Fréttablaðið - 12.10.2017, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 12.10.2017, Blaðsíða 16
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Halldór Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@frettabladid.is Sú kynslóð sem hefur rutt brautina fyrir okkur hin á skilið að lifa áhyggjulausu lífi. Við hin sem höfum tekið við og störfum að málum til að bæta sam- félagið verðum að tryggja að aldraðir þurfi ekki að bíða áhyggjufullir eftir þjónustu- og hjúkrunaríbúðum, hafi val um að vinna og þurfi ekki að borga háar fjárhæðir í tannlæknakostnað. Framsókn vill stórátak í byggingu á þjónustuíbúðum og hjúkrunarrýmum fyrir aldraða. Við viljum byggja 300 nýjar íbúðir á ári fyrir aldraða næstu árin. Biðlistar eru langir og munu lengjast verði ekki gripið til aðgerða. Framsókn vill leita eftir samstarfi við lífeyrissjóðina um að fjárfesta fyrir minnst 10 milljarða árlega í hag- kvæmum þjónustu- og hjúkrunaríbúðum fyrir aldraða í þeim sveitarfélögum þar sem þörfin er brýnust. Lífeyris- sjóðirnir þurfa fleiri fjárfestingarkosti og gæti þessi leið verið samfélagslega hagkvæm. Framsókn vill afnema frítekjumarkið af atvinnu- tekjum. Margir þeir sem eru komnir á efri ár og eiga rétt á lífeyri frá almannatryggingum vilja halda áfram að vinna. Fólk á rétt á að hafa val. Þeir sem vilja og geta unnið eiga að fá tækifæri til þess. Fátt er jafn ömurlegt og að langa til að halda áfram á atvinnumarkaðnum en upplifa neikvæða umbun í formi skerðingar á lífeyri. Atvinnuþátttaka aldraðra leiðir til betri heilsu og heil- brigðara samfélags. Framsókn vill einnig setja 1 milljarð strax í aukna niðurgreiðslu á tannlæknakostnaði aldraðra. Rann- sóknir hafa sýnt að tannheilsu aldraðra hefur hrakað síðastliðin ár. Hver skyldi vera orsökin fyrir því? Tann- læknakostnaður getur verið stór biti að kyngja fyrir marga. Sérstaklega ef innkoman er bundin við lágmarks- lífeyri. Ríkið verður að standa við loforð um að greiða niður 75% af kostnaðinum. Gjaldskrá um endurgreiðslu aldraðra þarf að uppfæra svo hún endurspegli hækkanir síðustu ára. Við höfum forsendur til að framkvæma þessi atriði. Afgangur er af ríkisrekstri og sveigjanleikinn er til staðar. Aldraðir eiga að geta lifað eðlilegu, áhyggjulausu lífi og fá að taka þátt í samfélaginu. Getum við ekki öll verið sammála um það? Minni áhyggjur – meira val Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Fram- sóknarflokksins 2017 Aldraðir eiga að geta lifað eðlilegu, áhyggjulausu lífi og fá að taka þátt í samfélaginu. Getum við ekki öll verið sammála um það? Stór hluti miðjunnar í íslenskum stjórnmálum er horfinn. FYRIR FLESTAR GERÐIR BÍLA... GORMAR HÖGGDEYFAR VANRÆKTU EKKI VIÐHALDIÐ! STÁL OG STANSAR | SÍMI: 517-5000 | VAGNHÖFÐI 7 | STALOGSTANSAR.IS Miðað við skoðanakannanir undanfarinna daga er ljóst að mikill mannauður yfirgefur þingið eftir 28. október enda eiga tveir til þrír miðjuflokkar á hættu að þurrkast út í kosningunum. Hverjar eru skýringar þess að jafnaðarmenn hafa tapað svona miklu fylgi alls staðar í Evrópu? Skýringuna má líklega að hluta rekja til þess að jafnaðarmanna- flokkar hafa misst tengsl við fortíð sína og þann jarðveg sem þeir spruttu upp úr. Þá hefur sósíaldemókrötum mistekist að ræða efnislegt inntak ójöfnuðar. Þeir hafa sett stefnumál á oddinn sem varða ekki brýnustu aðkallandi hagsmunamál launafólks. Lítið fer fyrir umræðu um þá staðreynd að alþjóðleg stórfyrirtæki hafa lækkað framleiðslukostnað gríðarlega á undan- förnum áratugum en aðeins skilað broti af gróðanum í vasa neytenda. Sósíaldemókratar á Íslandi hafa á ný tvístrast þvert yfir hið pólitíska svið þótt margir þeirra hafi fylkt sér um Vinstri græna. Þrátt fyrir róttæk stefnumál virðist VG hafa tekið við hlutverki stóra jafnaðarmannaflokks- ins þótt mikið fylgi við flokkinn sé líklega vísbending um að einstaka persónur og traust til þeirra sé farið að skipta meira máli en stefnumálin. Hér er að sjálfsögðu vísað til persónufylgis Katrínar Jakobsdóttur en enginn annar forystumaður stjórnmálaflokks nýtur jafn mikils trausts meðal almennings og hún. Samfylkingin virðist hafa endurheimt hluta af kjarnafylgi sínu. Fyrir alþingiskosningarnar 1995 tapaði Alþýðuflokkurinn talsverðu fylgi til klofningsfram- boðsins Þjóðvaka. Rétt fyrir kjördag náði flokkurinn þó að snúa við blaðinu og fékk 11,4 prósent og sjö þingmenn kjörna sem var kannski kjarnafylgi flokksins á þeim tíma. Gamla kratafylgið hefur að einhverju leyti skilað sér „heim“ til Samfylkingarinnar fyrir komandi kosningar þótt stuðningur við flokkinn sé bara brot af því sem hann var upp úr síðustu aldamótum. Það eru ekki bara jafnaðarmenn sem hafa tvístrast út um allt. Stór hluti miðjunnar í íslenskum stjórnmálum er horfinn. Miðað við skoðanakannanir síðustu daga og vikna eiga tveir til þrír miðjuflokkar á hættu að þurrkast út í kosningunum. Það er erfitt að segja hversu áhrifagjarnir kjósendur eru upp til hópa eða hversu óöruggir þeir eru með eigin sannfæringu. Eru margir kjósendur að yfirgefa miðjuna því hún hefur tapað trú- verðugleika? Stökkva stuðningsmenn miðjuflokkanna frá borði því þeir hafa dalað í könnunum? Vera kann að margir vilji að þessu sinni ráðstafa atkvæði sínu til sterkra flokka og tengja nýleg framboð við óöryggi og óstöðugleika. Ef Björt framtíð og Viðreisn komast ekki yfir 5 pró- senta þröskuldinn hverfur mikill mannauður af þingi. Framsóknarflokkurinn er líka í hættu. Ef til vill sjáum við núna með skýrum hætti ókosti 5 prósenta þrösk- uldsins sem innleiddur var með stjórnarskrárbreyting- unum 1999. Hætt er við því að flokkar sem eiga 10-15 prósent í samanlögðu atkvæðamagni eigi enga fulltrúa á Alþingi eftir kosningar. Það er slæmt fyrir lýðræðið í landinu. Miðjan horfin Sviptingar í Viðreisn Benedikt Jóhannesson er ekki lengur formaður Viðreisnar en á fundi ráðgjafaráðs flokksins í gær var ákveðið að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tæki við embætt- inu. Líklega er hún betur til þess fallin að halda flokknum á þingi enda færari stjórnmálamaður, reyndari og mælskari. Viðreisn hefur mælst undir fimm prósenta þröskuldinum alræmda og hefur stefnt í að flokkurinn detti af þingi, aðeins ári eftir að hann fékk sjö menn kjörna. Orð Benedikts Jóhannessonar í Ríkissjónvarpinu fyrr í vikunni voru svo ekki til þess fallin að bæta stöðuna enda baðst formaðurinn þáverandi afsökunar á þeim morguninn eftir. Eitt stórt samsæri Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son er enn á þeirri skoðun að atburðarásin sem varð til þess að hann missti forsætisráðuneytið og formannsstólinn í Fram- sóknarflokknum sé eitt stórt samsæri. Í gær spurði Sigmundur Davíð hvort það væri líklegt að það sé tilviljun að fréttir um að nafn hans sé í gögnum sem þýska alríkislögreglan hefur miðlað til íslenskra yfirvalda birtist korteri fyrir kosningar. Áður hefur Sig- mundur Davíð sagt að Panama- skjölin séu komin frá athafna- manninum George Soros sem hefur verið alræmdur á meðal samsæriskenningasmiða víða um heim undanfarin misseri. thorgnyr@frettabladid.is 1 2 . o k t ó b e r 2 0 1 7 F I M M t U D A G U r16 s k o ð U n ∙ F r É t t A b L A ð I ð SKOÐUN 1 2 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 3 F B 0 7 2 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D F 4 -9 7 E 0 1 D F 4 -9 6 A 4 1 D F 4 -9 5 6 8 1 D F 4 -9 4 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 7 2 s _ 1 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.