Fréttablaðið - 12.10.2017, Page 58

Fréttablaðið - 12.10.2017, Page 58
kvikmyndir Blade runner 2049 ★★★★★ Leikstjóri: Denis Villeneuve Framleiðendur: Andrew A. Kosove, Broderick Johnson, Bud Yorkin Handrit: Hampton Fancher, Michael Green Kvikmyndataka: Roger Deakins Tónlist: Hans Zimmer, Benjamin Wallfish Aðalhlutverk: Ryan Gosling, Ana de Armas, Harrison Ford Þegar Ridley Scott sendi fyrst frá sér Blade Runner árið 1982 hlaut hún frekar dræmar viðtökur og lélega aðsókn, og var það ekki fyrr en ein- hverjum árum og nokkrum endur- bættum útgáfum síðar að fólk fór að keppast við að lofsyngja hana og um leið deila um stærstu ráðgátu hennar. En hvort sem fólk dýrkar mynd- ina eða þolir ekki er ótvírætt hvað hin dystópíska „noir“ framtíðar- stemning í henni gerði heilmikið fyrir kvikmyndasöguna. Þessum stíl tókst hálfpartinn að geta af sér heilan undirgeira af bíómyndum, og óteljandi myndir urðu fyrir áhrifum, til dæmis Brazil, Strange Days, Ghost in the Shell, The Matrix og meira að segja Super Mario Bros.-myndin ömurlega. Í rauninni skrifast allt sem kallast „cyberpunk“ á Blade Runner, ef út í það er farið. Eðlilega er það ekkert grín að leggja í framhald á költ-klassík sem er bæði sérstæð og býr yfir vissri dulúð. Ábyggilega voru fleiri tugir leiða til þess að klúðra framlenging- unni og aðeins tvær leiðir til þess að gera hana rétt. Að því sögðu, þá hittir Blade Runner 2049 algjörlega í mark. Myndin er vönduð, snjöll, oft dáleið- andi og aðdáunarverð. Þessu listræna kraftaverki er ætlað að vera virðingarvottur við forver- ann, stækka hann um leið, dýpka þemun, bæta við nýjum og koma með úthugsaða framlengingu sem einnig stendur sjálfstæð. Útkoman er tilfinningaríkari, mikilfenglegri og almennt sterkari mynd að mati undirritaðs. Leikstjórinn Denis Villeneuve hefur á undraskömmum tíma skipað sér í hóp þeirra betri í dag. Á aðeins fjórum árum hefur hann gert fimm kvikmyndir, sem allar eru annað- hvort góðar eða framúrskarandi. Villeneuve hefur ítrekað sýnt að hann hefur gott auga, þétt tök á upp- byggingu, tilþrifamiklum leikurum, óhugnanlegu andrúmslofti og hefur umfram allt tröllatrú á krafti kvik- myndarammans og er ófeiminn við að leika sér með langar þagnir. Allt þetta kemur bersýnilega að góðum notum í Blade Runner 2049. Það er ómögulegt að aðrar myndir ársins taki þessari fram hvað sjónræn tilþrif snertir, en það er kannski sjálf- sögð krafa þegar um Blade Runner-fram- hald er að ræða. Það má hins vegar ekki líta fram hjá því hvað tökumaðurinn Roger Deakins fangar mikla töfra með vinnu- brögðum sínum og gerir annan hvern ramma að hreinu listaverki. Í myndinni er tryggð haldið við heildarútlit forver- ans, þar sem gamla tæknin nýtur sín, en ýmsum nýjum sniðum og víddum er bætt við. Magnaður hljóðheimur og öflug tónlist límir þetta allt saman, að ógleymdri sviðsumgjörð, klippingu og búningum ekki síður. Til að gera gott enn betra nær svo fjölbreytt fólk (og „gervifólk“) að gæða inni- haldið aukalífi sem gefur skrautinu allan sinn tilgang. Fremstur fer þar Ryan Gosling, sem er afbragðsgóður. Þetta er krefjandi burðarhlutverk og heldur leikarinn aftur af sér í marg- brotinni frammistöðu sem lögreglan K, sem er aldrei almennilega sátt við sinn stað í lífinu. Rétt er að gefa upp sem minnst um þá athyglisverðu þróun sem K gengur í gegnum út myndina. Öfugt við það sem ráða má af kynningarefninu fær Harrison Ford ákaflega takmarkaðan tíma á tjaldinu, en nærvera hans og andi svífur yfir allri framvindunni. Ford nýtir þó tíma sinn vel og kemur óað- finnanlega út. Leikur hans er meira marglaga en síðast og hann hefur ekki verið svona vakandi í bíómynd í fjölmörg ár. Hann hefur átt sín augnablik hér og þar en hér sannast það að maðurinn getur verið leikari fyrst og gamall töffari síðan, en ekki öfugt. Aðrir leikarar smellpassa í hlut- verk sína og ná að bæta einhverju smávegis við sinn karakter, þar á meðal Jared Leto, Robin Wright, Carla Juri, Mackenzie Davis og Tómas Lemarquis. Upp úr standa samt Ana de Armas, sem leikur hina „sérsniðnu“ Joi, og Sylvia Hoeks, sem túlkar eftirlíkingu sem fylgir Gosling fast eftir út myndina og glímir sjálf við athyglisverða tilvistarkreppu. De Armas hleypir talsverðri hlýju inn í gráma andrúmsloftsins, þótt per- sóna hennar sé mest áberandi „gervi- veran“ af þeim öllum. Í Blade Runner 2049 er ýmissa spurninga spurt u m e i n k e n n i sjálfsins, meðvit- und, minningar og ábyrgðina sem fylgir sköpun. Með svona efnivið er alltaf stutt í pre- dikunina en Ville- neuve og handrits- höfundarnir eru nógu skarpir til þess að útskýra hlutina aldrei of ítarlega. Réttu hlutirnir eru ósagðir, bitastæð svör eru gefin og margt er til umræðu eftir á, sem eitt og sér ætti að tryggja myndinni eitthvert líf á komandi árum, sama hvað aðsóknin í kvik- myndahúsunum gefur til kynna. Það segir sig eflaust sjálft að mynd- in er ekki fyrir hvern sem er. Einhverjir eru líklegir til þess að gefast upp á afslappaðri lengd hennar og enn pínlegri verður upp- lifunin hjá þeim sem búast við mikl- um hasar. Þetta er mynd sem fjallar meðal annars um leitina að sálinni og tilgangi, sem er viss kaldhæðni í ljósi þess að hér er í grunninn býsna tilgangslaust framhald með eftir- líkingar og umræður um þær í for- grunni. Blade Runner 2049 er samt svo fjarri því að vera innantóm eftirlík- ing af fyrri myndinni. Hún býr yfir mikilli sál og er heilt yfir ómetanlegt innlegg í vísindaskáldskapargeirann og afbragðsdæmi um hvernig gera skal síðbúið framhald án þess að það verði einber uppsuða úr linnulausri nostalgíu. Tómas Valgeirsson niðurstaða: Ef þú veist hvað þú ert að fara út í má hér finna grípandi, marglaga og mannlegan vísindaskáld- skap með meiru. Veisla fyrir augu, eyru og heilabúið. Toppmynd. Sjónrænt meistaraverk og fyrirmyndar framhald Harrison Ford og Ryan Gosling á harðaspretti í Blade Runner 2049. Urðarhvarfi 4 / 203 Kópavogi Sími 557 4848 / www.nitro.is Þarf ekki próf, tryggja eða skrá! MIKIÐ ÚRVAL AF RAFMAGNSREIÐHJÓLUM RafmagnsReiDhjól- Electric system CHASSIS Frame: Aluminium,Al6061 Front Fork: Aluminium,T40,26” Head Set: VP-A41AC Brake: F/R:TEKTRO DISC BRAKE,MD-M300,TR180/MD- M300TR-160 DRIVETRAIN Motor: 8FUN,SWXH2,36V,250W / 350W Max Speed(KM/H): EU: 25km/h, Mileage: From 40-60km, depending on usage & conditions Crank Set: PROWHEEL,Al6061,- PRO-E48PP,3/32*48T*170mm Derailleur Level: SHIMANO,SL-M310 Derailleur: SHIMANO,ARD-TX55D WHEELSET Rim: DS75G,26”X4.0 Tire: KENDA K1151 26*4.0 Hub: MODUS/MD-JA165F-DSE- 30% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM HJÓLUM gæði – þekking – þjónusta Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is VAKÚMVÉLAR Mikið úrval af vakúmvélum sem henta einstaklingum og fyrirtækjum PÖKKUNARVÉLAR - BRETTAVAFNINGSVÉLAR - BINDIVÉLAR BAKKALOKUNARVÉLAR - FLÆÐIPÖKKUNARVÉLAR FILMUPÖKKUNARVÉLAR - KASSALOKUNARVÉLAR FÁÐU TILBOÐ Finndu okkur á facebook Flísabúðin kynnir hágæða Ítalska HELIOSA rafmagnshitara HELIOSA hitarar henta bæði innan- og utandyra. Hitna strax, vindur hefur ekki áhrif, vatnsheldir og menga ekki. Margar gerðir til á lager. Flísabúðin Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is ára Starfsmanna- og munaskápar www.rymi.is 1 2 . o k t ó B e r 2 0 1 7 F i m m t u d a G u r38 m e n n i n G ∙ F r É t t a B L a ð i ð Bíó 1 2 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 3 F B 0 7 2 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D F 4 -9 C D 0 1 D F 4 -9 B 9 4 1 D F 4 -9 A 5 8 1 D F 4 -9 9 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 7 2 s _ 1 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.