Útsýn - 15.10.1945, Page 1

Útsýn - 15.10.1945, Page 1
ÚTSÝN 15. okt. 1945 ÚTSÝN I. árg. ÓHÁÐ FRÉTTABLAÐ 1. tbl. A ÍSLAND AÐ GERAST HJALEIGA BANDARÍKJANNA? Þau vilfa leigja bækistoðvar hér lyrir loffher og flota „um langan tíina** UM LANGAN tíma hefur gengið hér þrálátur orðrómur um, að Bandaríkja- menn myndu ekki ætla að hverfa í burt af landinu með herafla sinn og alveg sérstaklega um, að þeir myndu ekki afhenda íslenzka ríkinu hina stórkostlegu flugvelli, sem þeir hafa gert hér á landi. Ilvað eftir annað liafa borizt hing- að fréttir um, að ainerísk hlöð og ein- stakir amerískir stjórnmálamenn hafi látið orð falla um, að það væri brýn hernaðarleg nauðsyn fyrir Bandarík- in að halda í framtíðinni bækistöðv- um sínum á íslandi. Þessir stjórn- málamenn og lilöð eru úr þeim hópi manna í Bandaríkjunum, sem vilja gera þau að sem mestu heimsveldi og herveldi og vilja neyta til þess sig- ursins í hinni nýafstöðnu heims- styrjöld. Alveg nýlega lét Gerliardt þingmað- ur frá Kaliforníu svo um mælt, að það væri sín skoðun, að Bandaríkin ættu að bjóða Islandi að gerast 49. sam- bandslýðveldi Bandaríkjanna. Af þessu tilefni lét ríkisstjórn ís- lands spyrjast fyrir um það í Wa- shington — eins og rétt var — hvort mark væri takandi á þessum og svip- uðum ummælum og fékk þá það svar, að hér væri aðeins um blaðaþyt að ræða. Lét ríkisstjórnin tilkynna þetta svar hér í blöðum og útvarpi. Engu að síður liefur fyrrnefndur orðrómur magnazt, einkum síðustu dagana áður en alþingi kom saman. TfíUMAN, Bandaríkjaforseti. l.ANbSBÓKASA.rN -V5 162548

x

Útsýn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Útsýn
https://timarit.is/publication/1267

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.