Fréttablaðið - 29.08.2017, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 29.08.2017, Blaðsíða 6
Forsetar funduðu Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, heimsótti í gær tyrkneskan starfsbróður sinn, Recep Tayyip Erdogan. Af því tilefni smellti hirðljósmyndari þess síðarnefnda mynd af kollegunum á flugvelli í Ankara. Málefni Ísraels og Palestínu voru í brennidepli og talaði Erdogan um að friður myndi nýtast báðum þjóðum mjög. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA BÍLALAND BÝÐUR BÍLA Á FRÁBÆRUM KJÖRUM! KOMDU STRAX Í DAG OG TRYGGÐU ÞÉR GÓÐAN BÍL FRÁ BÍLALANDI ÚRVAL NOTAÐRA BÍLA HYUNDAI Santa Fe III Comfort. Nýskr. 05/17, ekinn 1 þ.km, dísil, sjálfskiptur. VERÐ 6.350 þús. kr. RENAULT Kadjar Zen 4WD. Nýskr. 07/16, ekinn 48 þ.km, dísil, beinskiptur. VERÐ 3.490 þús. kr. HYUNDAI I30 Classic. Nýskr. 01/16, ekinn 39 þ.km, bensín, beinskiptur. VERÐ 2.390 þús. kr. SUBARU Forester Premium. Nýskr. 05/16, ekinn 63 þ.km, bensín, sjálfskiptur. VERÐ 3.690 þús. kr. HYUNDAI I10 Comfort. Nýskr. 04/16, ekinn 40 þ.km, bensín, beinskiptur. VERÐ 1.490 þús. kr. KIA Sorento III Luxury. Nýskr. 05/16, ekinn 64 þ.km, dísil, sjálfskiptur. VERÐ 5.690 þús. kr. Rnr. 121285 Rnr. 370734 Rnr. 370724 Rnr. 152890 Rnr. 121300 Rnr. 144217 www.bilaland.is Kletthálsi 11 - 110 Reykjavík og Hyundai notaðir bílar - Kauptúni 1 - 210 Garðabæ Sími: 525 8000 - bilaland@bilaland.is Opið frá kl. 9–18 og á laugardögum frá kl. 12–16. www.facebook.com/bilaland.is E N N E M M / S ÍA / N M 8 3 7 1 6 B íl a la n d 2 x 3 8 2 9 á g ú s t StjórnSýlSa Gunnar Rúnar Sigur- þórsson, sem dæmdur var í 16 ára fangelsi fyrir morðið á Hannesi Þór Helgasyni í október 2011, afplánar nú í opnu fangelsi að Sogni. Hann hefur fengið rétt til að fá dagleyfi úr fangelsinu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins sáu íbúar á Holtinu í Hafnarfirði Gunnar Rúnar þar nýlega. Hann bjó í hverfinu þegar morðið var framið. „Ég get ekki tjáð mig um einstök mál. Reglur um dagleyfi eru lög- bundnar og farið er að þeim við afgreiðslu leyfisbeiðna. Um leyfin gilda ákvæði 5. kafla laga um fulln- ustu refsinga,“ segir Páll Winkel, for- stöðumaður Fangelsismálastofnunar. „Samkvæmt fyrrgreindum laga- ákvæðum getur fangi ekki fengið dagleyfi fyrr en hann hefur afplán- að þriðjung refsitímans, þó ekki skemmri tíma en eitt ár. Þegar tekin er ákvörðun um dagleyfi skal meðal annars tekið tillit til afbrots, saka- og afplánunarferils og hegðunar í fangelsi sem og því hvort viðkom- andi hafi nýtt sér meðferðarúrræði sem til boða standa í fangelsinu,“ segir Páll. Páll bendir á að ef talin er þörf á geri sálfræðingar Fangelsismálastofn- unar sálfræðilegt áhættumat áður en ákvörðun er tekin. „Ef fanga er heim- ilað að fara í dagleyfi eru honum sett ýmis skilyrði fyrir því,  svo sem  að neyta ekki ávana- og fíkniefna og að gera ekkert eða fara annað í leyfinu en samræmist tilgangi þess,“ segir Páll. Þá sé hægt að setja mönnum frekari skilyrði, svo sem að hafa ekki samband við brotaþola, að tilkynna sig til lögreglu eða fangelsisyfirvalda meðan á leyfinu stendur, að vera með búnað svo að Fangelsismálastofnun geti fylgst með ferðum hans og fleira. Gunnar Rúnar var handtekinn þann 27.  ágúst 2010. Þá voru tólf dagar liðnir frá því að Hannes Þór Helgason var myrtur á heimili sínu. Gunnar Rúnar játaði verknaðinn við yfirheyrslur hjá lögreglu. Hann var dæmdur árið 2011 í sex- tán ára fangelsi í Hæstarétti Íslands. Í mati geðlækna kom fram að sjálfs- víg föður hans hafi haft mikil áhrif á Gunnar Rúnar og raskað tilfinninga- lífi hans. jonhakon@frettabladid.is Gunnar Rúnar fær leyfi til að fara til síns heima Maðurinn sem varð Hannesi Þór Helgasyni að bana, Gunnar Rúnar Sigurþórs- son, afplánar nú í opnu fangelsi og fær dagleyfi með samþykki forstöðumanns fangelsisins. Hann var dæmdur í sextán ára fangelsi í október 2011. Gunnar Rúnar Sigurþórsson hefur setið í gæsluvarðhaldi og fangelsi í hartnær sex ár. Hann getur sótt um dagleyfi einu sinni í mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELm Ef fanga er heimilað að fara í dagleyfi eru honum sett ýmis skilyrði fyrir því. Páll Winkel, for- stöðumaður Fangelsismála- stofnunar. 2 9 . á g ú S t 2 0 1 7 Þ r I Ð j U D a g U r6 f r é t t I r ∙ f r é t t a B l a Ð I Ð 2 9 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 9 9 -0 8 5 4 1 D 9 9 -0 7 1 8 1 D 9 9 -0 5 D C 1 D 9 9 -0 4 A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 2 8 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.