Útsýn - 15.10.1945, Page 2

Útsýn - 15.10.1945, Page 2
ORÐSENDING BANDARIKJANNA, frh. Þœr sögusagnir, sem gengið hafa manna á milli undanfarna daga, fengu byr undir báða vængi við það, að á þriðjudaginn, 2. þ. m., skömmu fyrir hádegi gekk forsætisráðherra á fund forseta íslands og nokkru síðar ýmsir aðrir stjórnmálamenn. Ennfremur var síðari hluta þriðjudags haldinn lok- aður fundur í Sameinuðu Alþingi, eins og dagblöðin hafa skýrt frá. Þá fréttist það og, að sendiherra Sovjetríkjanna, Krassilnikov, fór á- leiðis til Moskvu á þriðjudaginn, og er það eðlilega sett i samband við þetta mál. Enn þá hefur engin opinber til- kynning verið gefin' um málið, en það er nú þegar á fjölda manna vit- orði, að Bandaríkjastjórn hefur sent íslenzku ríkisstjórninni orðsendingu, um herv'ernd íslands i framtiðinni. Með því að full vissa er fyrir þvi, að þingmenn og ráðherrar hafa skýrt frá efni þessarar orðsendingar, og sú leynd, sem kynni að hafa verið talin æskileg um máiið á þessu stigi þess, með öllu rofin, en jafnframt farnar að myndast liinar ótrúlegustu sögu- sagnir út af þessu máli, telur þetta blað sér frjálst að segja frá því eins og það veit sannast og réttast eftir góðum heimildum. ★ Orðsending sú, sem sendiherra Bandaríkjanna athenti forsætisráð- lierra á mánudagsmorguninn, 1. þ. mán., er alllangt skjal, en efni þess er í stuttu máli það, að ríkisstjórn Bandaríkjanna telur sér nauðsyn að halda bækistöðvum hér á landi, bæði fyrir flugher og flota. Fer hún því fram á, að íslendingar leigi sér hækistöðvar í þessu skyni til langs tíma. Myndu Bandaríkin þar með taka að sér hervernd landsins. Bækistöðvar þær, sem hér er um að ræða, eru fyrst og fremst liinn mikli flugvöllur á Reykjanesskaga, sem amerískir sérfræðingar hafa lýst sem einum hinum stærsta í heimi og telja hafa kostað uin 100 millj. króna, flugliöfn í Fossvogi og síðást en ekki sízt herskipalægið í Hvalfirði, sem brezki flotinn hefur nýlega yfirgefið. Hins vegar hafa Bretar ekki enn 2 yfirgefið flugvöllinn í Reykjavík og ekkert lieyrzt um, hvenær það muni verða. Hefur það vakið athygli, að þeir halda áfram að reisa þar bygg- ingar, sem virðast ætlaðar til fram- búðar, svo sem sjúkrahús og fleira. Um þetta mál ganga nú hinar furðu- legustu sögusagnir hér í bænum, og má það merkilegt heita, að víst er, að þær komu á kreik áður en orðsending Bandaríkjanna hafði borizt ríkisstjórn- inni. Meðal annars er fullyrt manna á meðal, að í orðsendingunni séu boðin stórkostleg fríðindi til handa íslendingum, svo sem 300 millj. doll- ara; kaup á öllum afurðum lands- manna o. s. frv. Fullvíst er, að þetta er algerlega tilhæfulaust. í orðsend- ingunni er ekki minnzt á neinar greiðslur af hálfu Bandaríkjanna. Þá eru og tilhæfulausar sögusagnir um, að mikill herskipafloti sé kominn í Hvalfjörð. Herverndarsamnmgamir. Eins og öllum er kunnugt, voru á árinu 1941 (8. júlí) gerðir samningar við Bandarikin um hervernd lands- ins á meðan á heimsstyrjöldinni stæði. Þessir samningar voru gerðir í því formi, að ísland fól Bandaríkjunum varnir landsins með ákveðnum skil- yrðum. Þessi skilyrði voru m. a.: 1. „Bandaríkin skuldbinda sig til að hverfa burtu af íslandi með allan herafla jsinn, á landi, í lofti og á sjó, undireins og núverandi ófriði er lokið. 2. Bandarikin skuldbinda sig enn- fremur til að viðurkenna algert frelsi og fullveldi Islands og að beita öllum áhrifum sínum viðí þau ríki, er standa að friðarsamn- ingunum, að loknum núverandi ófriði, til þess, að friðarsamning- arnir viðurkenni einnig algert frelsi og fullveldi lslands". ★ Bandarikin féllust á öll þessi skil- yrði með orðsendingu, sem forseti Bandaríkjanna, Franklin D. Roose- velt, sendi forsætisráðherra íslands. 1 þessari orðsendingu sagði forset- inn m. a.: „Mér er það ánægja að staðfesta hér með við yður, að skilyrði þau, sem sett eru fram í orðsendingu yðar, er ég hef nú móttekið, eru fyllilega aðgengileg fyrir ríkisstjórn «1 Bandaríkjanna og að skilyrða þess- ara mun verða gætt í viðskiptunum milli Bandaríkjanna og íslands . . . (( Síðar í orðsendingunni lofar for- setinn því fyrir hönd Bandaríkjanna: „að strax og núverandi liættuástandl í milliríkjaviðskiptum er loldð, skuli allur slíkur herafli og sjóher lát- inn hverfa á brott þaðan, svo að íslenzka þjóðin og ríkisstjórn henn- ar ráði algerlega yfir sínu eigin landi“. ★ 1 sambandi við þessa hervernd voru af Bretlands liálfu gefnar eftir- farandi yfirlýsingar: „1. Bretland lofar að viðurkenna al- gert frelsi og fullveldi Islands og að sjá til þess, að ekki verði gengið á rétt þess í friðarsamn- ingunum né á nokkurn annan hátt að ófriðnum loknum. 2. Bretland lofar að hverfa burtu héðan af landinu með allan her- afla sinn jafnskjótt og flutningi Bandaríkjahersins er svo langt komið, að hernaðarlegur styrkur þess er nægilegur til að verja landið, enda verði vörnum lands- ins þannig hagað á meðan á skiptunum stendur, að þær verði aldrei minni en þær eru nú . . .“ Þann 16. ágúst 1941 kom Winston Cliurchill, þáverandi forsætisráðherra Bretlands í heimsókn til Reykjavikur. , Hann var þá að koma frá því að und- irrita Atlantshafssáttmálann fræga, ásamt Roosevelt forseta, en í honum var því lýst yfir af hálfu Breta og Bandaríkjamanna (og síðar af Rúss- um, er þeir gerðust aðilar að sátt- málanum), að þessir bandamenn óski ekki eftir neinum ávinningi af styrj- öldinni sér til handa, hvorki með landvinningum eða á annan hátt“, og „að þeir óski eftir því, að allar þjóð- ir sem sviptar hafa verið fuirveldi sínu og sjálfstjórn öðlist það á ný að stríðinu loknu". (Frh. á 4. bls.). ÚT SÝN

x

Útsýn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Útsýn
https://timarit.is/publication/1267

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.