Fréttablaðið - 12.10.2017, Side 32

Fréttablaðið - 12.10.2017, Side 32
Sífellt fleiri vinnustaðir halda upp á bleika daginn. Hér er starfsfólk Akranes- kaupstaðar í bleiku á Bleika daginn 2016. Stefán Þór Steindórsson, byggingar- fulltrúi bæjarins (annar frá vinstri í fremstu röð), saumaði fánann. Bleiki dagurinn verður haldinn hátíðlegur á morgun, föstu­daginn 13. október, en þá eru landsmenn hvattir til að sýna sam­ stöðu, klæðast bleiku og hafa bleikt í fyrirrúmi. Dagurinn hefur notið sívaxandi vinsælda undanfarin ár og sífellt fleiri skipuleggja bleik kaffiboð í vinnunni og heimafyrir. Hugmyndin er að vekja athygli á árvekniátaki Bleiku slaufunnar og baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Ef fyrirtæki og félagasamtök vilja nota tækifærð og styrkja bleiku slaufuna á einhvern hátt eru til þess ýmsar leiðir. Hægt er að láta hluta af ágóða af sölu ákveðinnar vöru renna til félagsins eða gefa hlut af veltu dagsins eða bleika mánaðar­ ins, ef því er að skipta. Þá er hægt að gefa fasta upphæð af hverri færslu eða stakt framlag. Eins er hægt að vekja athygli á átakinu með því að skreyta með bleiku eða standa fyrir bleiku boði svo dæmi séu nefnd. Á vef Bleiku slaufunnar segir að bleiki mánuðurinn sé kjörinn fyrir fyrirtæki sem vilja fá jákvæða athygli og láta gott af sér leiða. Sam­ kvæmt könnun sem Maskína gerði fyrir Krabbameinsfélagið vorið 2016 eru 85% þeirra sem svöruðu líklegri til að kaupa vöru þar sem hluti af söluandvirðinu rennur til Bleiku slaufunnar ef um er að ræða val á milli tveggja sambærilegra vara á sambærilegu verði. Krabbameinsfélagið hvetur alla til að taka skemmtilegar bleikar myndir af sér, vinahópum eða vinnustöðum, merkja þær #bleika­ slaufan og senda á á netfangið bleikaslaufan@krabb.is. Þær eru í framhaldinu birtar á Facebook­síðu Bleiku slaufunnar. Allar nánari upplýsingar er að finna á bleikaslaufan.is. Landsmenn hvattir til að sýna samstöðu í bleiku Starfsfólk Eimskips gerði sér glaðan dag á bleika daginn í fyrra. Ekki reykja Fólk sem reykir er 3 til 4 sinnum líklegra til að fá aldursbundna augnbotnahrörnun. Með því að hætta að reykja núna, dregurðu úr líkunum á því að þú fáir aldursbundna augnbotnahrörnun. Borðaðu hollan mat og hreyfðu þig Borðaðu vítamínauðugan mat. Ofþyngd, kyrrseta og hár blóðþrýstingur eru áhættuþættir sem geta valdið sjúkdómum í augum. Verndaðu augun þín frá sólarljósi Notaðu hatt og sólgleraugu með að minnsta kosti 98% vörn gegn útfjólubláum geislum sólarinnar. Notaðu öryggisgleraugu Notaðu viðurkennd öryggisgleraugu þegar þú stundar íþróttir eða vinnur með verkfæri. Íhugaðu vítamíninntöku Ef þú hefur þurra aldursbundna augnbotna- hrörnun skaltu ráðfæra þig við augnlækninn þinn um vítamín fyrir augun. Farðu reglulega í augnskoðun Þú getur verið með alvarlegan sjúkdóm, án einkenna. Sumir augnsjúkdómar geta þróast hratt ef þeir eru ekki meðhöndlaðir. Hlúðu vel að sjóninni E F P T O Z Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda ein stak linga Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík | Sími: 54 55 800 | midstod.is Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga Ekki reykja Fólk sem reykir er 3 til 4 sinnum líklegra til að fá aldursbundna augnbotnahrörnun. Með því að hætta að reykja núna, dregurðu úr líkunum á því að þú fáir aldursbundna augnbotnahrörnun. Borðaðu hollan mat og hreyfðu þig Borðaðu vítamínauðugan mat. Ofþyngd, kyrrseta og hár blóðþrýstingur eru áhættuþættir sem geta valdið sjúkdómum í augum. Verndaðu augun þín frá sólarljósi Notaðu hatt og sólgleraugu með að minnsta kosti 98% vörn gegn útfjólubláum geislum sólarinnar. Notaðu öryggisgleraugu Notaðu viðurkennd öryggisgleraugu þegar þú stundar íþróttir eða vinnur með verkfæri. Íhugaðu vítamíninntöku Ef þú hefur þurra aldursbundna augnbotna- hrörnun skaltu ráðfæra þig við augnlækninn þinn um vítamín fyrir augun. Farðu reglulega í augnskoðun Þú getur verið með alvarlegan sjúkdóm, án einkenna. Sumir augnsjúkdómar geta þróast hratt ef þeir eru ekki meðhöndlaðir. Hlúðu vel að sjóninni E F P T O Z Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda ein stak linga Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík | Sími: 54 55 800 | midstod.is Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga Í dag er alþjóðlegi sjónverndardagurinn en hann er haldinn annan fimmtudag í október ár hvert. Tilgangur dagsins er að beina sjónum almennings að blindu og sjónskerðingu, endurhæfingu blindra og sjónskertra og vörnum gegn sjónmissi. Í tilefni dagsins vill Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga benda á nokkur atriði sem almenningur getur gert til að hlúa að sjóninni: Hvernig föt kaupir þú oftast? Ég kaupi oftast þægileg föt og efnið þarf að vera mjúkt og teygjanlegt. Ég þoli ekki efni sem stinga og klóra. Ég elska víðar peysur, víðar skyrtur, teygjan­ legar buxur. Allt sem er auðvelt að hreyfa sig í. Ég er enginn tískugúrú en veit samt nákvæmlega hvað ég fíla. Ef það væri til nafn yfir minn stíl þá væri það sennilegast eitt­ hvað í þessa áttina: „Smekklega en afslappaða týpan“. Eða kannski bara „dansara­lufsan, sem er alltaf með úfið hárið en stundum svona semí með­etta“. Hvar kaupir þú föt? Ég kaupi föt mest í útlöndum. Mínar uppá­ haldsbúðir eru: & Other Stories, Monki og Urban Outfitters. En hér heima versla ég mest í Maiu, Zöru og Sautján. Vildi óska að ég hefði efni á að versla í Geysi. Hvað er málið í haust og vetur? Haustin eru uppáhaldstíminn minn því þá fer maður í öll kósí fötin og hlýju yfirhafnirnar. Ég er mjög einföld þegar það kemur að fötum. Þegar ég fíla eitthvað þá væri ég mest til í að eiga það í mörgum litum svo ég gæti bara alltaf valið mér það sama. Fyrir mig er málið að vera bara í kósí peysum, gallabuxum og flottum yfirhöfnum. Poppa sig síðan upp með Orra Finn, sem er uppáhalds­ skartið mitt. Finnst þér gaman að klæða þig upp á? Mér finnst klárlega gaman að vera fín í partíum og einstaka sinnum fer maður í glimmergall­ ann og tryllta kjóla. En þegar ég er búin að vera mikið að sýna þá nenni ég ekki alltaf að fara í enn annan tryllta gallann, frekar bara í klassískan afslappaðan kjól og lufsast um. Hver er uppáhaldsflíkin þín? Vá! Erfið spurning. Ég held að ég verði að segja víða fallega bláa skyrtan mín, sem ég á í nokkrum litum, haha. Hún er uppáhalds því hún er víð, þægileg en samt hugguleg og ég er alveg fín í henni. Ég fékk hana í & Other Stories. Ég væri til í að kaupa lagerinn hjá þeim af skyrtum. Áttu þér uppáhaldshönnuð? Ég á mér einn uppáhaldshönnuð á Íslandi og hún er snillingur. Það er engin önnur en sundboladrottn­ ingin Erna Bergmann sem hannar Swimslow­sundbolina. Einstök klassík. Ertu veik fyrir aukahlutum? Ég elska góða skó, en á mjög fáa skó. Vantar klárlega fleiri í skápinn, er oft í vandræðum. En ég er veikust fyrir skarti. Ég elska Orra Finn og Kríu. Hvað er á döfinni hjá þér núna? Akkúrat núna er ég á leiðinni inn í frumsýningartörn á nýja verkinu mínu sem heitir Ég býð mig fram og verður frumsýnt í Mengi þann 26. október. Ég sendi bréf til þrettán listamanna og bauð þeim að semja örverk sem ég myndi flytja. Allir sögðu já þannig að ég er á hlaupum alla daga að hitta þessa snillinga og henda mér í hin ýmsu hlutverk og ævintýri, syngjandi, leikandi, dans­ andi og margt margt fleira. Smekklega „dansaralufsan“ Unnur Elísabet Gunnarsdóttir er dansari og danshöfundur sem stendur fyrir litlu listahátíðinni Ég býð mig fram sem fram fer í Mengi. Hún segist vera að henda sér í alls kyns hlutverk þessa dagana. Haustið er í uppáhaldi hjá Unni því það kallar á stórar hlýjar peysur. Brynhildur Björnsdóttir brynhildur@365.is Bláa skyrtan gengur við hvað sem er. 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 2 . o K tÓ B E R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R 1 2 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 3 F B 0 7 2 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D F 4 -B 5 8 0 1 D F 4 -B 4 4 4 1 D F 4 -B 3 0 8 1 D F 4 -B 1 C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 7 2 s _ 1 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.