónir manna búa, á síðustu fjórum dögum.  Brock Long, forstjóri Almannavarna Bandaríkjanna (FEMA) segir að stormurinn sé tímamótaviðburður og biðlaði til almennra borgara um hjálp, að því er segir í frétt CNN. Almannavarnir í Bandaríkjunum búast við því að 450.000 sæki um hjálp vegna hitabeltisstormsins. Talið er að allt að 30.000 manns gætu þurft að hafast við í tíma- bundnum neyðarskýlum. The Guardian greinir frá því að Hvíta húsið sé að skipuleggja heim- sókn Donalds Trump Bandaríkja- forseta til Corpus Christi í dag, en sú borg er í 200 mílna fjarlægð frá Houston. Trump muni forðast þau svæði sem eru verst leikin eftir nátt- úruhamfarirnar. Úrhellið heldur áfram í Texas og fikrar sig nú að ríkjamörkum Texas og Louisiana. Áfram er varað við hættulegum flóðum í Texas og sömuleiðis í nágrannaríkinu. Veðurstofa Bandaríkjanna spáir því að flóðin í Texas nái hámarki á morgun eða fimmtudag. Áður en yfir lýkur er talið að svæðið fái meira en ársúrkomu á innan við viku. Þúsundir heimila voru enn án rafmagns þegar Fréttablaðið fór í prentun í gær. Mörgum skólum og tveimur aðalflugvöllum Houston hafði einnig verið lokað tíma- bundið. Kristinn Bergmann Eggertsson, sem býr nálægt miðborgHouston, sagði í fréttum Stöðvar 2 í gær borg- ina í lamasessi. „Harvey er fastur yfir Houston núna og virðist ætla að vera það næstu daga. Hann hreyfist eigin- lega ekkert, en síðan virðist sem hann muni fara aftur út á Mexíkó- flóa, styrkjast þar og koma aftur yfir Houston,“ sagði Kristinn. Aðspurður sagði Kristinn sig og eiginkonu sína, Stephanie Karas Bergmann, hafa búið sig undir- óveðrið með því að afla vista. „Við pössuðum að eiga nóg af mat og drykkjarvatni fyrir viku til tíu daga, ef við skyldum missa rafmagn og rennandi vatn,“ sagði hann. „Svo erum við búin að tæma neðri hæð- ina okkar af húsgögnum, ef ske kynni að hún fylltist af vatni.“ saeunn@frettabladid.is Áfram varað við úrhelli og flóðum í Texasfylki Að minnsta kosti átta eru látnir eftir að fellibylur gekk yfir Houston í Texas á föstudagskvöld. Alls hefur úrkoma náð 75 sentimetrum. Búist er við frekara úrhelli í Texas og Louisiana. Spáð er að flóðin nái hámarki á morgun eða hinn. Harvey er fastur yfir Houston núna og virðist ætla að vera það næstu daga. Hann hreyfist eiginlega ekkert, en síðan virðist sem hann muni fara aftur út á Mexíkóflóa, styrkjast þar og koma aftur yfir Houston Kristinn Bergmann Eggertsson, íbúi í Houston Bretland  Breska verslanakeðjan Co-Op er sú síðasta í röð verslana sem ákveðið hafa að rukka ekki viðskiptavini um svokallaðan „túr- skatt“. Skatturinn er lagður á dömu- bindi og túrtappa þar sem vörurnar flokkast sem lúxusvörur. Verðið á vörunum mun lækka um fimm prósent frá og með mánaðarlokum og mun verslunin þannig niðurgreiða þær. Á síðustu vikum hafa Tesco, Waitrose og Morrisons tekið sömu ákvörðun að því er fram kemur í frétt City A.M. um málið. Stefnt er að því að skatturinn verði lagður af á næsta ári sam- Breskar búðir afnema túrskattinn Fimm prósenta viðbótarskattur er á túrtöppum og dömubindum í Bretlandi. NordicPhotos/Getty 20% skattur var á dömubindum og túrtöppum í Bretlandi en hann var lækkaður í 5%. kvæmt löggjöf sem verið er að vinna að í evrópska þinginu. Bresku verslanirnar hafa hins vegar tekið forskot á sæluna með því að bjóða strax lægra verð. Áður hafði skattur- inn verið lækkaður úr tuttugu pró- sentum í fimm prósent. – sg Allt að 2.000 manns hefur verið bajrgað í houston-borg og nágrenni. NordicPhotos/Getty 2 9 . á g ú s t 2 0 1 7 Þ r i Ð J U d a g U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a Ð i Ð 2 9 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 9 9 -0 3 6 4 1 D 9 9 -0 2 2 8 1 D 9 9 -0 0 E C 1 D 9 8 -F F B 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 2 8 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.