Fréttablaðið - 12.10.2017, Blaðsíða 58
kvikmyndir
Blade runner 2049
★★★★★
Leikstjóri: Denis Villeneuve
Framleiðendur: Andrew A. Kosove,
Broderick Johnson, Bud Yorkin
Handrit: Hampton Fancher, Michael
Green
Kvikmyndataka: Roger Deakins
Tónlist: Hans Zimmer, Benjamin
Wallfish
Aðalhlutverk: Ryan Gosling, Ana de
Armas, Harrison Ford
Þegar Ridley Scott sendi fyrst frá sér
Blade Runner árið 1982 hlaut hún
frekar dræmar viðtökur og lélega
aðsókn, og var það ekki fyrr en ein-
hverjum árum og nokkrum endur-
bættum útgáfum síðar að fólk fór að
keppast við að lofsyngja hana og um
leið deila um stærstu ráðgátu hennar.
En hvort sem fólk dýrkar mynd-
ina eða þolir ekki er ótvírætt hvað
hin dystópíska „noir“ framtíðar-
stemning í henni gerði heilmikið
fyrir kvikmyndasöguna. Þessum
stíl tókst hálfpartinn að geta af sér
heilan undirgeira af bíómyndum, og
óteljandi myndir urðu fyrir áhrifum,
til dæmis Brazil, Strange Days, Ghost
in the Shell, The Matrix og meira
að segja Super Mario Bros.-myndin
ömurlega. Í rauninni skrifast allt sem
kallast „cyberpunk“ á Blade Runner,
ef út í það er farið.
Eðlilega er það ekkert grín að
leggja í framhald á költ-klassík sem
er bæði sérstæð og býr yfir vissri
dulúð. Ábyggilega voru fleiri tugir
leiða til þess að klúðra framlenging-
unni og aðeins tvær leiðir til þess að
gera hana rétt. Að því sögðu, þá hittir
Blade Runner 2049 algjörlega í mark.
Myndin er vönduð, snjöll, oft dáleið-
andi og aðdáunarverð.
Þessu listræna kraftaverki er ætlað
að vera virðingarvottur við forver-
ann, stækka hann um leið, dýpka
þemun, bæta við nýjum og koma
með úthugsaða framlengingu sem
einnig stendur sjálfstæð. Útkoman
er tilfinningaríkari, mikilfenglegri
og almennt sterkari mynd að mati
undirritaðs.
Leikstjórinn Denis Villeneuve
hefur á undraskömmum tíma skipað
sér í hóp þeirra betri í dag. Á aðeins
fjórum árum hefur hann gert fimm
kvikmyndir, sem allar eru annað-
hvort góðar eða framúrskarandi.
Villeneuve hefur ítrekað sýnt að
hann hefur gott auga, þétt tök á upp-
byggingu, tilþrifamiklum leikurum,
óhugnanlegu andrúmslofti og hefur
umfram allt tröllatrú á krafti kvik-
myndarammans og er ófeiminn við
að leika sér með langar þagnir. Allt
þetta kemur bersýnilega að góðum
notum í Blade Runner 2049.
Það er ómögulegt að aðrar myndir
ársins taki þessari fram hvað sjónræn
tilþrif snertir, en það er kannski sjálf-
sögð krafa þegar um
Blade Runner-fram-
hald er að ræða. Það
má hins vegar ekki
líta fram hjá því hvað
tökumaðurinn Roger
Deakins fangar mikla
töfra með vinnu-
brögðum sínum og
gerir annan hvern
ramma að hreinu
listaverki.
Í myndinni er
tryggð haldið við
heildarútlit forver-
ans, þar sem gamla
tæknin nýtur sín,
en ýmsum nýjum
sniðum og víddum er bætt við.
Magnaður hljóðheimur og öflug
tónlist límir þetta allt saman, að
ógleymdri sviðsumgjörð, klippingu
og búningum ekki síður. Til að gera
gott enn betra nær svo fjölbreytt
fólk (og „gervifólk“) að gæða inni-
haldið aukalífi sem gefur skrautinu
allan sinn tilgang. Fremstur fer þar
Ryan Gosling, sem er afbragðsgóður.
Þetta er krefjandi burðarhlutverk og
heldur leikarinn aftur af sér í marg-
brotinni frammistöðu sem lögreglan
K, sem er aldrei almennilega sátt við
sinn stað í lífinu. Rétt er að gefa upp
sem minnst um þá athyglisverðu
þróun sem K gengur í gegnum út
myndina.
Öfugt við það sem ráða má af
kynningarefninu fær Harrison
Ford ákaflega takmarkaðan tíma á
tjaldinu, en nærvera hans og andi
svífur yfir allri framvindunni. Ford
nýtir þó tíma sinn vel og kemur óað-
finnanlega út. Leikur hans er meira
marglaga en síðast og hann hefur
ekki verið svona vakandi í bíómynd
í fjölmörg ár. Hann hefur átt sín
augnablik hér og þar en hér sannast
það að maðurinn getur verið leikari
fyrst og gamall töffari síðan, en ekki
öfugt.
Aðrir leikarar smellpassa í hlut-
verk sína og ná að bæta einhverju
smávegis við sinn karakter, þar á
meðal Jared Leto, Robin Wright,
Carla Juri, Mackenzie Davis og
Tómas Lemarquis. Upp úr standa
samt Ana de Armas, sem leikur hina
„sérsniðnu“ Joi, og Sylvia Hoeks, sem
túlkar eftirlíkingu sem fylgir Gosling
fast eftir út myndina og glímir sjálf
við athyglisverða tilvistarkreppu. De
Armas hleypir talsverðri hlýju inn í
gráma andrúmsloftsins, þótt per-
sóna hennar sé mest áberandi „gervi-
veran“ af þeim öllum.
Í Blade Runner
2049 er ýmissa
spurninga spurt
u m e i n k e n n i
sjálfsins, meðvit-
und, minningar
og ábyrgðina sem
fylgir sköpun.
Með svona efnivið
er alltaf stutt í pre-
dikunina en Ville-
neuve og handrits-
höfundarnir eru
nógu skarpir til þess
að útskýra hlutina
aldrei of ítarlega.
Réttu hlutirnir eru
ósagðir, bitastæð
svör eru gefin og margt er til umræðu
eftir á, sem eitt og sér ætti að tryggja
myndinni eitthvert líf á komandi
árum, sama hvað aðsóknin í kvik-
myndahúsunum gefur til kynna.
Það segir sig eflaust sjálft að mynd-
in er ekki fyrir hvern sem er.
Einhverjir eru líklegir til þess
að gefast upp á afslappaðri lengd
hennar og enn pínlegri verður upp-
lifunin hjá þeim sem búast við mikl-
um hasar. Þetta er mynd sem fjallar
meðal annars um leitina að sálinni
og tilgangi, sem er viss kaldhæðni í
ljósi þess að hér er í grunninn býsna
tilgangslaust framhald með eftir-
líkingar og umræður um þær í for-
grunni.
Blade Runner 2049 er samt svo
fjarri því að vera innantóm eftirlík-
ing af fyrri myndinni. Hún býr yfir
mikilli sál og er heilt yfir ómetanlegt
innlegg í vísindaskáldskapargeirann
og afbragðsdæmi um hvernig gera
skal síðbúið framhald án þess að það
verði einber uppsuða úr linnulausri
nostalgíu.
Tómas Valgeirsson
niðurstaða: Ef þú veist hvað þú
ert að fara út í má hér finna grípandi,
marglaga og mannlegan vísindaskáld-
skap með meiru. Veisla fyrir augu,
eyru og heilabúið. Toppmynd.
Sjónrænt meistaraverk
og fyrirmyndar framhald
Harrison Ford og Ryan Gosling á harðaspretti í Blade Runner 2049.
Urðarhvarfi 4 / 203 Kópavogi
Sími 557 4848 / www.nitro.is
Þarf ekki próf, tryggja eða skrá!
MIKIÐ ÚRVAL AF RAFMAGNSREIÐHJÓLUM
RafmagnsReiDhjól-
Electric system CHASSIS
Frame: Aluminium,Al6061
Front Fork: Aluminium,T40,26”
Head Set: VP-A41AC
Brake: F/R:TEKTRO DISC
BRAKE,MD-M300,TR180/MD-
M300TR-160
DRIVETRAIN
Motor: 8FUN,SWXH2,36V,250W /
350W
Max Speed(KM/H): EU: 25km/h,
Mileage: From 40-60km, depending on
usage & conditions
Crank Set: PROWHEEL,Al6061,-
PRO-E48PP,3/32*48T*170mm
Derailleur Level: SHIMANO,SL-M310
Derailleur: SHIMANO,ARD-TX55D
WHEELSET
Rim: DS75G,26”X4.0
Tire: KENDA K1151 26*4.0
Hub: MODUS/MD-JA165F-DSE-
30%
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM
HJÓLUM
gæði – þekking – þjónusta
Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is
VAKÚMVÉLAR
Mikið úrval af vakúmvélum
sem henta einstaklingum
og fyrirtækjum
PÖKKUNARVÉLAR - BRETTAVAFNINGSVÉLAR - BINDIVÉLAR
BAKKALOKUNARVÉLAR - FLÆÐIPÖKKUNARVÉLAR
FILMUPÖKKUNARVÉLAR - KASSALOKUNARVÉLAR
FÁÐU TILBOÐ
Finndu okkur
á facebook
Flísabúðin kynnir hágæða
Ítalska HELIOSA rafmagnshitara
HELIOSA hitarar henta
bæði innan- og utandyra.
Hitna strax, vindur hefur
ekki áhrif, vatnsheldir og
menga ekki.
Margar gerðir til á lager.
Flísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
ára
Starfsmanna-
og munaskápar
www.rymi.is
1 2 . o k t ó B e r 2 0 1 7 F i m m t u d a G u r38 m e n n i n G ∙ F r É t t a B L a ð i ð
Bíó
1
2
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
F
4
-9
C
D
0
1
D
F
4
-9
B
9
4
1
D
F
4
-9
A
5
8
1
D
F
4
-9
9
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
7
2
s
_
1
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K