Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2017, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2017, Blaðsíða 14
Helgarblað 13.–16. janúar 201714 Fréttir Björt framtíð Í stefnuyfirlýsingu hinnar nýju ríkis stjórnar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar er að finna tuttugu málefnakafla þar sem tæpt er á þeim verkefnum sem stjórnin hyggst setja á oddinn á kjörtímabilinu. Það er nokkuð sam­ dóma álit þeirra sem lesið hafa yfir­ lýsinguna að hún sé fremur almennt orðuð, fátt sé um ákveðnar áætlan­ ir en heldur sé talað um fyrirheit, að kanna skuli hitt og þetta og vinna skuli að tillögum. Þó er hægt að lesa út úr stjórnar­ sáttmálanum, í nokkrum tilfellum, að flokkarnir hafi þurft að gefa eftir þegar kemur að málefnaáherslum. DV tók fyrir kosningar saman kosn­ ingakompás þar sem stefna flokk­ anna í aðskildum málum var dreg­ in fram. Hér að neðan má sjá stefnur flokkanna í fimm málaflokkum born­ ar saman við stefnuyfirlýsinguna. Ef draga má einhverja heildstæða ályktun af samanburðinum er hún sú að Sjálfstæðisflokkurinn hafi náð fram sínum stefnumálum að mestu en Björt framtíð hafi hins vegar þurft að gefa verulega eftir. n n Samanburður á stefnumálum og stjórnarsáttmála ríkisstjórnarflokkanna Freyr Rögnvaldsson freyr@dv.is dró stutta stráið Evrópusambandsaðild Þegar kemur að afstöðunni til Evrópusambandsins má halda því fram með réttu að sjónarmið Sjálfstæðisflokksins hafi orðið ofan á. Stefna flokksins var að Ísland stæði utan Evrópusambandsins en á sama tíma vildi Viðreisn að það yrði lagt í dóm þjóðarinnar hvort aðildarviðræðum við sambandið yrði haldið áfram. Björt framtíð gekk hins vegar lengra og vildi að aðildarsamningurinn yrði kláraður og hann lagður í dóm þjóðarinnar. Í stjórnar­ sáttmálanum segir að „komi fram þingmál um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarvið­ ræður við Evrópusambandið“ séu flokkarnir sammála um að leiða málið til lykta undir lok kjörtímabilsins. Niðurstaðan er því sú að sjónarmið Sjálfstæðisflokksins urðu ofan á en Björt framtíð gaf að fullu eftir. Landbúnaður Viðreisn vildi að landbúnaður lyti sömu lögmálum og annar atvinnurekstur þegar kæmi að lögum og reglum um samkeppni og vísaði þar með til þess að undanþágur afurðastöðva í mjólkuriðnaði frá samkeppnislög­ um yrðu afnumdar. Enn fremur að ríkisvaldið legði af framleiðslu­ og sölustýringu á afurðum og að afnema bæri tolla­ og innflutningshöft á landbúnaðarvörur. Björt framtíð vildi að opnað yrði á frekari samkeppni og inn­ og útflutning landbúnaðarvara. Þingmenn flokksins beittu sér þá harkalega gegn, og greiddu atkvæði á móti, búvörusamningum. Sjálfstæðis­ flokkurinn lagði áherslu á að nýta svigrúm sem landbúnaði skapaðist með nýjum búvörusamningi til fram­ þróunar. Í stjórnarsáttmála segir að endurskoða eigi búvörusamninga ekki síðar en 2019. Það er hins vegar sama tímasetning og er í samningunum eins og þeir voru undirritaðir. Í stjórnarsátt­ málanum er ekki að finna neitt ákveðið um breytingar en fyrirheit um það að af hálfu stjórnvalda verði hvatt til að „að vægi almennari stuðnings verði aukið, svo sem til jarðræktar, fjárfestingar, nýsköpunar, umhverfisverndar og nýliðunar, en dregið úr sértækum búgreinastyrkjum.“ Niðurstaðan er sú að búvörusamningar standa og fárra breytinga er að vænta fyrsta kastið. Björt framtíð virðist sérstaklega hafa dregið stutta stráið í þessum efnum. Skattamál Sjálfstæðisflokkurinn vildi lækka skatta og einfalda skattkerfið, lækka tryggingargjald og afnema lágmarksútsvar. Viðreisn vildi einföldun á skatt­ kerfinu og fækka undanþágum og reglum. Björt framtíð var á svipuðum nótum, einfalda bæri skattkerfið og gera það réttlátt og skiljanlegt fyrir almenning. Í stjórnarsáttmála er ekki talað um lækkun skatta heldur talað fyrir því að hlutverk skattkerfisins sem tekjuöflunartækis fyrir sameiginleg útgjöld verði styrkt. Einföldun og sanngirni eru nefnd í sáttmálanum. Niðurstaðan er sú að Sjálfstæðisflokkurinn fékk ekki sínu framgengt varðandi lækkun skatta. Stjórnarskrá Björt framtíð vildi að ný stjórnarskrá á grunni tillagna stjórnlagaráðs yrði að veruleika, þó bregðast þyrfti við málefnalegum athugasemdum. Viðreisn vildi að endurskoðun stjórnar­ skrárinnar yrði lokið með víðtækri sátt. Sjálfstæðisflokkurinn lagði áherslu á að varlega þyrfti að fara í breytingar, ná þyrfti víðtækri pólitískri sátt og að óheillavænlegt væri að knýja fram róttækar breytingar í krafti meirihluta hverju sinni. Í stjórnarsáttmála segir að unnið verði að endurskoðun stjórnarskrárinnar á grundvelli „þess viðamikla starfs sem átt hefur sér stað undanfarin ár“. Skipa skuli þingmannanefnd sem starfi með sér­ fræðingum og skila eigi tillögum ekki síðar en árið 2019. Niðurstaðan er sú að stefna Bjartrar framtíðar varð undir, Sjálfstæðis­ flokkurinn gaf eftir en Viðreisn kemst næst því að ná sínu fram. Fiskveiðistjórnunarkerfið Stefna Sjálfstæðisflokksins var að halda ætti kerfinu óbreyttu og tryggja með því stöðugleika í greininni. Hvor tveggja Viðreisn og Björt framtíð vildi hins vegar setja kvóta á markað og fá með því sanngjarnt afgjald fyrir aðgang af auðlindinni. Niður­ staðan í stjórnarsáttmálanum er að halda skuli í aflamarkskerfið en kannaðir verði kostir þess að í stað ótímabundinnar úthlutunar á veiðirétti verði byggt á langtíma­ samningum. Samhliða því verði metið hvort aðrir kostir séu tiltækir til að tryggja eðlilegt gjald fyrir aðgang að auðlindinni, svo sem markaðsleið eða afkomutengt gjald. Niðurstaðan er því sú að Viðreisn og Björt framtíð gáfu eftir kröfur sínar um að kvóti yrði settur á markað en fengu í staðinn óljós fyrirheit um að kanna möguleika á uppboðsleið, eða öðrum leiðum. Almenn stefnuyfirlýsing Stefnuyfir­ lýsing ríkisstjórnarinnar er almenn en þó má greina í henni hvar flokkarnir hafa þurft að takast á um málefni. Mynd SigtRygguR ARi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.