Fréttablaðið - 12.10.2017, Page 38
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@365.is
6 KYNNINGARBLAÐ 1 2 . o K tó B e R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U RvetRARdeKK
Margir átta sig ekki á hættunni af snjalltækjanotkun undir stýri. NoRdICPHotoS/GettY
Þann 19. september síðastliðinn hóf Slysavarnafélagið Lands-björg átakið „Vertu snjall undir
stýri“. Átakið snýst um að fá fólk til
að hætta að nota snjalltæki í akstri.
„Þetta er orðið mikið vandamál og
ein okkar mesta vá í umferðinni. Við
ætlum að leggja okkar á vogarskál-
arnar til að snúa þessari þróun við,“
segir Jónína Kristín Snorradóttir,
slysavarnafulltrúi hjá Landsbjörg.
„Samgöngustofa hefur verið með
flott verkefni sem höfðar meira til
ungs fólks og við ákváðum að nota
aðra nálgun og ná til þeirra sem eru
eldri og atvinnubílstjóra.“
„Við hófum samstarf við fyrirtæki
sem eru í atvinnuakstri og starfs-
menn þeirra og þannig náum við
árangri,“ segir Jónína. „Þetta leiðir
til hugarfarsbreytingar hjá þeim og
svo vonumst við til að koma af stað
keðjuverkun í samfélaginu.“
Að keyra undir áhrifum tækja
Snjalltækjanotkun truflar ökumenn
mikið. „Snjalltækin eru hönnuð
þannig að þau eru sífellt að kalla á
okkur og fólki virðist finnast þetta
svo sjálfsagt að það hugar ekki
að því hvaða þýðingu það hefur
að skoða símann í akstri,“ segir
Jónína. „Bara það að lenda í áköfum
samræðum hefur gríðarleg áhrif á
einbeitinguna. Þá verða viðbrögð
við öllu í kringum mann hægari og
það má líkja því við að vera undir
áhrifum áfengis. Þannig að kannski
getum við kallað þetta að vera undir
áhrifum snjalltækja.“
„Við höfum góðar tölfræðiupp-
lýsingar frá útlöndum þar sem talað
er um að fjórðung slysa megi rekja til
snjalltækjanotkunar,“ segir Jónína.
„Hlutfallið gæti verið hærra, því það
er ekki víst að fólk sem lendir í slysi
viðurkenni alltaf snjalltækjanotkun
undir stýri.“
Persónuleg ábyrgð
Viðhorf fólks og hegðun virðist
stangast á. „Samgöngustofa gerði
viðhorfskönnun varðandi snjall-
tækjanotkun undir stýri og um 80%
sögðu að hún væri stórhættuleg,“
segir Jónína. „En samt sögðust um
30% stunda hana. Þetta virðist mjög
sterkur ávani.“
„Ég held að þetta sé fyrst og fremst
bara ákvörðun sem hver og einn þarf
að taka. Að nota ekki símann undir
stýri. Við verðum öll að leggja okkar
af mörkum til að gera umferðina
öruggari,“ segir Jónína. „Þeir sem eiga
erfitt með að hætta að nota símann
í akstri gætu prófað að slökkva á
öllum tilkynningarhljóðum eða að
sleppa að hafa hann við höndina.
Nýjasta uppfærslan á iPhone bætti
líka við sérstakri akstursstillingu og
ég vona að fleiri snjalltækjaframleið-
endur taki það til fyrirmyndar.“
Nú stendur líka til að hækka
sektina við því að nota síma undir
stýri úr 5.000 krónum í 40 þúsund
krónur. „Víða í heiminum er verið að
hækka sektir og herða reglur veru-
lega og það hjálpar vonandi,“ segir
Jónína.
verkefninu vel tekið
Landsbjörg hefur fundið fyrir
miklum áhuga og ánægju með
átakið. „Við höfðum samband við
fyrirtæki í atvinnurekstri og hófum
átakið í samstarfi við 11 fyrirtæki,“
segir Jónína. „Fleiri eru nú þegar að
bætast í hópinn og fyrirtæki eru farin
að hafa samband við okkur að fyrra
bragði, sem er mjög ánægjulegt.
Fyrirtækin og Slysavarnafélagið
Landsbjörg skrifa undir yfirlýsingu
um samfélagslega ábyrgð og eftir
það merkja fyrirtækin bílana sína
með merki og skilaboðum átaksins,“
segir Jónína. „Svo bjóðum við upp
á fræðslufyrirlestur fyrir starfs-
fólkið í samstarfi við Samgöngustofu
og fyrirtækjunum býðst að gera
samning við bílstjórana sína um að
taka þátt í verkefninu af heilum hug
og vera góð fyrirmynd í umferðinni,“
segir Jónína.
Verkefnið er rétt að fara af stað.
„Vonandi mun það lifa lengi, það er
ekki vanþörf á,“ segir Jónína. „Það er
langtímaverkefni að breyta viðhorfi
fólks.“
Keyrum
ekki undir
áhrifum
snjallsíma
Slysavarnafélagið Landsbjörg stendur
nú fyrir átakinu „Vertu snjall undir stýri“
til að breyta viðhorfum fólks gagnvart
því að nota snjalltæki undir stýri.
Landsbjörg og fyrirtækin sem taka þátt skrifa undir yfirlýsingu um samfélags-
lega ábyrgð. MYNd/LANdSBJÖRG
Jónína Kristín Snorradóttir, slysa-
varnafulltrúi hjá Landsbjörg.
MYNd/ANtoN BRINK
Ekki gera málamiðlanir
þegar kemur að öryggi
Goodyear er virtasti
dekkjaframleiðandi heims,
mmta árið í röð*
*samkvæmt tímaritinu Fortune
Nokkrir metrar í hemlunarvegalengd geta skipt öllu máli
Þú færð Goodyear vetrardekkin á
öllum betri hjólbarðaverkstæðum
1
2
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
F
4
-9
2
F
0
1
D
F
4
-9
1
B
4
1
D
F
4
-9
0
7
8
1
D
F
4
-8
F
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
7
2
s
_
1
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K