Fréttablaðið - 12.10.2017, Blaðsíða 18
Alþingiskosningar fara fram 28. október nk. Sem eldri borgari geri ég kröfu til
þess, að frambjóðendur skýri frá
stefnu sinni í málefnum aldraðra
og öryrkja. Mál þeirra hafa verið í
ólestri undanfarið, einkum kjara-
málin. En lífeyri aldraðra og öryrkja
hefur verið haldið svo mjög niðri,
að engin leið hefur verið að lifa af
þeim lífeyri, sem stjórnvöld hafa
skammtað þeim. Þeir hafa ekki
haft nóg fyrir öllum útgjöldum og
oft hafa lyf eða læknishjálp orðið
útundan; það er mannréttinda-
brot. Ég er að tala um þá sem hafa
eingöngu tekjur frá almannatrygg-
ingum.
Ég tel vegna þeirrar uppsveiflu
sem nú er í efnahagslífi þjóðarinnar
Lífeyrir aldraðra hækki strax í 320 þúsund kr. á mánuði eftir skatt
Verðtryggingin er mikill skað-valdur fyrir heimilin í landinu. Verðtrygging lána veltir allri
áhættu af verðbólgu framtíðarinn-
ar yfir á heimilin en gerir banka og
lánveitendur stikk-frí. Verðtrygging
er ósanngjarn lánasamningur sem
banna ætti með lögum. Enginn lán-
veitandi ætti að geta tryggt sig gegn
framtíðarverðbólgu á kostnað heim-
ila. Sé það leyft hafa lánastofnanir
landsins lítinn hvata til að vinna gegn
verðbólgu. Bankarnir eiga svo mikið
af verðtryggðum útlánum að þeir
hagnast um 2-3 milljarða fyrir hvert
prósent sem verðlag hækkar. Þetta
er viðsjárverð staða fyrir heimilin
því bankar geta með þessu haft áhrif
á verðlagsþróun. Það er að sjálfsögðu
óásættanlegt að bankar geti hagnast
á verðbólgu á kostnað heimilanna.
Erlendir og innlendir hagfræðingar
vara eindregið við verðtryggingu íbú-
ðalána. Til dæmis geti efnahagsáföll
og gengislækkun leitt til stökkbreyt-
ingar verðtryggðra lána. Einnig hafa
verið færð rök fyrir því að verðtrygg-
ingin dragi svo úr virkni stýrivaxta
að þeir þurfi að vera hærri en ella
auk þess sem verðtryggð íbúðalán
ýti undir hringrás verðlagshækkana.
Á meðan löglegt er að bjóða upp
á verðtryggð lán munu mörg heimili
freistast til að taka á sig áhættu af
verðbólgu framtíðarinnar í þeirri von
að hún raungerist ekki. Mörg heimili
munu áfram taka verðtryggð jafn-
greiðslulán þótt vitað sé að höfuðstóll
þeirra hækkar fyrstu tuttugu árin og
skuldastreðið standi út starfsævina.
Þess vegna telur Framsókn nauð-
synlegt að afnema verðtryggingu
neytendalána svo þeim bjóðist kjör
sem heimili ráða við. Setja þarf bann
við veitingu nýrra verðtryggðra lána,
létta greiðslubyrði óverðtryggðra
lána og skapa hvata og stuðning til að
umbreyta verðtryggðum skuldum í
óverðtryggð lán. Ýmsar útfærslur eru
mögulegar til að ná þessum markmið-
um. Framsóknarflokkurinn hefur lagt
fram frumvörp um afnám verðtrygg-
ingar og er reiðubúinn til að vinna að
þessu mikilvæga verkefni í samráði við
aðra þingflokka.
Ávinningur þess að banna verð-
tryggingu og umbreyta eldri lánum
í óverðtryggð lán er margþættur
og munu vextir óverðtryggðra lána
lækka. Peningastefnutæki Seðlabank-
ans verða skilvirkari og stýrivextir og
vaxtastig lækka. Verðbólguáhættu
framtíðarinnar verður deilt jafnar
milli lánveitenda og heimilanna. Komi
til verðbólguskots mun ekki þurfa að
hækka vexti jafn mikið til að slá á á
þensluna. Bankar munu ekki geta velt
allri verðbólgunni yfir í vaxtastigið og
þeir munu ekki geta bætt sjálfum sér
verðbólguna á kostnað heimila með
því að hækka eftirstöðvar lána.
Afnám verðtryggingarinnar er
mesta kjarabót sem hægt er að ná fram
fyrir heimilin í landinu. Lífið á nefni-
lega að snúast um ýmislegt annað og
meira en bara strita fyrir steypu.
Afnemum verðtrygginguna
Save the Children á Íslandi
að tímabært sé að gera myndar-
lega lagfæringu á kjörum aldraðra
og öryrkja þannig að lífeyrisþegar
þurfi ekki áfram að bera kvíðboga
fyrir morgundeginum. Tillaga mín
er þessi: Lífeyrir aldraðra hækki
strax eftir kosningar í 320 þúsund
krónur á mánuði eftir skatt (425
þúsund kr. á mán. fyrir skatt). Það
er ekki unnt að lifa mannsæmandi
lífi af lægri upphæð. Þessi upphæð
er í samræmi við neyslukönnun
Hagstofunnar en samkvæmt könn-
un á meðaltalsútgjöldum einhleyp-
inga í landinu er þetta sú upphæð
sem einstaklingar nota að meðal-
tali til neyslu. Skattar eru ekki inni í
þeirri tölu hjá Hagstofunni og því er
þessi upphæð í samræmi við lífeyri
TR eftir skatt.
Síst of mikið fyrir eldri borgara
Einhverjum finnst ef til vill að það
sé of mikið fyrir aldraða að hafa
320 þúsund kr. á mánuði í lífeyri
frá TR eftir skatt, miðað við að
þeir hafi engar aðrar tekjur. Það
finnst mér ekki. Meðallaun í land-
inu eru 667 þúsund kr. á mánuði
samkvæmt nýrri launarannsókn
Hagstofunnar. Það er fyrir skatt.
Alþingismenn hafa 1,2 milljónir
kr. á mánuði og ráðherrar hafa 1,8
milljón á mánuði. Forsætisráðherra
hefur rúmar 2 milljónir á mánuði.
Þessar greiðslur eru fyrir utan auka-
sporslur og hlunnindi. Forstjórar
og framkvæmdastjórar fyrirtækja
hafa 1,6 millj. kr. á mánuði. Miðað
við þessi háu laun er það ekki mikið
þó eldri borgarar, sem lokið hafa
vinnudegi sínum, hafi 320 þúsund á
mánuði. Þetta eru þeir, sem skapað
hafa þetta þjóðfélag.
Vantar fleiri hjúkrunarheimili
Enda þótt kjaramálin séu mikilvæg-
ust eru önnur mál einnig mikilvæg.
Til dæmis vantar fleiri hjúkrunar-
heimili. Biðlistar eru langir eftir
rými þar; erfitt fyrir eldri borgara
að komast þar inn. Byggja verður
fleiri hjúkrunarheimili. Einnig þarf
að búa betur að heimahjúkrun svo
eldri borgarar geti verið sem lengst
heima. Heimahjúkrun er undir-
mönnuð og býr við fjárskort. Úr því
þarf að bæta.
Björgvin Guð-
mundsson
viðskipta
fræðingur
2017
Enda þótt kjaramálin séu
mikilvægust eru önnur mál
einnig mikilvæg. Til dæmis
vantar fleiri hjúkrunar-
heimili.
Lárus S.
Lárusson
skipar 1. sæti
Framsóknar
flokksins í
Reykjavík
norður
2017
Það er að sjálfsögðu
óásættan legt að bankar
geti hagnast á verðbólgu á
kostnað heimilanna.
Vöðva eða
liðverkir?
Voltaren Gel er bæði
verkjastillandi og
bólgueyðandi
Voltaren Gel - njótum þess að hreyfa okkur
Voltaren 11,6 mg/g hlaup. Inniheldur díklófenaktvíetýlamín. Staðbundnir bólgukvillar. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun
lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Voltaren_Gel 5x10.indd 1 31/03/2017 13:44
Þjónustumiðstöð
tónlistarfólks
1 2 . o k t ó b e r 2 0 1 7 F I M M t U D A G U r18 s k o ð U n ∙ F r É t t A b L A ð I ð
1
2
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
F
4
-8
4
2
0
1
D
F
4
-8
2
E
4
1
D
F
4
-8
1
A
8
1
D
F
4
-8
0
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
7
2
s
_
1
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K