Fréttablaðið - 20.07.2017, Síða 12
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000,
ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Þorbjörn
Þórðarson
thorbjorn@frettabladid.is
Krónan leiðir
til óstöðug
leika, býr til
sveiflur sem
leiða til
óábyrgra
fjárfestingar
ákvarðana og
óstöðugs
kaupmáttar.
Seðlabankinn
kynnti
hugmyndina,
bar ábyrgð á
framkvæmd
inni og gerði
aðstöðu
muninn
mögulegan.
Full búð af
nýjum vörum!
Verið velkomin í Verslun Guðsteins, Laugavegi 34
Síðan 1918
Dætur og synir
Nokkrir af helstu Facebook-ridd-
urum Íslendinga tóku sig til og
opnuðu á umræðu um íslenska
nafnahefð í kjölfar grátlegs
ósigurs kvennalandsliðsins í
knattspyrnu. Er það svo sem ekki
í fyrsta sinn sem rætt er um þá
hefð að merkja treyjur íþrótta-
manna með föður-, eða jafnvel
móðurnafni, leikmanna.
Þó finnst pistlahöfundi mikil-
vægt að haldið sé áfram að benda
á þessi furðulegheit. Þótt það
geti vissulega þótt flott að vera
með herferð á borð við #dóttir
þá heita leikmenn sínum eigin
nöfnum sem sjálfsagt er að ein-
kenna þá með. Þannig heitir
landsliðsfyrirliðinn Sara Björk en
er Gunnarsdóttir. Svo ekki sé á
það minnst að #dóttir mismunar
eiginlega leikmönnum á borð við
Elínu Mettu Jensen.
267
Lögreglan á Suðurlandi greindi
frá því í gær að 267 ökumenn hafi
verið staðnir að umferðarlaga-
brotum það sem af er mánuð-
inum. Það er dálítið mikið. Alls
hafa 924 verið staðnir að brotum
frá því um miðjan maí sem er
aukning frá því í fyrra. Þar af voru
Íslendingar um fjörutíu prósent.
Spurning er hvort það þurfi
annaðhvort að endurskoða
umferðarlög, þar sem stór hluti
vegfarenda hundsar hluta þeirra,
eða ökukennslu, jafnt hérlendis
sem erlendis.
thorgnyr@frettabladid.is
Íslenska krónan er óútreiknanleg eins og glöggt hefur komið fram undanfarna daga. Örlitlar breytingar í utan-ríkisverslun og gjaldeyrisflæði geta haft ófyrirsjáanlegar
afleiðingar á hag fyrirtækja og almennings.
Sterk króna ógnar nú afkomu fyrirtækja sem græddu vel
á veikri krónu fyrir fáeinum misserum. Störf í nýsköpun og
þekkingariðnaði, sem áttu að tryggja fjölbreytni atvinnu-
lífsins, streyma úr landi á ný. Krónan er hemill á heilbrigð
viðskipti.
Við almenningi blasir ólík mynd. Eftir hrunið var krónan
lítils virði og kaupmáttur dvínaði. Nú er öldin önnur. Krónan
hefur náð sömu hæðum og fyrir hrun og það er lítið mál að
skjótast á fjarlæg heimshorn. Kaupmáttur hefur aukist mikið
á Íslandi að undanförnu og verkefni næstu missera er að
varðveita hann. Krónan leiðir til óstöðugleika, býr til sveiflur
sem leiða til óábyrgra fjárfestingarákvarðana og óstöðugs
kaupmáttar. Vextir eru og verða mun hærri á Íslandi en í
viðmiðunarlöndum vegna óstöðugleika krónunnar. Þetta er
ósanngjarnt og leiðir til óþarfa átaka í samfélaginu .
Viðreisn var stofnuð til þess að stuðla að sátt og stöðug-
leika. Slíkur stöðugleiki næst aldrei nema með stöðugum
gjaldmiðli sem stendur undir nafni og býður upp á svipaða
vexti og í nágrannalöndum. Viðreisn bendir á myntráð til
þess að festa gengi krónunnar. Mörg Evrópuríki hafa nýtt
slíka lausn í áratugi, flest sem áfanga í því að taka upp evru.
Eftir hrun töldu sumir krónuvinir að það tæki Íslendinga ára-
tugi að uppfylla skilyrðin fyrir upptöku evru. Eina skilyrðið
sem við föllum á núna er of háir vextir.
En má fjármálaráðherra hafna krónunni? Fjármálaráð-
herrar í nítján Evrópulöndum hafa þegar hafnað sínum miðli
fyrir evruna. Enn fleiri nýta sér evruna án beinnar aðildar eða
tengja gjaldmiðil sinn beint við evru. Já, fjármálaráðherra
ber skylda til að leggja til þann kost sem er farsælastur fyrir
Íslendinga.
Nú er tíminn til þess að ýta gömlum kreddum til hliðar og
þora að marka leið stöðugleika þar sem hagsmunir almenn-
ings og fyrirtækja fara saman. Viðreisn velur stöðugleikann,
en til þess að öðlast hann þurfum við öll að vera óhrædd við
breytingar eins fljótt og hægt er.
Má fjármálaráðherra
hafna krónunni?
Benedikt
Jóhannesson
fjármálaráð-
herra
Yfirleitt er rætt um ójöfnuð í sambandi við tekjur, tækifæri og stöðu mismunandi hópa en ójöfnuður á sér margar birtingar-myndir. Auk efnahagslegs ójöfnuðar má nefna félagslegan og menningarlegan ójöfnuð og allt það í samfélaginu sem
skapar hindranir eða girðingar á milli ólíkra þjóðfélags-
hópa.
Það er sjaldgæft í norrænum samfélögum að ríkis-
valdið sjálft ýti undir ójöfnuð eða lagskiptingu sam-
félagsins með beinum aðgerðum. Það gerðist engu
að síður hér á landi þegar Seðlabanki Íslands ákvað
árið 2012 að búa til umgjörð fyrir efnaða Íslendinga
til að flytja gjaldeyri til landsins og kaupa krónur með
miklum afslætti með svokallaðri fjárfestingarleið. Til-
gangurinn var að laða erlent fjármagn inn í landið og
hleypa um leið aflandskrónum út en aðgerðin var skref
í losun gjaldeyrishafta.
Fjárfestingarleiðin fólst í því að eigendum gjaldeyris
var gert mögulegt að kaupa krónur af aflandskrónueig-
endum á 20-30 prósent betra verði en opinbert gengi
Seðlabankans sagði til um. Fjölmargir fjárfestar og fyrir-
tæki nýttu sér tækifærið og alls komu 1.100 milljónir
evra til landsins í útboðum á grundvelli leiðarinnar á
árunum 2012-2015. Í gær var greint frá því í Markaðn-
um í þessu blaði að gengishagnaður vegna fjárfestinga á
grundvelli leiðarinnar næmi alls 75,7 milljörðum króna.
Þegar upp var staðið voru það að miklu leyti efnaðir
Íslendingar eða útlendingar með tengsl við landið sem
nýttu sér úrræðið. Árið 2012 voru Íslendingar að baki
43 prósenta alls þess fjár sem kom inn í landið með fjár-
festingarleiðinni. Það er á skjön við upphaflegan tilgang
leiðarinnar eins og hún var kynnt af Seðlabankanum.
Til skoðunar eru fjögur skattsvikamál hjá skatt-
yfirvöldum vegna fjármagnsflutninga í tengslum við
fjárfestingarleiðina. Þá er umhugsunarvert að á meðal
þeirra sem högnuðust um mörg hundruð milljónir
króna með fjárfestingarleiðinni eru menn sem hafa
hlotið þunga dóma fyrir efnahagsbrot í Hæstarétti
Íslands og opinber rannsóknarnefnd hefur staðfest að
keyptu eignir af ríkinu með blekkingum eftir síðustu
aldamót.
Þótt markmið fjárfestingarleiðarinnar hafi verið göf-
ugt er erfitt að skilja hvernig stjórnendur Seðlabankans
hafi ekki áttað sig á hversu ósanngjarnt tæki þetta var til
að ná settu markmiði og jafnframt þeim siðferðisbresti
sem fólst í framkvæmdinni. Í þessu sambandi skiptir
ekki máli þótt Seðlabankinn hafi aðeins verið milliliður
á milli fjárfesta og eigenda aflandskróna. Seðlabankinn
kynnti hugmyndina, bar ábyrgð á framkvæmdinni og
gerði aðstöðumuninn mögulegan. Venjulegt fólk var
læst með tekjur sínar inni í gjaldeyrishöftum á sama
tíma og efnaðir Íslendingar sem áttu gjaldeyri gátu
keypt krónur með afslætti. Þeir högnuðust svo ríkulega
eftir losun hafta.
Með fjárfestingarleiðinni ýtti Seðlabankinn enn
frekar undir ójöfnuð í íslensku samfélagi og styrkti
þannig stoðir þeirrar útbreiddu kenningar að í landinu
séu tvær þjóðir. Efnuð forréttindastétt annars vegar og
launafólk hins vegar.
Tvær þjóðir
2 0 . j ú l í 2 0 1 7 F I M M T U D A G U R12 s k o ð U n ∙ F R É T T A B l A ð I ð
SKOÐUN
2
0
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:3
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
5
8
-B
4
8
8
1
D
5
8
-B
3
4
C
1
D
5
8
-B
2
1
0
1
D
5
8
-B
0
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K