Fréttablaðið - 02.08.2017, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 02.08.2017, Blaðsíða 6
Réttað yfir samsærismönnum Réttarhöld hófust í gær yfir 350 hermönnum sem grunaðir eru um að hafa átt þátt í valdaránstilrauninni í Tyrklandi 15. júlí í fyrra. Um 400 týndu lífinu í tilrauninni sem fór út um þúfur. Ríflega átta þúsund hermenn voru handteknir auk þess sem tæplega 50 þúsund ríkisstarfsmenn voru reknir úr embætti grunaðir um að hafa stutt tilraunina. Kenningar eru uppi um að Erdogan forseti hafi skipulagt hana sjálfur. Fréttablaðið/EPa LANDBÚNAÐUR Gegndarlaus offram- leiðsla á kindakjöti er rót þess vanda sem blasir við í sauðfjár- búskap, að mati Þórólfs Matthías- sonar, prófessors í hagfræði við Háskóla Íslands. Hann segir bændur verða að minnka framleiðsluna og laga hana að markaðinum í stað þess að seilast enn einu sinni í vasa skattborgara. „Ég held að það sé kominn tími til þess að bændur setjist niður og horfi á raunveruleikann eins og hann blasir við, rétt eins og búskapurinn væri hver önnur atvinnugrein, og taki ákvarðanir út frá honum en ekki einhverri óskhyggju,“ segir Þórólfur í samtali við blaðið. Líkt og Fréttablaðið fjallaði um í gær er útlit fyrir að birgðir af kinda- kjöti í landinu við upphaf sláturtíð- ar í haust verði sjö hundruð til eitt þúsund tonnum meiri en æskilegt væri. Um mitt þetta ár voru birgð- irnar um 2.600 tonn sem er tæpum þrettán prósentum meira en á sama tíma í fyrra. Innanlandssala hefur gengið vel en útflutningur dregist nokkuð saman. Samdrátturinn var 5,1 pró- sent í fyrra og 14,4 prósent árið þar áður. Eru bændur uggandi yfir mögulegri lækkun á afurðaverði í haust. Þórólfur segir að framleiðsla á kindakjöti sé á milli þrjátíu til fimmtíu prósent umfram neyslu hér innanlands. Ekki fari á milli mála að of mikið sé framleitt af kjöti. Verk- efnið sem bændur standi frammi fyrir sé að laga framleiðslugetuna að markaðinum miðað við það verð sem þeir þurfa að fá til þess að geta staðið undir framleiðslukostnaði. „En forysta bænda hefur aldrei verið tilbúin til þess að gera það,“ segir hann. Hún hafi frekar, svo dæmi séu tekin, leitað leiða til þess að seilast dýpra ofan í vasa skatt- borgara, svo sem til þess að greiða fyrir auknum útflutningi, og reynt að selja Bandaríkjamönnum, sem hafa aldrei borðað kindakjöt, slíkt kjöt. „Ef menn telja sig vera með hágæðavöru í höndunum fara menn með þá vöru á markaði sem þekkja vöruna, til dæmis í Bretlandi, Frakk- landi og að hluta til í Miðjarðarhafs- löndunum í tilviki lambakjötsins. Í staðinn hafa menn hins vegar verið að leika sér í New York.“ Þórólfur segir forystu bænda syngja sama sönginn á hverju einasta sumri. „Bændur stíga fram og segja að afurðaverðið á stöðv- unum verði að hækka. En þá verður birgðavandi þeirra einungis enn þá meiri og þeir þurfa þá að borga enn meira með útflutningnum ef þeir ætla að flytja eitthvað út. Þeir lenda í þessum vonda spíral þar sem allt sem þeir gera eykur á vandann og enga leið er að finna út úr honum.“ kristinningi@frettabladid.is Segir offramleiðslu á kindakjöti rót vandans Prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands vill stöðva gegndarlausa offramleiðslu á kindakjöti. Hann segir bændur verða að laga framleiðslu sína að markaðs­ aðstæðum. Fara verði með kindakjötið á markaði þar sem varan er þekkt. Ég held að það sé kominn tími til þess að bændur setjist niður og horfi á raunveruleikann eins og hann blasir við. Þórólfur Matthías- son, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ SUMARSALA Kailber KG-2 Gasgrill 4x3,5KW brennarar, grillflötur 303,6 cm2,14KW Áður kr. 52.880 39.660 25% AFSLÁTTUR Flott í ferðalagið Kailber Ferðagasgrill 2x2,5KW brennarar, grillflötur 196 cm2, 5KW, vagn fylgir Áður kr. 29.980 19.787 34% AFSLÁTTUR – Tengir þig við framtíðina! Sjónvarpsdreifikerfi fyrir hótel, gistiheimili og skip. Auðbrekku 3 • Kópavogur • s. 564 1660 oreind@oreind.is • www.oreind.is 2 . á g Ú s t 2 0 1 7 M I Ð V I K U D A g U R6 f R é t t I R ∙ f R é t t A B L A Ð I Ð 0 2 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :3 0 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 6 B -E B 8 4 1 D 6 B -E A 4 8 1 D 6 B -E 9 0 C 1 D 6 B -E 7 D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 1 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.