Fréttablaðið - 12.10.2017, Page 69
Hver er munurinn
á kaffi og
orkudrykkjum?
Heilsan
okkar
Jóhanna E.
Torfadóttir
næringarfræð-
ingur og doktor
í lýðheilsu-
vísindum.
Kaffi og orku-drykkir inni-halda örvandi
efnið koffín.
Auk þess
er oft bætt
fleiri örv-
andi efnum
í orkudrykki
svo sem gin-
seng og jafnvel næringarefnum
eins og amínósýrum og víta-
mínum.
Kaffidrykkja hefur verið tengd
við lægri sjúkdómatíðni og á það
við um hóflega og jafnvel mikla
neyslu (allt að 6 bollar á dag).
Þessi jákvæðu áhrif eru líklegast
tilkomin vegna andoxunarefna
(pólýfenóla) sem eru í kaffi-
baununum en eru ekki í orku-
drykkjum.
Í venjulegum kaffibolla fáum
við á bilinu 100-150 mg af koff-
íni og í einni dós af orkudrykk
á bilinu 80-130 mg. Um flesta
orkudrykki gildir að þeir skulu
merktir með varnaðarorðunum:
Ekki æskilegt fyrir börn eða
barnshafandi konur eða konur
með barn á brjósti.
Koffín getur dregið úr ein-
kennum þreytu, aukið hjart-
slátt og mögulega bætt einbeit-
ingu. Rannsóknir sýna að mikil
koffínneysla veldur neikvæðum
áhrifum, eins og svefnerfiðleik-
um, þreytu, höfuðverk, maga-
verk, niðurgangi og pirringi. Þá
er vitað að mikil koffínneysla,
hvort sem er frá kaffi eða orku-
drykkjum getur valdið fósturláti
og eitrunareinkennum svo sem
uppköstum, óreglulegum hjart-
slætti og yfirliði.
Kaffi er orkusnauður drykkur
en ef við bætum mjólk og sykri
við þá eykst orkuinnihaldið.
Sem dæmi inniheldur latte án
síróps um 140 hitaeiningar. Í
mörgum orkudrykkjum kemur
öll orkan frá viðbættum sykri
og algengt að ein dós (250 ml)
innihaldi um 115 hitaeiningar
sem samsvarar 14 sykurmolum.
Sumir orkudrykkir innihalda
lítið sem ekkert af hitaeiningum
og gefa þá ekki orku en aðeins
örvandi áhrif.
Lesendum er bent á að senda
sérfræðingum okkar spurningar
tengdar heilsu og lífsstíl á
heilsanokkar@frettabladid.is.
Niðurstaða: Orkudrykkir
innihalda viðbætt örvandi
efni og oft mikið magn af
viðbættum sykri. Kaffi inni-
heldur koffín sem kemur frá
kaffibaununum. Of mikið
koffínmagn getur verið skað-
legt heilsu.
RannsókniR sýna
að mikil koffín-
nEysla vElduR nEikvæð-
um áHRifum, Eins og
svEfnERfiðlEikum,
þREyTu, HöfuðvERk,
magavERk, niðuRgangi og
piRRingi.
Bandaríkjamenn eru þekktir fyrir að taka hrekkjavökuna eða Halloween alvarlega og
leikkonan Angelina Jolie er víst engin
undantekning. Í vikunni mun hún
hafa pungað úr 1.000 Bandaríkjadöl-
um, sem samsvarar rúmum 100 þús-
und íslenskum krónum, í skreytingar
og búninga fyrir Hrekkjavökuna.
Meðal þess sem hún keypti eru hin
ýmsu vopn þakin gerviblóði, spenni-
treyja, gervifugl í búri og ballerínu-
pils að því er fram kemur á vef TMZ.
Tólf ára dóttir hennar, Zahara, var í
för með mömmu sinni í versl unar-
leiðangrinum. Þetta er ekki í fyrsta
sinn sem Jolie ratar í fréttirnar fyrir
að hafa eytt dágóðri summu í skraut
og búninga fyrir hrekkjavökuna sem
hún heldur greinilega hátíðlega. Þess
má geta að Hrekkjavakan er haldin
31. október og hefð hefur myndast
fyrir því að börn klæðist búningum
og grímum og gangi á milli húsa til
að sníkja sælgæti. – gha
spreðaði rúmum 100.000 krónum í hrekkjavökuskraut og búninga
Leikkonan
angelina
Jolie virðist vera
mikill aðdáandi
hrekkjavök-
unnar.
NOrDiCPHOtOs/
GEttY
JoliE kEypTi mEðal
annaRs spEnniTREyJu og
gERvifugl í búRi.
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–18 | laugardaga 11–15 | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
RAMMGÖLDRÓTT
„Frumleg, grípandi og
spennandi hrollvekja.“
H Þ Ó / F R É T T A B L A Ð I Ð ( U M D R A U G A - D Í S U )
Hugmyndaflug á
heimsmælikvarða
Fyrir alla fantasíu-
aðdáendur
Drauga-Dísa var tilnefnd
til Íslensku bókmennta-
verðlaunanna
L í f i ð ∙ f R É T T A B L A ð i ð 49f i M M T U D A G U R 1 2 . o k T ó B e R 2 0 1 7
1
2
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
F
4
-8
9
1
0
1
D
F
4
-8
7
D
4
1
D
F
4
-8
6
9
8
1
D
F
4
-8
5
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
7
2
s
_
1
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K